Popular Posts

Thursday, April 14, 2011

Álfar og Huldufólk setja upp ofurtölvuver á Hellisheiði


Einn af frægustu álfum fyrr og síðar standi á hól út í rassgati og nokkuð fullviss um að framtíð Sovétríkjanna væri í óvissu án ofurtölvuvera.......

Álfar og huldufólk hafa ákveðið að sameina skapandi krafta sína og setja upp ofurtölvuver á Hellisheiði sem liður í svari til háskólayfirvalda í tilraunum þeirra til að koma upp sínum eigin ofurtölvuverum.
Íslenskir álfar og huldufólk hafa efnt til samvinnu við álfa og huldufólk fyrrum Sovétríkjanna í þessum efnum en þar hafa þegar verið sett upp ofurtölvuver hér og um gjörvöll fyrrverandi Sovétríkinn.
Sovétríkin hrundu einmitt eftir að í ljós kom að sumir stjórnmálaleiðtoga þeirra væru í raun álfar sem ættu heima á hól , og hefðu komist upp með það að dylja hóladvalaskeið sín á almannafæri frammi fyrir alþjóð.
Álfar og huldufólk Norðurheimskautsbaugslínunnar hafa lýst yfir stuðningi við áform íslenskra álfa og huldufólks þess efnis að setja upp ofurtölvuverið á Hellisheiði - ofurtölvuverið verður vindorku - og raforkuknúið og risavaxin batterý munu sjá ofurtölvuverinu fyrir raforku þegar vindorkan verður óþörf.
Álfar hafa verið þekktir fyrir getu sína til að ræna eða stela börnum og stundum skila þeim ekki aftur en einnig koma vel fram við þau og bjóða þeim af og til í álfheima.
Tölvuvæðing og tæknivæðing álfheima hefur lengi verið á dagskrá íslenskra álfa - og huldufólks , t.d. hefur Magnús H. Skarphéðinsson fjallað opinskátt um huldufólksbíla......en það vantar að sjálfsögðu huldufólksþyrlur , huldufólks flugvélar , huldufólks kafbága og auðvitað huldufólks hótel.......kannski duaga kastalarnir þó betur heldur en öll þessi rándýru hótel.


Vegna aðildar google að and - kommúnísku samsæri óvina ríkisins vottast hér með að þessi álfur hefur ekki leyfi til þess að skilgreina sig sem slíkann - sem betur fer er hann reyndar dáinn og þótti börn og ungmenni sérlega mikið lostæti





Friday, April 8, 2011

Michael Myers kýs gegn IceSave

Ljóst er að Michael Myers er mikill Íslandsvinur. Michael minnir unnendur IceSave samningana á hvað það gæti kostað þá að segja já við IceSave.

Raðmorðinginn Michael Myers mætir á Laugardaginn n.k. til þess að kjósa gegn IceSave.
Michael er sem alkunnugt er mállaus en er engu að síður meðal afkastamestu raðmorðingja kvikmyndasögunnar fyrr og síðar.
Flestir aðdáenda hans þakka Guði fyrir það að herra Myers hafi ekki komið fram á sjónarmiðið í raunheimum en á stöðum eins og hér getur allt gerst óháð því hversu líklegt það er til þess að gerast þar.
Michael Myers rekur að sjálfsögðu eigin Facebook síðu , sem heitir einfaldlega My and My Sister´s Personal and Private Facebook Page.
Content; Classified.
Aðeins hörðustu aðdáendur fá að gerast meðlimir síðunnar og vinir Myers , og Myers er einstaklega sérvitur eins og margir aðrir raðmorðingjar - t.d. þolir Myers ekki náttfatapartý , og elskar rokkónginn Rob Zombie.
Myers er sérstaklega þakklátur herra Zombie fyrir að hafa gefið sér nýtt útlit , meiri hæð , meiri krafta og um fram allt meiri dómgreind.
Ýmislegt þótti benda sterklega til þess að Myers væri Íslandsvinur eftir allt saman - t.d. var ekkert af fórnarlömbum hans Íslendingur.
Myers minntist aldrei á Ísland við sálfræðing sinn , og leitt þykir að í sýnum hans hafi aldrei komið fram neinn íslenskur hestur.
Myers er engu að síður mikill aðdáandi hesta og hefur gaman af íslenskum hestum og hefur mikið fylgst með íslenskum hestaviðburðum.
Myers hefur marg ítrekað í einkaviðtölum að sér þyki sérlega vænt um íslensku þjóðina , og að sér sé alveg sama um það þótt að bandaríkin hafi verið undir stjórn hermálayfirvalda frá 1946.
Aðspurður hverrar pólitískrar skoðunar hann er hefur hann ítrekað sagst vera þeirrar skoðunar að Ísland eigi að fá að bera nafn með renntu , og að hér eigi fólk að fá að vera í friði í sátt og samlyndi við umhverfi sitt.
Myers þolir ekki eftirlitsmyndavélar og segist eiga bágt með að skilja ást yfirvalds lands síns og okkar á eftirlitsmyndavélum.
´Þú getur ekki gifst eftirlitsmyndavél , þú getur ekki borðað eftirlitsmyndavél , þú getur ekki sofið hjá eftirlitsmyndavél og þegar ég sker eftirlitsmyndavélar þá fara bara vírarnir í sundur og það kemur ekkert blóð , algjört bömmer!´
Michael Myers hefur bannað allt myndavélaeftirlit á heimili sínu og segist hrífast af trúarhreyfingum sem banna notkun myndavéla í hverfinu sínu.
´Ég er orðinn hundleiður á öllum þessum myndum af mér - ég ætla að segja það bara núna strax að þegar ég kem til Íslands til að greiða atkvæði gegn IceSave þá er öllum bannað að taka myndir af mér - annars er mér og hnífnum mínum að mæta og ég skal rífa grímuna mína í tætlur eða selja hana hæstbjóðanda!´.
´Af hverju greiðirðu atkvæði gegn IceSave?´spyr viðmælandi Myers á sjattinu á FB síðunni hans.
´Af því að ég hef aldrei tekið þátt í kosnungum áður og hef verið upptekinn meira og minna - og hugsanlega verður þetta í einasta skipti sem ég kýs um ævi mína á mínum annars listræna ferli sem raðmorðingi´.