Popular Posts

Wednesday, June 29, 2011

Hæstiréttur Bandaríkjanna gefur út ofbeldistölvuleik

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur gefið út ofbeldisleikinn Supreme Court Killers.
Í leiknum ertu raðmorðingi og háttvirtur framapoti sem er hluti af starfsemi hæstaréttar.
Þú átt að æða inn í hús fólks að nóttu til en jafnframt nota lögin til að tryggja að þú verður ekki sendur í fangelsi í hvert sinn sem upp um þig kemst í leiknum.
Æðstu embættismenn hæstaréttar Bandaríkjanna hafa lýst yfir miklum stuðningi við ofbeldisleikinn en byggja hlutverk leiksins á eigin persónum.
Leikurinn verður gefinn út á næsta ári, 2012 og mun heita Supreme Court Killers; where you decide the fate of your jury!

Auglýst eftir rúðubrotum - Landakotsskóli


Rúðubrot eru í dag mikilvægur hluti af menningu Landakotsskóla og kaþólska biskupsembættisins á Íslandi.
Landakotsskóli auglýsir eftir rúðubrotum. Allir sem rúður geta brotið eru velkomnir til þess að prufa rúðurnar í skólanum.
Vatíkanið eða biskup kaþólskra munu greiða fyrir en biskup kaþólskra hefur þegar fengið sinn fyrsta ráðlagða dagskammt af rúðubrotum.
Ekki náðist í símasamband við Benedikt Páfa út af málinu þar sem páfi var í óða önn að reyna að sannfæra breska kaþólikka um að hann hafi enga vitneskju um það hvort tunglið kynni að vera dauðastirni.