Popular Posts

Tuesday, January 31, 2012

MELASKÓLI Í REYKJAVÍK AUGLÝSIR.........

Vegna fjölda áskorana höfum við ákveðið að taka aftur upp að nýju námskeiðið ´kennsla í meðhöndlun hnífa fyrir 12 ára´. Áhugasamir um þáttöku eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir 13 mars næstkomandi......

Virðingarfyllst,

Stjórnin......

Áríðandi tilkynning frá Hæstarétti

HÆSTIRÉTTUR VILL VINSAMLEGA OG KURTEISISLEGA KOMA SKILABOÐUM Á FRAMFÆRI TIL DÓMARA OG LÖGFRÆÐINGA AÐ ÞAÐ KOSTI 100,000 KRÓNUR AÐ HERMA EFTIR OFSAHRÆDDU FÓLKI.
EF T.D. ER HERMT EFTIR BIRNI BJARNASYNI , GÆTI ÞAÐ KOSTAÐ 100,000 KRÓNUR.
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON ÞARF EKKI AÐ PANIKKERA - HANN GETUR SKRIFAÐ GREIN Í MORGUNBLAÐINU OG LÝST SJÁLFANN SIG SAKLAUSAN AF HVERRI EINUSTU ÁSÖKUN SEM BORIN HEFUR VERIÐ Á HENDUR HANS.
Við verðum úti að æfa okkur í fótbolta og handbolta og frjálsum íþróttum í næstu viku.......ef einhver tapar , EKKI FYLLAST OFSASKELFINGU , EÐA VIÐKOMANDI VERÐUR RUKKAÐUR UM 250,000 KRÓNUR!!!!

Tuesday, January 24, 2012

Það vottast hér með að ég sé ekki hættur við að draga áætlun mína til baka.....

Um að halda áfram , og hætta þar með ekki við , og staðfesta þar með að ég sé ekki hættur við.......

Nokkrum klukkustundum seinna hætti ég við........

Nokkrum klukkustundum seinna hafði ég lýst yfir að það eigi að draga ákæruna til baka......

Hætta við að draga ákæruna til baka......

Halda áfram að draga ákæruna til baka.......

Hætta við.........

Halda áfram.........

Hljómar þetta ekki svona pínulítið eins og biluð grammófónplata?

Monday, January 16, 2012

Topp 10 hlutir til að segja við George Orwell þegar hann snýr aftur......

George Orwell er eitt af mestu mikilmennum 20. aldar
nr. 10. Ef Noam Chomsky og þú hyggjast koma til Íslands saman í heimsókn , er ykkur bent á að Hverfisgata sé sérstaklega hættuleg um þessar mundir því þar hefur nýlega Ka - Boom klúbburinn verið stofnaður. 
nr. 9. ´Police State , Volume 4 er enn fáanleg á amazon.com.´
nr. 8. ´Mér þykir það hræðilega leitt herra minn að þú skulir ekki hafa snúið aftur þegar Carl Sagan var á lífi - þú ert mörgum árum of seinn fyrir bein kynni af hr. Sagan´......
nr. 7 - Ef þú ert að íhuga að skreppa til Norður Afríku - engir svartir nashyrningar sjáanlegir svo vitað sé.
nr. 6 - Ég var EKKI á fyrirlestrinum hjá Noam Chomsky - ég var að vinna og hafði einfaldlega ekki tíma til að mæta
nr. 5 - Ætlarðu að sjá nýju strumpamyndina? SKYLDUMÆTING!!!!
nr. 4 - Verður gert framhald af 1984?
nr. 3 - hver á að sjá um heimilishaldið hjá þér?
nr. 2 - borðarðu börn?
nr. 1 - Vantar þig vinnu? Þú getur fengið hlutverk í Walking Dead þáttunum!!

Sunday, January 15, 2012

Spámiðill reyndist spákaupmaður.......visir.is

Herra Maggoo óskar öllum spákaupmönnum gleðilegt nýtt og farsælt komandi ár......

Visir.is vill vinsamlega koma á framfæri þeirri leiðréttingu að auglýsing um spámiðli vísi í raun til spákaupmanns.
Vísir biður alla sem hafa orðið fyrir óþægindum vegna innihalds auglýsingarinnar afsökunar.