Popular Posts

Tuesday, May 29, 2012

Dýrahjálp Íslands ættleiðir skynlausar skepnur

Dýrahjálp Íslands hefur ættleitt nokkrar skynlausar skepnur sem léku lausum hala í Alþingishúsinu á dögunum og meinuðu Íslendingum að njóta kosningarréttar síns samkvæmt drögum að þingályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í tengslum við Evrópusambandið.
Ein þessara skynlausu skepna er mikill aðdáandi Bradley Manning og heldur enn í vonina um að geta fært mannkyninu áþreifanlegar sannanir þess efnis , að Bradley Manning sé til. Svo kannski er hún ekki skynlaus eftir allt saman.......
Bandarísk stjórnvöld harma að Íslendingum gangi illa að stýra skepnuhaldi enda eru þau mikið baráttufólk gegn góðri meðferð á dýrum. Skepnurnar reyndust illa haldnar af vitskerðingu og því var ráðist í að ættleiða þær og koma þeim fyrir hjá einhverjum sem gætu ráðið við það erfiða starf að halda þeim við.

Thursday, May 17, 2012

Dúdúfuglar halda fyrirlestur í HÍ um ágæti þess að borða það sem fyrirfinnst á ruslahaugum

Dúdúfuglar brautskrást gjarnan úr HÍ með ýmsar gráður með það að markmiði að herja á landann með sinni útdauðu hugmyndafræði.


Nokkrir dúdúfuglar hafa hreiðrað sig um í Háskóla Íslands og haldið fyrirlestur um ágæti þess að lifa á rusli einu saman í stað holls og góðs mataræðis.
Ljóst er að dúdúfuglarnir eru staddir mörgum árum á eftir sinni samtíð og neita að nútímavæðast eins og íslenskir samborgarar sínir.
Umhverfisráðuneytið fagnar dúdúfuglunum enda lifir það sjálft í fortíðinni í stað þess að lifa í nútímanum.
Umhverfisráðuneytið telur að mikilvægara sé að dúdúfuglar í stað manneskja brautskráist með gráður í Háskóla Íslands og haldi fyrirlestra um hluti sem engu máli skipta fyrir íslenskt samfélag , svo sem t.d. erfðabreytt matvæli í stað hluta sem skipta máli fyrir íslenskt samfélag , svo sem afleiðingar íslensku efnahagskreppunnar.
Ljóst er að kreppa ríkir í hugmyndafræði hjá Umhverfisráðuneytinu og Umhverfisráðherra og engin ástæða þykir til þess að taka fólk alvarlega sem þar starfar.
Dúdúfuglar hafa mjög gaman af öllu sem er útdautt , enda ekki nema von , og því heillast svo  margir þeirra af útdauðri hugmyndafræði.
Hver man ekki eftir  ´Doom on you´dúdúfuglunum í Ice Age?
Mikið voru þeir æðislega sætir og þurfti reyndar engann Harold Camping til að leiðbeina sér í gegnum lífið og tilveruna eins og hún var á Ísöld.
Bæbæ dúdúfuglar. Það var gaman að ykkur á meðan þið lifðuð en þið eruð ekki nógu stór kjúklingabiti fyrir mig......


Saturday, May 12, 2012

Hvurs lags eiginlega er þetta???!!??????

Óskaplega finnst mér það vera ómerkilegt af fólki að saka alla rappara í heiminum um að vera með karlmennsku. Ef allir rapparar í heiminum eru með óþarflega mikla karlmennsku þýðir það samkvæmt ógildri röksemdafærslu viðkomandi að þar með talið hlýtur það að vera svo , að allir rapparar sem eigi eftir að fæðast í heiminum séu karlmenn og séu haldnir karlrembu. Hvað þá í andskotanum með þá rappara sem eru konur? Ætlar þessi kona virkilega að gerast svo ómerkileg með sig að taka allar hinar konurnar út úr myndinni? Er allt í lagi með hana? Hvaða alvitri sérfræðingur í rapparafræðum heldur hún eiginlega að hún sé? Getur hún þá ekki alveg eins sagt að Rap sé rappari og sé fullur karlrembu?
Hvernig myndu þá Rip og Rup bregðast við?
Er allt í einu það að ropa orðið að karlrembu líka? Ég er helvítis fokkíng karlremba og er bara stoltur af því , en ekki er þar með sagt að ég fyrirlýti eða sé á móti konum. Svo virðist hins vegar sem þessi kona telji að stór hluti rappara sé á móti konum og fyrirlíti þær og álýti allar karlrembur hata konur sem er tómt rugl. Staðreynd málsins er að sumir karlkyns rapparar hljóta óneitanlega að vera á móti konum en ekki þar með eins stór hluti og hún vill töfra fram. Hvernig væri að hún töfraði fram kanínu úr kassa en eitthvert ímyndað karlrembusvín? Hvernig væri að landsmenn færu að bera meiri virðingu fyrir sjálfum sér en svo að þeir fari að gagnrýna alla rappara heimsins fyrir það eitt að sá fjöldi þeirra sem sé karlmenn hafi vogað sér að hafa framið þann alvarlega glæp að opna kjaftinn. Hvað er svona mikil karlremba við það að vera rappari og vera alvöru karlmaður? Hefur þessi kona t.d. beðið Snoop Dogg afsökunar? Hefur hún beðið Tu Pac afsökunar? Hefur hún beðið aðra rappara afsökunar sem hún hefur sakað um að vera karlrembusvín fyrir það eitt að vera karlmenn og hafa gaman af því að syngja? Hvernig væri að manneskjan bara skammaðist sín líkt og ég er farinn að gera eftir hin ýmsu prakkarastrik og alvarleg afglöp sem ég hef framið undanfarin ár af minni annars viðburðaríku ævi? Hún talar eins og að það sé allt í einu orðið glæpsamlegt athæfi að vera rappari , að vera þeldökkur og að hafa gaman af því að vera karlmaður eða að vera af öðru litarhafti.
Hvernig væri að manneskjan léti rappmennskuna einfaldlega eiga sig , getum við ekki alveg eins kallað hana kvenrembu? Ég held það. Ég held að þetta sé nú meira helvítis kvenrembukjaftæðið í manneskjunni að láta svona! Oj bara!!

Friday, May 4, 2012

Dauðinn tekur þátt í alþjóðahugleiðsludeginum



Dauðinn vill minna alla á mikilvægi þess að taka þátt í alþjóðahugleiðsludeginum.
Dauðinn mótmælir alþjóðahugleiðsludeginum engu að síður og finnst sú hugdetta að allir eigi að hugleiða saman á sama tíma vera gersamlega vonlaus , enda verði á einum stað á jarðkringlunni einfaldlega alls enginn hugleiðsludagur þó hann verði á öðrum stað þó að menn verði ósammála og lýsi yfir á báðum stöðum að hugleiðsludagurinn hafi runnið upp.
Dauðinn telur að hugleiðsludaginn  hafi því þegar dagað uppi........