Popular Posts

Thursday, August 16, 2012

Curiousity lentur heill á húfi á Sprengisandi.......

Charles Bolden hefur mikla unun af því að fela sig. Bolden er til vinstri á meðann félagi hans er til hægri og veltist um af hlátri. Það kostar nefnilega yfir 2 milljarða peningasóun að sannfæra Bolden um ágæti ferðar , sem að öllum líkindum , hefur aldrei átt sér stað.

Jeppinn Curiousity lenti heill á húfi á Sprengisandi á dögunum. Framkvæmdastjóri Bandarísku Geimvísindastofnunarinnar var full bjartsýni á hversu vel verkefnið hafði gengið.
Aðspurður um aðkomu Íslendinga að hönnun Curiousity segist framkvæmdastjórinn dást að verkfræðikunnáttu Islendinga.
Charles Bolden framkvæmdastjóri er gjarn á að fela sig og sést því ekki alltaf á skrifstofunni þegar leitað er að honum , t.d. í viðtöl vegna heimildarmyndbanda og fréttaefnis tengdu NASA.
Sprengisandur er í bakgrunni myndarinnar en Marsbúar eru miklir unnendur Sprengisands og álíta hann eina af fegurstu náttúruperlum Íslands , enda nauðalíkur dæmigerðum hluta af yfirborði Mars.....
Aðspurður hvort að Curiosity hafi ekki átt að lenda á Mars svaraði Bolden ´ég borða ekki Mars. Ég held mig við Twix.....´.