![]() |
| Imrad Karma klórar sér í kollinum yfir orðrómum og stöðugu umtali þess efnis að hann heiti Dalai Lama. |
Dalí segist ekki skilja allt þetta tal um að hann sé Dalí Lama og segir að sér finnist hundleiðinlegt allt þetta rugl um að það séu einhver tengsl á milli hans og lömunarveiki í íslensku tungumáli.
Dalí Lama hefur sagt í fjölmiðlum á Indlandi að sér finnist leitt hvernig Íslendingar finni honum allt til foráttu ´nema Birgitta Jónsdóttir og nokkrir aðrir sem ég hef hitt í landinu´.
Aðspurður hvernig Ísland lýti út sagði hann ´það lýtur út eins og pizza sem þú skvettir vatni á.´.
Imrad Karma hyggst gefa út ævisögu á næstu misserum þar sem öll mistökin í tengslum við stafsetningu og framburð á nafni hans verða leiðrétt.
Imrad Karma fordæmdi ítrekaðar tilraunir fjölmiðla Vestanhafs til þess að halda í það sem hann segir vera þá goðsögn, að hann sé Dalai Lama.
Fylgjendur ´Dalai Lama´um allan heim skiptast nú á skoðunum um það hvort að Imrad eigi að halda nafni sínu eða heita Dalai Lama.
