Popular Posts

Wednesday, June 12, 2013

Fyrrverandi kanadískur varnarmálaráðherra greinir frá 5 tegundum strippdansara og dramadrottninga

Fyrrverandi kanadískur varnamálaráðherra hefur greint frá 5 tegundum strippdansara og dramadrottninga sem hann og félagar sínir telja sig hafa uppgötvað. Aðallega er um að ræða bjána sem þykjast vera uppljóstrarar en eru það ekki, youtube strippdansmeyjar, dailymotion strippdansmeyar, og andsamsærissinna. Andsamsærissinnarnir eru fyrsta tegund dramadrottninga sem hefur hingað til verið sérstaklega skilgreind til þeirra ættar að mati kanadískra vísindamanna sem hafa fylgst náið með stórmerkilegri hegðun þessara furðulegu og fjölskrúðugu og skrautlegu lífvera....

Friday, June 7, 2013

Nibiru flytur eftir mikið rifrildi og of miklar væntingar í sinn garð

Nbiru hefur verið heimsendarsinnum mikið yrkisefni. Athygli reikistjörnunnar beinist nú að Keflavik Music Festival hátíðinni.
Reikistjarnan Nibiru hefur ákveðið að yfirgefa sólkerfið eftir fullt og allt eftir að hún komst að þeirri niðurstöðu að mannkynið væri komið í kerfi út af öllu ruglinu um hana. Nibiru hefur haft samband við Sky & Telescope og bað um að einkalíf sitt verði virt. Ritstjóri Sky & Telescope hefur tjáð reikistjörnunni að það sé ansi erfitt því fjöldi stjörnusjónauka sem notaðir eru á Jörðinni sé ómældur. Nibiru brást óvkæða við þessum fréttum og hótaði því að hún myndi láta rigna eldi og brennisteini yfir Keflavik Musical Festival. Ákveðið var að hún skyldi smakka Snickers og eftir það var málinu kippt í lag. Nú gengur Nibiru á nýrri braut umhverfis allt annað sólkerfi og líður bara vel eftir atvikum. Nibiru er að sögn enn ósátt við alla þessa óskaplega leiðinlegu og þunglyndislegu umræðu um sig enda eru margir sammála reikistjörnunni þess efnis að nú sé komið nóg. Góðu fréttirnar eru þær að nú eru allir byrjaðir að tala um trailerinn á Insidious 2 og Nibiru er þakklát framleiðendum myndarinnar og gefur Keflavik Musical Festival 24 klukkustundir til að standa sig í stykkinu svo að aðdáendur myndarinnar fái notið sín í September þó myndin tengist á engann hátt Keflavik Music Festival.