Popular Posts

Thursday, May 14, 2015

Atvinnuveganefnd alþingis skrapp til steinaldar fyrir stuttu

Atvinnuveganefnd alþingis skrapp til steinaldar fyrir stuttu. Atvinnuveganefndin upplýsti á fésbókarsíðu sinni að lífið á steinöld sé litríkt og fagurt en mjög ofbeldisfullt. Þar úir og grúir allt af moldarkofum og átti starfsfók og yfirmenn erfitt með að yfirgefa moldarkofana. Að lokum fór svo að menn þurftu að skreppa í tímavélina til að snúa aftur til vors tímabils þó íslenska þjóðin lýti svo á að hún þurfi ekkert á þessu apparati að halda.

Wednesday, March 25, 2015

Hamingjusöm líkrómantík.......

Tvö lík fundu hvort annað á undanförnum misserum og eru yfir sig hamingjusöm.
Eigandi þeirra sem býr í Breiðholti er stoltur af líkunum og segist aldrei hafa séð svona hamingjusöm lík og neitar að láta grafa þau í kirkjugarði.
Eigandinn fer í hjólreiðar og bíltúra með líkin sín og svo virðist sem Breiðholtsbúar taki því með stökustu ró.

Vigdís Hauksdóttir ætlar á ´It Follows´

Vigdís Hauksdóttir ætlar að sjá kvikmyndina ´It Follows´og segist sannfærð um að aðahlutverkið sé gallharður Framsóknarmaður.
´Jájá, ekki spurning, hún er full af þvaðri og kleifhugi alveg eins og við. Eina stundina lifir hún í annara manna hugarheimi og aðra stundina heldur hún að einhver allt annar en hún lifi í sínum hugar heimi. Þetta lýsir hugarástandi Framsóknarmanns bara mjög vel og því er það skylda sérhvers Framsóknarmanns að sjá þessa mynd´.
Aðspurð hvort áhugi hennar á myndinni valdi ekki atkvæðatapi fyrir flokkinn segir hún að það komi ekki til greina, enda komi áhugi á kvikmyndum flokksfylgi ekkert við.
´En kvikmyndum um fólk sem lýgur þegar það heldur því fram að það sé með öllum mjalla?´

Líkfundur reyndist misskilningur......

.

Thursday, January 1, 2015

.

.

Engar sýningar á VHS 3 í því neðra

Öllum kvikmyndahúsum í helvíti hefur verið tilkynnt að engar sýningar fari fram á VHS 3 þar sem í ljós hafi komið að myndin þyki ömurleg.
Í staðinn stendur til að sýna 6 klukkustunda langa heimildarmynd sem heitir ´brjáluð veröld´þar sem safnað er saman alls kyns úrklippum af fréttaefni og fólki sýnt í hvernig veruleika það lifir.
Þeim sem mest var skemmt yfir myndinni var skrattanum svo ekki er nema von að hún hafi á endanum orðið fyrir valinu.