 |
| Egill Skallagrímsson í vígahug |
Alfred Kinsey , einn af almestu og af mörgum talinn alverstu sjerfræðingum á sviði kynlífs og einkamála í USA hefur ákveðið að ganga aftur og herja á höfund heimildarmyndarinnar
The Kensey Syndrome.
Á miðilsfundi sem haldinn var á vegum Sálarrannsóknafjelags Akureyrar kom Kensey í gegn og kvartaði sárann yfir því hvernig farið væri með sig og sitt orðspor í myndinni.
Færustu sjerfræðingar og draugabanar Sálarannsóknafjelags Akureyrar komust hins vegar að þeirri niðurstöðu að allar gagnrýnisraddirnar hefðu haft rjett fyrir sjer.
 |
| Kinsey á sínum yngri árum |
|
´Veit þá allur heimurinn núna um sjálfsmorð mitt út af einu bjevítans erkifífli?´spurði hann formann Sálarrannsóknafjelagsins.
´Að sjálfsögðu. En þér eruð hér með leiðrjettur með áherslu á að fleiri en eitt ´erkifífl´viti um þetta mjög svo rómaða sjálfsmörð yðar´.
´Ég er orðinn þreyttur á því að vera kallaður nöfnum í raunheimum og fer fram á að það verði einungis heimilt á www.hugi.is!´
Því miður var ekki hægt að verða við beiðni Kinseys , og var Kinsey m.a. spurður hvernig A. Crowley hafi það.
´Ei veit ég mikið um það , en jeg hef átt vingott við Egil Skallagrímsson undanfarið og finnst hann skemmtilegri en þessir bannsettans drullusokkar sem eru að búa til allar þessar nútímaheimildarmyndir´.
´Áttu þá við þessa um menn sem elska drengi?´
´Nei , hún er gamaldags en var að vísu - æ nei , ein af þessum undantekingum. Afsakið!´
Nakti maðurinn til vinstri er Kinsey á yngri árum , en væntanlega mun hann þá ekki hafa uppgötvað Egil Skallagrímsson. En það vottast hjer með að öruggt sje að Halldór Kiljann Laxness hafi uppgötvað Kensey og er til eintak af bók hans í bókasafni nóbelsskáldsins um eðlisorsakir kynhvatar karla.
 |
| Kinsey lýtur um gluggan við dyr Sálarrannsóknafjelagsins. Eins og sjá má er Kinsey afar ósáttur. |