Popular Posts

Sunday, February 27, 2011

Alþingi flytur til Krysjuvíkur eftir 70 pólitíska jarðskjálfta

Nóg að gera á ólagaheimilinu

70 pólitískir Jarðskjálftar hafa herjað á Krysjuvík fyrir stuttu svo að Katrín Jakobsdóttir og Ögmundur Jónasson hafa ákveðið að flytja Alþingi til Krysjuvíkur með það að markmiði að upplifa og stunda rannsóknir í samstarfi við Steingrím J. Sigfússon jarðvísindamann og ráðherra á leiðum til að auka lýkur á að fleiri pólitískir jarðskjálftar komi upp á svæðinu.
´Jeg er að búast við pólitísku eldgosi , svo að mjer leiðist heima í Reykjavík og er ættaður utan af landi og þar af leiðandi ekki nema von að jeg sæki þangað af og til.´
´Er það rjett að þú ætlar að stofna e.k. framleiðslu - og rannsóknamiðstöð á sviði pólitískra jarðskjálfta?´spurðu fulltrúar Pólitísku Jarðskjálftarannsóknarmiðstöðvar Íslands Steingrím laust fyrir kl. 9 í morgunn.
´Já. Það er alveg hárrjett. Jeg er þegar búinn að leggja fram drög að 480 milljarða króna fjárframlögum til húsakaupa á Flórída´.
´En það er auðvitað langt í burtu frá Krysjuvík´.
´Að sjálfsögu. Það eru meiri pólitískir jarsðkjálftar í Kryskjuvík heldur en á Flórída en mjer finnst auðvitað skemmtilegra að ferðast um Krysjuvík á jeppa heldur en að fara með flugvjel til Flórída svo jeg flutti milljarðana til Flórída til að auka á spennuna í þjóðfjelaginu og þar með líkurnar á að meiri pólitískir jarðskjálftar komi í kringum Krysjuvík´.
´En eru ekki 70 pólitískir jarðskjálftar nóg og vart sálu að finna af pólitíkusi nema þig og Katrínu á svæðinu?´
´A skítt með það maður , við vorum blindfull þegar við vorum á leiðinni og fáum líklegast timburmenn í fyrramálið sem hefur í för með sjer auknar líkur á meiri pólitískum Jarðskjálftum og svo vill jeg að sjálfsögðu bæta við að Alþingishús og Stjórnarráð verði flutt á þetta svæði´.
´Af hverju?´
´Nú hvað sýnist þjer maður? Þetta er hápólitískt jarðskjálfta svæði. Heldurðu að vjer Alþingismenn nennum eitthvað að vera meira í Reykjavík eftir öll þessi fjöldamótmæli og múgæsingu?´
´En nú eru engir pólitískir aðilar starfandi á svæðinu nema þið.´
´Auðvitað ekki. Þegar hinir koma taka þeir vandamálin með sjer og þá eykst fjöldaframleiðsla pólitískra jarðskjálfta og mótmælendurnir geta gert Alþingisreitinn að garði á ný´.


No comments:

Post a Comment