Popular Posts

Saturday, October 29, 2011

Nýja varðskipið kom til Færeyja of seint - þegar búið að yfirtaka þær

Fórnarlömb sýklaárásarinnar eru til hægri. Framkvæmdastjóri eldflaugatilraunarinnar er til vinstri.

Eldflaugum með sýklavopnum var skotið til Færeyja fyrir rúmum 4 klukkustundum síðan með það að markmiði að yfirtaka eyjarnar, og munu Reykvíkingar bíða spenntir eftir niðurstöðum rannsókna okkar færustu vísindamanna og sérfræðinga í sýkla - og efnavopnahernaði á afleiðingum árásarinnar.
Hin ægilega árás leyndi sér ekki, margir Færeyjingar misstu heimili sín og allt atvinnulíf í Færeyjum er lamað.
Talið er að marga mánuði taki að byggja upp aftur stjórnkerfi landsins frá grunni. Sameinuðu Þjóðirnar hafa fordæmt árásina og hefur Íslendingum verið hótað úrsögn úr Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna sem og Sameinuðu Þjóðunum sjálfum.
Danska konungsfjölskyldan hefur fordæmt árásina og segir hana heimskulegasta athæfi sem Ísland hefur nokkrum sinnum staðið fyrir.
Eldflaugunum var skotið á Keflavíkurflugvelli skömmu fyrir tilkynningu sem hafði borist út á Facebook þess efnis að vort glænýja varðskip hafi yfirtekið Færeyjar.
Skipstjóri nýja varðskipsins var auðvitað vonsvikinn að heyra að einhver hafi verið á undan. 

No comments:

Post a Comment