Popular Posts

Monday, October 10, 2011

Krefjast skýringa hjá vísindasamfélaginu - Vantrú, Siðmennt og Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar.....

Vantrú, Siðmennt og Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar funda um hvað fór úrskeiðis varðandi Landeyjarhöfn í logandi leit að hárnákvæmum og rökréttum skýringum.Er það kannski hreinlega málið að Landeyjarhöfn kemst ekki fyrir í Landeyjarhöfn?



Vantrú, Siðmennt og Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar hafa krafist alls herjar vísindalegrar og hárnákvæmrar skýringar frá konunglegu bresku vísindaakademíunni þess efnis nákvæmlega hvað fór úrskeiðis í tengslum við Landeyjarhöfn.
Ýmiss konar kunnuleg og minna en kunnuleg svör hafa borist, frá Lagarfljótsorminum, til Monsoon vinda og jafnvel reiði Jarðarinnar.
Meira að segja Magnús H. Skarphéðinsson sjálfur hefur verið nefndur sem skýring.
´Það er klárt mál að við erum ekki búin að fylla mælinn hjá okkur ennþá í leit vor að hárnákvæmum og rökréttum og skynsamlegum skýringum á því nákvæmlega hvað fór úrskeiðis´sagði formaður Vantrúar í viðtali við Reykjavik Grapewine á dögunum.
Richard Dawkins hefur fengið fyrirspurn frá Vantrú ásamt Stephen Hawking og Roger Penrose, en enginn þeirra hefur gefið nein svör við því hvert er sitt álit á hvað kynni að hafa farið úrskeiðis í þessu sérstaka tilfelli Landeyjarhafnar og Herjólfs.




No comments:

Post a Comment