Popular Posts

Tuesday, October 25, 2011

Okkúp - æ æ og ó!!

Voðalega finnst mér þetta leiðinleg og vitlaus ´mótmæli´hjá Occupy ´hreyfingunni´sem er ekkert annað en eitt af sköpunartólum Soros nokkurs sem er einn af þekktustu stuðningsmönnum heimsvaldsstefnu í heiminum.
Ég er ekki bara að tala um Occupy heldur Anonymous og Wikileaks - allt plat og hannað með það að markmiði að fá fólk til að halda að það hafi verið valið af frelsinu sjálfu til þess að þröngva þrælahaldi upp á sjálft sig og alla - sama þrælahaldinu og það sjálft er og hefur alltaf verið á móti eða hefur sagst vera á móti.
Allt þetta Occupy æði endaði sem sagt í eintómri endaleysu, vitleysu og þvælu.
Og fólkið sem ber ábyrgð á þessu ruslaraliði ætti að skammast sín. Þau ættu að skammast sín fyrir að vera skítseiði sem skipta alþjóðasamfélagið í raun engu raunverulegu máli - því það sem skiptir aljþjóðasamfélagið í raun máli, er afmiðjun og allar leiðir til þess að koma samfélaginu á fót aftur og þjóðvæðing banka.
Fólk þarf að þjóðvæða banka meira og reka þá á svipuðum nótum og Gaddafi gerði - með það að markmiði að bankar eigi að vera leiðir fyrir fólk til að fá peninga en ekki gera það þannig að það treysti ekki hvert öðru.
Það er þegar byrjað að skamma þessa hreyfingu, og skammirnar munu halda áfram, og hún mun falla.
Julian Assange er fallandi stjarna en ekki rísandi, og stjörnur þessara hreyfinga eru fallandi á sömu braut og stjarnan Julian Assange sem getur ekki endað öðruvísi en með einum alls herjar árekstri.
Við, fólkið á Jörðinni eigum að sýna hinum sem eru þarna úti, að við höfum ábyrgðartilfinningu gagnvart litla fallega bláa hnettinum sem við búum á, og það getum við ekki gert svo lengi sem menn láta rugludalla og nytsama fávita eins og Occupy segja sér fyrir verkum í stað þess að stinga þeim í skáp og hafa þá þar og leyfa þeim að arga út úr sér allt argið og gargið.
Rétt er að Occupy er Hollywood kvikmynd - ég gef henni eina stjörnu.



No comments:

Post a Comment