Popular Posts

Saturday, October 22, 2011

Vill Hinn Gullna Meðalveg um Lyngdalsheiði - Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins

Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins er orðinn landsmönnum vel kunnur eftir að hafa lýst yfir mikillri aðdáun á starfsemi Vegagerðarinnar.
Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins hefur sent Ögmundi óþekka bréf með beiðni þess efnis að vegur á tilteknu svæði á Vestfjörðum verði skýrður ´Hinn Gullni Meðalvegur´.
Hinn Gullni Meðalvegur á að þvera svæði sem umdeildur vegur hafði átt að þvera síðast, og ráð Ögmundar óþekka þóttu eitthvað vafasöm í því tilfelli en ljóst er að Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins lifir greinilega ekki í nútímanum frekar en Ögmundur, því að það er komin 21sta öldin og þá skrifa menn bækur eins og UFO how to þar sem farartækjum er lýst sem krefjast einfaldlega alls engrar veganotkunar - þar með eru öll vegavandamál leyst.
Meðal þeirra sem hafa talað um útrýmingu frekar en fjölgun vega, er Dr. Steven M. Greer.
Hvað gera Vestfirðingar nú? Munu þeir fylgja ráðum Vegarins, Ögmundar, eða Stebba vegalausa?
Á öndverðum meiði - Stebbi vegalausi lifir í nútímanum og hefur haldið mikið af fyrirlestrum að undanförnu, m.a. um hina fögru, ´nýju´vegalausu veröld......hann hefur farið fjölfarinn veg og ferðast um ótroðnar slóðir í rannsóknum sínum, m.a. á vegaleysi og afleiðingum þess á samfélag Inúíta......

No comments:

Post a Comment