![]() |
| Einn lesenda bréfs Jóhönnu - þessi lesandi starfar þó ekki í forsetaembættinu. |
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur fengið höfnunarbréf frá Ólafi Ragnari Grímssyni forseta í kjölfar tilraunar hennar til að senda bréf til forsetans þar sem hún hafði farið fram á að forsetinn gengi í nýstofnaðan klúbb hennar.
´Ég hef engann áhuga á þessu helvítis, andskotans rugli og þvaðri í þér´sagði Ólafur, og bætti við ´Hurðaskellir yrði betri forsætisráðherra en þú - ekkert bull, bara hurðaskellingar!´
Forsetaembættið lýsti yfir leiðindum og pirringi með ruglinu á forsætisráðherranum sem virðist greinilega ekki hafa litið nýlega á dagatalið sitt til að kanna hvaða ár er - nefnilega, ár 2011.
Forsetaembættið fer fram á að forsætisráðherra skoði dagatalið sitt á hverjum degi.
´Það voru nokkur okkar sem sáu bréf forsætisráðherra og við skiljum að hún er full fær um að skrifa bull - pósta´segir starfsmanneskja forsetaembættisins í viðtali við Monitor um málið.
Forsætisráðherra hefur fengið fjöldamarga pósta með beiðnum þess efnis að nöfn sendenda verði ekki bætt á lista væntanlegra meðlima Vælukjóaklúbbsins.......

No comments:
Post a Comment