Annað hvort/ eða. Annað hvort líkar þér vel við starfið þitt og þú vinnur það af dugnaði og hörku, eða ekki. Ef ekki, segðu því þá lausu.
Það vottast hér með að forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu eru enn í umræðunni. Einhver bullukollur úr Besta Flokknum skrifaði annars mjög vel málfarslega vandaða grein með skynsamlega framsettum röksemdafærslum gegn þessari arfavitlausu rannsóknaheimild lögreglu. Vegna þess hversu vitlaus og heimskuleg hugmyndin þykir, finnst svonefndum Áttmenningum það bara allt í lagi og besta mál að leggja hana fram, þó að þegar hafi verið njósnað um einn þeirra.
Ljóst er að þessir heimsku Áttmenningar lifa á myrkum miðöldum en ekki á 21stu öldinni.
Mér finnst allt í lagi að vera á móti ESB enda er ég dyggur stuðningsmaður Evrópu og þeir sem styðja ESB hata í raun Evrópu og evrópska hagsmuni og allt sem Evrópu við kemur.
Nú þykir ESB ekki lengur í tísku, íslenska krónan er aftur komin í tísku, og Davíð virðist mér enn vera lúinn og þreyttur á stjórnmálum enda eðlilegt. Það er leitt að svona skuli hafa farið - að Alþingi skuli hafa misst trúna á getu sinni til að starfa sem stofnun, og að íslenska lögreglan sé að fara sömu leið.
Gott og vel, verum þá ekkert að borga þessu liði. Þetta er okkar fyrirtæki, þeir eru starfsmenn þess, þeir hafa brotið reglurnar, og þeir skulu borga fyrir sig.
Hætta að nenna að vinna störf sem þeir nenna hvort eð er ekkert að vinna í - annað hvort er það að vera alþingismaður starf sem þú ræður við eða ekki, menn eiga ekki að þurfa að sjá ástæðu til þess að láta óánægju með starfið sem þeim var veitt upp í hendurnar bitna á öllum hinum, hvort sem þeir eru 350000 eða 450000 eða meira manns eða kvenmanns.
Bókstaflega. Basta.
Takk fyrir mig.

No comments:
Post a Comment