Popular Posts

Wednesday, October 26, 2011

Je minni eini!!



Ja hérna hér!
Þetta 2012 lið ætti allt saman að skammast sín!
Þegar þau líta á dagatalið sitt neita þau að trúa því að árið 2012 sé ekki enn komið - slappið af, það eru tveir mánuðir í það.
Í öðru lagi halda þau fram alls kyns þvælu og bábiljum um árið 2012 sem ekkert er hægt að botna í fyrir neinn - bábiljum sem enginn nema einhverjir örfáir nerdar nenna að pæla mikið í.
Hið góða við umræðuna um árið 2012 er allar upplýsingarnar um frábæra ferðamannastaði til að sjá stórbrotin sólarlög.
Hið slæma er allt þetta rusl sem er hent ofan í opið geðið á fólki - ´kaupið þessa vöru um endalok heimsins árið 2012 og þá frelsist þið! Þegar árið 2012 kemur, þá verður þetta allt í lagi - sálir ykkar verða allar þar sem þær eiga að vera´.
Þá hlýtur sálin mín að vera þar sem hún á að vera þá - með báða fæturna niðri á Jörðinni - annars meika menn það bara alls ekki.
Allt þetta yfirþyrmandi 2012 þvaður er bara til þess að valda pirringi og leiðindum en annars auglýsa ágætis staði til að sjá fallegt sólsetur þegar kvölda tekur 22. desember.
Og hana nú!
Drög að tillögu um eitthvað skemmtilegt efni fyrir ríkissjónvarpið út allt árið 2012 - gömlu Brúðuleikararnir. Svona strumparnir okkar, þau ykkar sem eiga DVD eða VHS með gömlu Brúðuleikurunum - endilega skellið þeim inn og leyfið okkur hinum að sjá eitthvað almennilega skemmtilegt sjónvarpsefni það sem af verður þessu ári.
Svo átti að skemma og eyðileggja afmælisdaginn minn með Elenin brotlendingu.
Auðvitað fékk ég nóg, sagði ´hingað og ekki lengra´og Elenin að sögn brotnaði niður á leið sinni til sólarinnar, gefið að þessi Elenin halastjarna hafi nokkurn tímann verið til.
Kannski var ég svo leiðinlegur og svartsýnn að Elenin fannst nóg um og bara gersamlega brotnaði niður. 
Bíðum frekar eftir sumarstórmyndunum sem eiga að vera sýndar í kvikmyndahúsum árið 2012 frekar en einhverjum leiðinlegum fréttum um heimsendi eða einhvern endanlegan samkomustað sálna.
Hvað sálir varðar er enn verið að sýna Bosch og það finnst mér hreint út sagt stórkostlegt og miklu betra heldur en allt þetta leiðinlega þvaður um það hvar á að setja vor sálir þegar menn eru óvissir um það að öðrum kosti.
Hér eru smá kilaboð frá mér til þeirra sem hanga á árinu 2012 og vilja sannfæra alla um að hanga á því í stað þess að lifa hér og nú; skamm! Skamm!

No comments:

Post a Comment