Popular Posts

Monday, May 30, 2011

Lýst eftir klónum af raðmorðingjum

Félag áhugamanna um raðmorð og raðmorðingja auglýsir eftir klónum af raðmorðingjum til dvalar í nýbyggðri húsaröð sem var byggð þvers og kurs og víðs fjarri allri heilbrigðri skynsemi í nálægð Úlfarsfellsdalsins.

Almannavarnir minnka hættuna á öskufalli vegna reiði Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir - hættustig vegna frekari eldgosa frá henni í garð Jóns Bjarnasonar hefur verið minnkað að mati Almannavarna.


Framkvæmdastjóri Almannavarna vill vinsamlega koma fram til íslensku þjóðarinnar þeim skilaboðum, að hættustig vegna öskufalls í garð reiði Jóhönnu og hótunum hennar hafi snarlega minnkað á dögunum.
Mjög alvarleg umfjöllun um samskiptin á milli hennar og Jóns Bjarnasonar að undanförnu vegna kjaftæðiskvótafrumvarps hans, hafi orðið til þess að eldstöðin sem menn urðu varir við og sem vofði yfir Stjórnarráðinu svo vikum skipti, er nú í rénum.
´Það er engu líkara en að búið sé að setja tappa ofan á Stjórnarráðið´stendur í grein um málið á dagbókarheimasíðu forsætisráðherrans.
´Það er jú gott og blessað mál, en það er samt hollt og gott og skynsamlegt að vera gamaldags, með leiðindi og hótanir í garð annara, og þykjast vera alvitur um málefni sem menn hafa enga hugmynd um og halda svo bara áfram þó allir séu búnir að fá sig full sadda af þeim´segir Jóhanna á nýjasta vefpistli sínum.
´En ég er jú auðvitað Íslendingur og við erum alltaf að gjósa svona annars lagið´, bætir hún svo við.

Friday, May 20, 2011

Sjimpansi lærir að ganga uppréttur

Stórmerkilegur viðburður á sviði þjálfunar sjimpansa í dýragörðum - hér kemur sjálfur Dominique Strauss Khan, einn af greindustu sjimpönsunum og sem var meira að segja settur um tíma í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins með tilheyrandi afleiðingum - já, stundum er gott að vera sjimpansi, sérstaklega þegar menn eru vel launaðir og hátt skrifaðir í starfi.


Sjimpansinn Dominique Strauss Khan hefur lært að ganga uppréttur en eftir nokkrar erfiðar tilraunir til þess að kenna honum það hefur hann mannast eitthvað til undanfarin misseri.
Khan hefur það mjög gott og er fóðraður reglulega af sjimpansaþjálfurum Dýragarðarins í París.
Fyrir stuttu var verið að sleppa Khan lausum sem endaði auðvitað með ósköpum en allir sem þekkja hann eru á einu máli sammála um að hann sé einfaldlega mjög elskulegur sjimpansi þrátt fyrir ýmiss konar óhöpp sem komi upp í lífi hans af og til.
Khan hefur verið framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins undanfarin ár en þó í tiltölulega stuttan tíma þar sem að færustu sérfræðingar á sviði sjimpansa og mannfræða ákváðu að koma honum til valda sem liður í tilraun til að sanna að menn og sjimpansar séu skyldir í um 99,9% tilvika.
Strauss Khan er auðvitað fóðraður á banönum en þegar honum er sleppt lausum hefur heyrst að honum finnist stundum gott að gæða sér á hunangi, sérstaklega hunangi sem er rétt honum af sjimpansaþjálfurum sem verða á vegi hans áður en þarf að fara aftur með hann heim.......
Starfsfólk Dýragarðs Parísar vill hins vegar koma á framfæri yfirlýsingu þess efnis að þau harmi tvö atvik sem tengist áhuga sjimpansans á kynlífi en að öðru leyti sé Khan bara býsna vel þjálfaður miðað við marga aðra sjimpansa sem eytt hafa stundum sínum í þessum merkilega dýragarði........

Monday, May 9, 2011

Hitler viðurkennir að hafa hent grjóti í gler á húsi Ögmundar Jónassonar

Kemur fyrir víða um þessar mundir - Hitler viðurkennir fyrir dómi að hafa kastað grjóti í gler á húsi Ögmundar Jónassonar af miklu offorsi til að minna Ögmund á að skrifa afkastamikla bók sem gæti skapað sér jafn mikið fylgi og hann fékk sjálfur í uppgangi nasismans í Þýskalandi.........Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka ákvörðun á næstu misserum hvort áfrýja beri dómnum til Hæstaréttar. Líklega er Hæstiréttur svo fávís að þeir munu vart kannast við hver maðurinn er á myndinni í allri umfjölluninni um grjótkastið ógurlega.......


Adolf Hitler viðurkenndi fyrir stuttu að hann bæri ábyrgð á því að hafa kastað grjóti á gler á húsi Ögmundar Jónassonar.
Hitler útskýrði fyrir viðmælanda Stúdentablaðsins fyrir stuttu að hann hyggist ekki endurtaka þennan leik - hann sé alltaf að leita að einhverju frumlegu og skemmtilegu til þess að gera sem hægt sé að nota í hitlerrantsparodies eða sem sagt Hitler dæmisögum.
Margir hafa verið að velta fyrir sér hver hálfvitinn væri sem stóð að baki grjótkastinu, og stuttu áður en grjótinu var kastað heyrðust dularfull hljóð á þýsku;´sie zuhle ehren!´eða eitthvað svipað, og þar sem þau voru ekki birt í Morgunblaðinu er ekki nema von að fólk hafi velt fyrir sér í svo langann tíma sem raun ber vitni hver grjótkastarinn dularfulli sé.
Allavega er öruggt mál að það er sko ekki Súpermann.......
Ekki alslæmt fyrir Hitler kallinn - nú er hann líka þekktur sem Grjóthnullungamaðurinn.
Blessaður vertu og endurtaktu leikinn næst hjá Angelicu Merckel sitjandi kanslara Þýskalands......

Mótmælir harðlega afskiptum af Kolbrúnu Grasalækni - Hryllingsblómið

Í miklu uppáhaldi hjá stjórnendum hins fallna og úrelta og nauða gamaldags og ómerkilega risa Monsanto - hryllingsblómið ógurlega. Svona héldu yfirmenn Monsanto að allar plöntur ættu að vera og að banna ætti allan fjölbreytileika í gjörvallri fæðukeðju lífríkis Jarðar - skrýtinn sú veröld sem ekta geðsjúkir einstaklingar lifa í........


Hryllingsblómið alræmda úr kvikmyndinni Little Shop of Horrors hefur mótmælt harðlega ákvörðunum ríkisins þess efnis að segja Kolbrúnu grasalækni fyrir verkum.
Hryllingsblómið kann að vera gleymd forynja úr grárri forneskju en staðreynd málsins er sú að það lifir enn í hugum voru og hjörtum, m.a. fyrir að vera þessi einstaklega góði söngvari sem stefnt gat að heimsyfirráðum með því að margfalda sjálfann sig að vild - nokkuð sem Bob Dylan hefði aldrei þurft að gera....

Heita Nú ´Ósköp Venjulegir heimilisfeður´

Þessi ágæti herramaður - hinn alþekkti myndlistarmaður H.R. Giger er eða hefur verið þekktur meðlimur Hell´s Angels samtakanna og styður greinilega tillögu um nafnabreytingu á samtökunum.......


Það vottast hér með að hin ´alræmdu glæpasamtök´eða réttara sagt hin ´svokölluðu glæpasamtök´ Hell´s Angels hava breytt um nafn og titil og sameinast Black Piston Outlaws samtökunum og heita nú ´Ósköp venjulegir heimilisfeður´.
Atburðurinn þykir sögulegur í heimi mótorhjólakappa og hefur H.R.Giger lýst yfir að hann sé alsæll með ákvörðunina og stórfurðar sig á að samtökin Hell´s Angels hafi í raun heitið þessu nafni allan þennan tíma.
´Það var í rauninni bara tímaspurgsmál að breyta nafninu á samtökunum í ´Ósköp Venjulegir heimilisfeður´í stað þess að láta þau heita þessu gamla heiti áfram´segir H.R. Giger í viðtali við Der Spiegel um ákvörðunina.

Eins og sjá má er hér ekki um ´Ósköp venjulegann heimilisföður´að ræða heldur einstakling sem fætt getur lifandi afkvæmi án þess að þurfa að ganga í Hell´s Angels til þess að vera ´Ósköp venjulegur heimilisfaðir´. Hann er meira að segja alvopnaður allan liðlangann daginn og þarf sem betur fer - a.m.k. ekki miðað við það hvar nútíma erfðatækni er stödd - á öðrum vopnum að halda en þeim sem móðir náttúra hefur gefið honum í vöggugjöf.