![]() |
| Jóhanna Sigurðardóttir - hættustig vegna frekari eldgosa frá henni í garð Jóns Bjarnasonar hefur verið minnkað að mati Almannavarna. |
Framkvæmdastjóri Almannavarna vill vinsamlega koma fram til íslensku þjóðarinnar þeim skilaboðum, að hættustig vegna öskufalls í garð reiði Jóhönnu og hótunum hennar hafi snarlega minnkað á dögunum.
Mjög alvarleg umfjöllun um samskiptin á milli hennar og Jóns Bjarnasonar að undanförnu vegna kjaftæðiskvótafrumvarps hans, hafi orðið til þess að eldstöðin sem menn urðu varir við og sem vofði yfir Stjórnarráðinu svo vikum skipti, er nú í rénum.
´Það er engu líkara en að búið sé að setja tappa ofan á Stjórnarráðið´stendur í grein um málið á dagbókarheimasíðu forsætisráðherrans.
´Það er jú gott og blessað mál, en það er samt hollt og gott og skynsamlegt að vera gamaldags, með leiðindi og hótanir í garð annara, og þykjast vera alvitur um málefni sem menn hafa enga hugmynd um og halda svo bara áfram þó allir séu búnir að fá sig full sadda af þeim´segir Jóhanna á nýjasta vefpistli sínum.
´En ég er jú auðvitað Íslendingur og við erum alltaf að gjósa svona annars lagið´, bætir hún svo við.

No comments:
Post a Comment