Popular Posts

Thursday, June 28, 2012

Þroskahjálp viðurkenna ábyrgð - deiliskipulag reyndist þroskaheft

Hópur þroskaheftra sem vill reisa tilgangslausa hótelbyggingu á Ingólfstorgi hefur fengið umkvörtun og viðurkenna Landssamtökin Þroskahjálp að þau beri ábyrgðina á hvað hafi farið úrskeiðis.
Ekki er þar með sagt að framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar sé minna sekt fyrir vikið fyrir að hafa tekið deiliskipulagið fyrir og að því er virðist ákveðið að samþykkja í sumarlok byggingu hótelsins tilgangslausa.
Auðvitað gerðu menn það eina rétta og skynsama í málinu og fengu Þroskahjálp skellinn í fyrsta sinn sem þroskaheftir hafa verið dregnir til ábyrgðar á þroskaheftu deiliskipulagi.
Þroskaheftir hafa dregist mikið í áliti á höfuðborgarsvæðinu sökum þessa.

Saturday, June 9, 2012

Geimverur gera innrás í Lifandi Markað

Geimverur hafa ákveðið að gera innrás í Lifandi Markað en þangað er væntanlegur Stewart Swerdlow á næstu misserum til þess að gerast sérlegur riddari aðdáenda sinna í Wonderland hópnum á Fésbókinni gegn yfirvofandi innrás geimvera.
Eins og gengur og gerist í umræðunni um hina meintu , yfirvofandi innrás er hún ávallt yfirvofandi og þar af leiðandi að áliti sem flestra ekki yfirvofandi í raunheimum.
En sumum langar einfaldlega voðalega mikið til þess að slík innrás sé yfirvofandi í raunheimum því þá hafa þeir eitthvað hundleiðinlegt og illilega bitastætt til þess að tala um.
Geimveruinnrás var skemmtilegt umræðuefni þegar Independence Day nr. 1 var sýnd og verður það vafalaust enn og aftur þegar Independence Day 2 verður frumsýnd.
Alls kyns innrásir hafa átt sér stað á internetinu nýlega , t.a.m. innrás geislavirkra efnasambanda í Norður Indiana í Bandaríkjunum og innrás geislavirkra túnfiska frá Japan.
Mikið er gott að Ísland sleppi undan öllum þessum ægilegu fjölmiðla - geimveruinnrásum.
Við sluppum í Independence Day.
Við sluppum í Prometheusi en Dettifoss slapp að vísu ekki og fyrir vikið varð handritið illa úti og kom út sem samansúrruð hringavitleysa frekar en úturspeisuð geimópera.
Við sluppum í Explorers eftir Steven Spielberg.
Við sluppum í Remote Control.
Við sluppum í Signs.
Við erum alltaf að sleppa hverja illvígu geimveruinnrásina á fætur annari , hugsanlega vegna þess að íslenskan er geimverum svo framandlegt tungumál að þær hreinlega treysta sér ekki til þess að gera innrás á Ísland.
Swerdlow er væntanlegur 20. ágúst n.k. en sem fyrr tjáði hann að hann hafi ekki áhuga á að koma aftur til Íslands fyrir einhverjum árum síðan , svo sagði hann að hann hefði áhuga á að koma og kom , og hefur komið og komið síðan , enda ekki orð að marka það sem hann sagði þá þegar hann hélt fram að hann kæmi ekkert aftur.
Swerdlow finnst ekkert athugavert við að Richard Branson hafi svikið peninga úr fólki með því að bregða sér í gervi David Icke en sem kunnugt er er David Icke að öllum líkindum ekki til , og er frekar líklegri til þess að vera Branson , en manneskja með snefil af áhuga á að berjast gegn hrynjandi heimsvaldsstefnu.
Sem fyrr munum við Íslendingar góðfúslega sleppa undan áhrifum næstu yfirvofandi geimveruinnrásar sem á að gerast sem sagt 20. ágúst n.k. , og við komum alltaf aftur , enda á hin illskeytta og illvíga geimvera , Flosi Mosdal , heiðurinn af þeim fleygu orðum........
´Ég kem alltaf aftur!!´
Sameinuð stöndum vér , neitandi að hlusta meir á ruglið á Richard Branson , og förum vinsamlega og kurteisislega fram á það , að Stewart greini frá því á fundinum , hver Icke sé í raun og veru.......

Wednesday, June 6, 2012

Pétur Pan verði sendiherra........

Bandarísk stjórnvöld vilja Pétur Pan handsamaðan en Pétur Pan er sagður vera stofnandi Wikileaks síðunnar. Meðal aðdáenda Péturs Pans er Birgitta Jónsdóttir , en hún er sannfærð um að það sé siðferðilega rangt að handtaka Pétur Pan og hefur mótmælt handtökutillögum fyrir framan húsakynni bandaríska sendiráðsins að Laufásvegi.

Lögð hafa verið fram drög að tillögu þess efnis að Pétur Pan verði sendiherra.
Markmiðið er að hafa karakter sem ekki er til í raunheimum tilnefndann sendiherra svo ekki þurfi að borga honum.
Hinn uppdiktaði sendiherra mun starfa fyrir sendiráð Ekvador í London en bresk stjórnvöld og lögregla hafa mótmælt tillögunni og sagt hana ógnun við heilbrigða skynsemi.
Sem kunnugt er hefur Pétur Pan ekki komið fram opinberlega og lýst afstöðu sinni til ákvörðunarinnar en það finnst öllum allt í lagi og sjálfsagt mál sem trúa á tilvist Péturs Pans.
Pétur Pan fékk afhend friðarverðlaun nóbelsog stendur til að veita honum pólitískt hæli í þeim löndum þar sem það viðgengst og er álitið sjálfsagt mál að veita uppdiktuðum karakterum pólitískt hæli.
Sem stendur hefur Pétur Pan ekki fengið starf sendiherra enn , og ómögulegt er að segja fyrir um hvort af því verði á næstu misserum vegna húsakynna Péturs Pans. Nema bandarískum stjórnvöldum hafi tekist að finna Hvergiland.......

Meintur barnaníðingur afhentur lögreglu á allra næstu misserum

Lögreglu er hér með tilkynnt að meintur barnaníðingur sem hefur sloppið undan rannsóknum sérfræðinga í barnaníðingum og málefnum þeirra verði afhendur lögreglu á allra næstu dögum.
Barnaníðingurinn er aðeins nokkurra sentímetra hár og fáeinna sentímetra breiður og því þótti svo auðvelt fyrir téðann aðila að komast undan eftirliti lögreglusveita og sleppa þegar að barnaníðingnum var leitað og vitnisburður fórnarlamba þótti frekar ótrúverðugur. Eftir að barnaníðingurinn afplánaði refsingu sína var ákveðið að afhenda hana frekar en hann lögreglu , en um er að ræða konu en ekki karlmann , svo að lögregla gæti prufað aðgerðir á sviði forvirkrar rannsóknaheimildar á barnaníðingnum. Hið alskásta við barnaníðinginn er að hann hreyfir sig ekkert nema hreyft sé við honum , og hefur svo gott sem ekkert að segja , og hefur grjóthaldið kjafti allan tímann síðan téður aðili var sviptur frelsinu tímabundið og látinn sæta rúmlega fimm daga afplánunar.