Popular Posts

Wednesday, June 6, 2012

Pétur Pan verði sendiherra........

Bandarísk stjórnvöld vilja Pétur Pan handsamaðan en Pétur Pan er sagður vera stofnandi Wikileaks síðunnar. Meðal aðdáenda Péturs Pans er Birgitta Jónsdóttir , en hún er sannfærð um að það sé siðferðilega rangt að handtaka Pétur Pan og hefur mótmælt handtökutillögum fyrir framan húsakynni bandaríska sendiráðsins að Laufásvegi.

Lögð hafa verið fram drög að tillögu þess efnis að Pétur Pan verði sendiherra.
Markmiðið er að hafa karakter sem ekki er til í raunheimum tilnefndann sendiherra svo ekki þurfi að borga honum.
Hinn uppdiktaði sendiherra mun starfa fyrir sendiráð Ekvador í London en bresk stjórnvöld og lögregla hafa mótmælt tillögunni og sagt hana ógnun við heilbrigða skynsemi.
Sem kunnugt er hefur Pétur Pan ekki komið fram opinberlega og lýst afstöðu sinni til ákvörðunarinnar en það finnst öllum allt í lagi og sjálfsagt mál sem trúa á tilvist Péturs Pans.
Pétur Pan fékk afhend friðarverðlaun nóbelsog stendur til að veita honum pólitískt hæli í þeim löndum þar sem það viðgengst og er álitið sjálfsagt mál að veita uppdiktuðum karakterum pólitískt hæli.
Sem stendur hefur Pétur Pan ekki fengið starf sendiherra enn , og ómögulegt er að segja fyrir um hvort af því verði á næstu misserum vegna húsakynna Péturs Pans. Nema bandarískum stjórnvöldum hafi tekist að finna Hvergiland.......

No comments:

Post a Comment