Popular Posts

Monday, October 3, 2011

Skatmann Reykjavik City

Skattmann; Reykjavíkurborg, framhald af Skattmann.....


Skatmann: Reykjavik City byggir á grunninum á Skatmann; Kleppur og sendir spilarann í gegnum Reykjavíkurborg sem er nýtt sem hámarksöryggis"heimili" fyrir alla þjófa, glæpamenn og geðsjúka menn Íslands.
Sögusvið leiksins er innan veggja Reykjavíkurborgar, einhvers staðar í miðbæ Reykjavíkur. Leikurinn sem margir aðdáendur Skattmanns hafa beðið eftir kynnir til leiks nýtt lið af klassískum karakterum og hrottalegum illmennum héðan og þaðan úr íslensku samfélagi sem og erlendu, og einnig vítt svið af nýju og bættu leikkerfi til að skila bestu upplifun sem sjálfur Vinstri Grænn Riddari Reykjavíkur.

Leikurinn inniheldur:

- Vertu Skattmann - Skatmann Reykjavik City skilar ósvikinni reynslu sem Skattmann í krefjandi spilun á hverju stigi; erfiðir bardagar við illskeytta mótmælendur, magnþrungin huliðsspilun, dýpri rannsóknarvinnu sérstaks saksóknara, epískir bardagar við ofur - illmenni og ófyrirséð brot inn í truflað líf sjálfs Steingríms J. Sigfússonar - hins upprunalega Skattmann.

- Spilaðu sem Skattakonan - Skattakonan er spilanlegur karater í Skattmann Reykjavíkurborg og hefur hún sinn eigin söguþráð í aðalsöguþræði leiksins sem er samofinn söguþræði Skattmann. Leiðsöguhæfileikar hennar, bardaga (eða réttara sagt sukks, svindls - og svínarístækni), tæki og tól hafa verið sérstaklega hönnuð fyrir Skattakonuna til að skapa einstaka og fyllta reynslu.

Þróaðra FreeFlow bardagakerfi - Skattmann stendur á móti taktískum árásum frá heiftúðugum mótmælendum á sama tíma frá hverri átt á meðan gengi glæpagengi Reykjavíkurborgar fær stærri vopn og mun betri gervigreind inn í bardagann, en Skattmann hefur farið skrefinu lengra og er með tvisvar sinnum fleiri bardagasenur og tvöfalt svið árása, afturkvæmra árása og aðferða til að taka niður andstæðinginn........(t.d. eru lögreglumenn notaðir sem mannlegir skildir).

Ný vopn - Skattmann hefur ný fengið sér Ofurskaframtal og ofurskattleggjara og kúbverska vindla,sérunna úr ofur - illgresi, ásamt fullt af nýjungum á beltið sitt.

Nýr söguþráður - Borgarahreyfingin sem fengið hefur fimm sinnum Emmy verðlaunin fyrir fífla - og fávitaskap í tengslum við nýliðna atburði undanfarinna missera snýr nú aftur með nýja sögu Skattmann; Reykjavíkurborg, sem tekur spilendur lengst inn í sýktan og harðan heim daglegs lífs í Íslandi nútímans.

Landsbankinn er fluttur frá Austurstræti - eftir að Reykjavíkurborg og Kleppi hefur verið lokað og kleppararnir settir í stjórn íslensku bankanna svo að þeir geti sogið 60 milljarða á dag úr almannafé, þá hefur Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkurborgar fyrirskipað að allir sem voru lokaðir inni á hælinu og fangelsinu verði fluttir í nýja fangelsið sem Ögmundur Jónasson hafði látið reisa (einhvern tímann í náinni framtíð).

Rosalegt úrval karaktera - t.d. Skattakonan, Barack Obama Tvífés, Harrý og Heimir, Andrei Chikatilo, Hugo Chavez, Huan Nabo, Enter, Egill Helgason og fleiri flottir karakterar sem ekki verða nefndir hér en eru þekktir úr heimi Skattmanns.......

Skattakonan og Skattmann eru stundum óvinir......


Leikraddir - Laddi.

Saturday, October 1, 2011

Félag Eggjakastara formlega stofnað í dag

Nóg var að gera á setningarræðu formanns Félag Eggjakastara sem far formlega sett á laggirnar í morgunn laust um klukkan 9; 30 á Austurvelli.

Félag Eggjakastara far stofnað formlega í dag á Austurvelli.
Framkvæmdastjóri og nýkjörnir stjórnendur félagsins vilja þakka íslensku þjóðinni fyrir dyggan stuðning í sinn garð.
Félag Eggjakastara minnir alla á að mæta á fyrsta fund félagsins á mánudaginn kemur, en prufufundur fór fram klukkan 9; 30 í morgunn á staðartíma.
Áhugasamir mega m.a. koma með fílafugla egg með sér, og auðvitað strútsegg......

Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins vill funda með Vegagerðinni

Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins er m.a. mikill aðdáandi bókarinnar Vegurinn 

Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins hefur hvatt íslensku Vegagerðina til árása á íslenskar náttúruperlur.
Vegurinn segist mjög ánægður með starfsemi íslensku Vegagerðarinnar í þeim efnum og hefur tilkynnt að íslenska Vegagerðin eigi að fá heiðursnafnsbót og Fálkaorðuna vegna vegarins sem var lagður um Lyngdalsheiði.
Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins er framkvæmdastjóri fyrirtækis sem á árabísku heitir einfaldlega Vegurinn.
Hann er mikill aðdáandi bókarinnar Vegurinn, og lýtur á hvatningar til hvers kyns hryðjuverkaárása sem íþrótt.
Veginum finnst leiðinlegt að hvatningar til hryðjuverkaárása séu ekki álitnar vera íþrótt, þar sem að í þeim felist svo mikil málþóf.
Íslensku Vegagerðinni hafði borist einkennilegt bréf 11. September á þessu ári klukkan 9 að morgni með kurteisislegri beiðni frá Veginum um Veginn frá Veginum til Vegarins þar sem íslenska Vegagerðin er studd í ákvörðuninni um að leggja nýja Lyngdalsheiðarveginn.
Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins er alltaf með puttann á lofti þegar hann nefnir nafn sitt, og finnst að aðrir muni þannig muna nafn sitt betur.
Í viðtali við þýska dagblaðið Der Spiegel sagði hann ´uppáhalds kvikmyndin mín er The Road (Vegurinn) og allt mitt líf hef ég helgað vegum og vegarannsóknum og vegagerð. Mitt líf er einfaldlega hinn svarti, frekar en gulli meðalvegur, alútaðaður olíu, drullu, brennisteini og allri mögulegri mengun sem hægt er að hugsa sér. Já, ég elska nútímann, en það er ekki þar með sagt að ég vilji endilega vera í takt við hann´.
Aðspurður segist Vegurinn neita alfarið að tengjast starfsemi Al Quaeda á neinn hátt.

Saturday, September 10, 2011

Auglýst eftir kjöti úr heimsendasinnum

Lýst eftir Elenin heimsendasinnum - Lecter heitir nú Lecter Formaður


Mannætuflokkurinn auglýsir eftir kjöti úr heimsendasinnum.
Mannætuflokkurinn telur að mikill fjöldi heimsendasinna beri vott um að dónaskapur og ókurteisi þeirra í garð þeirra sem eru þeim ósammála um alla skapaða sem og óskapaða hluti sé gott tilefni til þess að auka á hróður flokksmanna.
Flokksmenn Mannætuflokksins munu sem stendur hafa náð tiltölulega fáum hæðum en það á eftir að gerbreytast.
Hannibal Lecter var kjörinn flossformaður 24. janúar á þessu ári og er hæstánægður með árangurinn.
Auglýst hefur verið sérstaklega eftir kjöti úr Elenin heimsendasinnum á heimasíðu Lecters.
Mannætuflokkurinn er ekki mikið ræddur um í fjölmiðlum af ótta fjölmiðlamanna við að vera étnir.
Að öllum líkindum mun halastjarnan eða reikistjarnan eða sólkerfið eða hvað þetta Elenin fyrirbrigði hvað sem það nú er væntanlega ekki gera neinum neitt alvarlegt mein svo vitað sé nema helst NASA þar sem NASA höfðu lýst yfir að þeir væru blankir stuttu eftir að allt fjaðrafokið í kringum Elenin byrjaði.
Greinilegt er að dónaskapurinn í kringum Elenin draslið gæti orðið tilefni til þess að hinir ókurteisu verði étnir.


Monday, August 22, 2011

Heimsendir kominn aftur enn og einu sinni......

Frá liðsforingja í landgönguliðinu til þess að vera nýaldarsinni og heimsendasinni er ´eitt lítið stökk fyrir mann, en stórt stökk fyrir mannkinið´- væntanlega þá afturábak að mati þeirra sem aðhyllast heilbrigða skynsemi fremur en óútreiknanlega lifnaðarhætti heimsendasinna og nýaldarsinna.

Framkvæmdastjóri NASA hefur tilkynnt bandarísku þjóðinni að hann sé nú heimsendasinni og nýaldarsinni.
Buss Aldrin geimfari hefur skiljanlega miklar áhyggjur af félaga sínum og yfirmanni; ´maðurinn er greinilega úti að aka, hann virðist gersamlega hafa gleymt sér í geimspákaupmennsku sinni. Ljóst er að að svo stöddu er ekki annað hægt en að segja að hann hafi gleymt tímavélinni sinni og sé vart viðbjargandi því hann sakni hennar svo mikið´.
Sem kunnugt er er heimsendir snúinn aftur, og nú síðast átti hann að gerast 25. september.
Það er auðvitað hundleiðinlegt líf sem heimsendasinnar lifa en samt æsispennandi því að á hverjum degi er aldrei nema von að þeir vakni upp mitt í fæðingarhríðum ragnaraka.

Tuesday, August 9, 2011

Félag Áhugamanna um Fíflaskap, Leiðindi og Tímasóun óskar eftir starfskrafti frá Hæstarétti

Margir Bandaríkjamenn telja þennan mann vera meðal leiðinlegustu og dónalegustu einstaklinga sem þar hafa alist upp fyrr og síðar. Hvort það sé rétt verður hver að meta fyrir sig, alla vega er eitt víst - honum þykja SS pylsur góðar.
Hæfniskröfur; Starfskraftur verður að vera virkilega leiðinleg og pirrandi manneskja sem vill stoppa allar samfélagslegar framfarir.
Æskilegt er að starfskraftur sé með þekkingu á því hvernig dómsmálum þar sem dæmt hefur verið gegn fjölmiðlafólki sé breytt til að valda fjölmiðlafólkinu ama og leiðindum og takmarka tjáningarfrelsi þess.
Æskilegt er að starfskraftur sé fær í því að rífa kjaft og vera með dónaskap við aðra.
Má reykja, en má ekki reykja kúbanskar sígarettur.

Thursday, July 28, 2011

Landssamband Norskra Hálfvita framtíðarvæðist

Formaður Landssambands Norskra Hálfvita, Anders Breivik,  hefur gefið út 1500 blaðsíðna yfirlýsingu þess efnis að félagið hyggist framtíðarvæðast á næstunni.
Breivik er mjög óánægður með allt þetta gáfaða fólk í Noregi og víðs vegar um heiminn og hefur mótmælt fjölgun gáfaðra einstaklinga í yfirlýsingu sinni.
Breivik finnst yfirlýsing sín alls ekkert löng og hefur m.a. sagt eftirfarandi um hana á facebook síðu sinni á meðann hann dúsar í fangelsi fyrir einn mesta hálfvitaskap sem framinn hefur verið lengi í manna minnum í Noregi ´yfirlýsingin hefði mátt vera lengri og innihaldið meira hálfvitalegra. Ég reyndi eftir fremsta magni að gera yfirlýsinguna eins hálfvitalega og hugsanlegt er, og hálfvitaskapur minn hefur greinilega skilað sér í formi þeirrar alþjóðlegu umræðu sem um mig og mín plön um að framtíðarvæðast hefur skapast undanfarin misseri. Ég verð nú bara að segja að ég sé hinn ánægðasti´.
Formaður Félags Noskra Hálfvita hefur gefið út 1500 blaðsíðna stefnuyfirlýsingu um það hvernig megi nútímavæðast.