Popular Posts

Monday, January 14, 2013

Fá ekki að nota fílapensla

Mugabe vill hafa hemil á fílahjörðum séu þær staddar í nágrenni Zimbabwe eða á yfirráðasvæði hans og félaga hans. Mugabe telur að með því að hafa hemil á fílum og banna þeim að segja fílabrandara megi koma í veg fyrir að fílabrandarar lendi á válista yfir tegundir brandara í útrýmingarhættu.
Robert Mugabe hefur tilkynnt öllum fílum í Zimbabwe að þeir megi ekki verða sér úti um fílapensla til þess að mála myndir. Þeir megi aðeins verða sér úti um sams konar gerðir af penslum og þeim sem mannfólkið notar. Fílarnir í Zimbabwe eru mjög óhressir með þessa ákvörðun enda er einræðisstjórnin þar þekkt fyrir ýmsar heimskulegar og skrýtnar ákvarðanir.
Fílarnir hafa bent á að mannfólkið sé full fært um að framleiða fílapensla og furða sig á því af hverju þeir megi ekki verða sér sjálfir úti um fílapensla.
Þá hefur þeim verið tjáð að þeir megi ekki prumpa á almannafæri og að þeir megi alls ekki segja brandara um sjálfa sig og starfsemi sína.
Fílar þykja hættuleg hryðjuverkasamtök í augum sumra Afríkubúa og því telja yfirvöld í Zimbabwe að nauðsynlegt sé að hafa hemil á fílahjörðunum.
Þá hefur nashyrningum verið tjáð að þeim sé bannað að vera nærsýnir og að framvegis eigi þeir að vera fjarsýnir.

No comments:

Post a Comment