Popular Posts

Monday, January 14, 2013

Bandarískir vísindamenn uppgötva áþreifanlegar sannanir fyrir tilvist bandarískra ríkisborgaera

Bandarískir vísindamenn sem eru sérfræðingar í að káfa á fólki og starfa aðallega á bandarískum flugvöllum telja sig hafa komist yfir tilvist áþreifanlegra sannana þess efnis að bandarískir ríkisborgarar séu til.
Eftir að hafa káfað á 21 þúsund bandarískum ríkisborgurum ákváðu vísindamennirnir að halda ráðstefnu uppgötvun sinni til heiðurs. Sem kunnugt er uppgötva bandarískir vísindamenn aðallega það sem þeim er sagt að uppgötva en stundum kemur þó fyrir að sumir þeirra taka ansi djarfar og sjálfstæðar ákvarðanir í uppgötvana - og rannsóknagleði sinni. Vísindamennirnir umræddu sérhæfa sig fyrst og fremst í að þukla á kynfærum fólks þegar það ferðast á milli landa. Þeir eiga erfitt með að skilja af hverju aðrir vísindamenn þurfa ekki endilega að staðfesta tilvist bandarískra ríkisborgara þegar ferðast er á milli landa.
Ráðstefnunni ´On the Discovery of American Citizens in the United States of America´lauk í dag en hún var haldin á föstudaginn og stóð til morgunns. Eftir ráðstefnuna voru allir sofnaðir úr leiðindum þar til einhver minntist á japönsku kvikmyndina ´Flower of Flesh and Blood´.

No comments:

Post a Comment