Popular Posts

Monday, January 28, 2013

Strumparnir banna Ögmund

Æðsti Strumpur og Gáfnastrumpur eru andvígir árásum Ögmundar Jónassonar ráðherra á strumpahús sem þykja mikil prýði.
Strumparnir hafa sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að þeir hyggist banna Ögmund.
Gáfnastrumpur hefur farið yfir tilkynningar frá Ögmundi Jónassyni um drög að þingályktunartillögu um bann við klámi á internetinu.
Gáfnastrumpur gerði ítarlega rannsókn á starfsemi Ögmundar á dögunum og komst að því að hér væri um aðila að ræða sem líklega ógnaði hagsmunum íbúa Strumpabæjar og nærliggjandi þorpa.
Gáfnastrumpur er mikill sérfræðingur í heimskulegum lagafrumvörpum og hefur samið langann lista yfir heimskuleg lagafrumvörp frá ýmsum heimshornum.
Meðal lista yfir efni sem Ögmundur telur vera klám má nefna strumpahús , köttinn Brand , Biblíur , gataða sokka , Harry Potter dagbækur , danskar marglyttur , Barbídúkkur og fleira.
Æðsti Strumpur er sammála ummælum Gáfnastrumps í garð Ögmundar að hér sé um stórhættulegan aðila að ræða sem sé til alls vís , hann gæti jafnvel bannað hunda - og kattahús og þá eigi hundar og kettir í engin hús að venda nema mannanna hús.
Allir strumpar og strympur sem málið varða eru beðnir um að segja sitt álit á frumvarpi Ögmundar gegn klámi á næstu misserum.

No comments:

Post a Comment