Popular Posts

Sunday, January 13, 2013

Lísa í Undralandi fordæmir brottrekstur íbúa þaðan

Lísa í Undralandi er mikill andstæðingur þess að íbúum þar sem hafa aðgang að samfélagsmiðlum svo sem Fésbókinni sé hent út annars lagið ef tilefnið til slíks þykir smávægilegt í sumum tilfellum. Líklega var það kanínan sem var hent út í þetta skiptið.
Hin kunna ævintýrapersóna Lísa í Undralandi hefur ákveðið að koma á framfæri skilaboðum til ritstjórnar Undralandsins á Fésbókinn þar sem brottrekstri íbúa er mótmælt en þó að menn hafi verið spurðir hvað hafi orðið til brottreksturs téðs aðila , virðast enn ekki hafa komið fram nein skýr svör um hvað hafi farið úrskeiðis í samskiptum á milli ritstjórnar og téðs aðila.
Lísa er ekkert sérstaklega hrifin af því að stofnuð sé vefsíða henni og íbúum landsins sem hún varð heimsfræg fyrir að sækja heim eftir að hafa kynnst hvítri kanínu þar sem hægt sé að reka íbúa úr Undralandinu með að því er virðist , tiltölulega litlum fyrirvara.
Lísa vill minna menn á mikilvægi þess hver það sé sem menn eigi að bera mesta virðingu fyrir af öllum íbúum Undralands og helst fara eftir ákvörðunum hennar í einu og öllu. Lísa í Undralandi er mjög ósátt við framgang mála í þessu undarlega máli sem aldrei hefði þurft að verða svona undarlegt ef þar hæfist enginn við sem væri stórundarlegur , sem gerir málið einmitt svona skemmtilega undarlegt. Undraland samanstendur aðallega af undarlegu fólki annars vegar og stórundarlegu fólki hins vegar. Í skógi nokkrum fyrirfinnst köttur einn sem hefur mikinn áhuga á geðlæknisfræði , og stöku sinnum heimsækir hvít kanína Undralandið þegar henni leiðist. Minnstu munaði að holunni sem nær inn í Undraland yrði lokað á dögunum í kjölfar framkvæmda við gerð golfvallar í nágrenni kanínunnar. Íbúar Undralands tengdust Fésbókinni fyrir rúmum 4 árum síðan og nú er Drottningin í Undralandi loksins komin með ljósleiðara.

Steingrímur J. Sigfússon lærir að kveðja á 46 mismunandi tungumálum

Steingrímur J. Sigfússon hefur farið á tungumálanámskeið til að bæta við sig fjölda tungumála sem hann hefur lært um ævina , en eitt af því sem hann hefur kynnt sér sérstaklega fyrir varðandi þessi tungumál er hefðbundnir kveðjusiðir. 

Lyf við skammdegisþunglyndi þróað

Vísindamenn hafa þróað lyf við skammdegisþunglyndi. Lyfið virkar þannig að það breytir skammdegisþunglyndi í síðdegisþunglyndi svo að hinn þunglyndi geti einfaldlega stýrt því betur hvenær næsta þunglyndiskast muni koma fram.

Áríðandi skilaboð til refa

Síðustu refaskórnir runnu út í dag........

Eli Roth tjáir sig um framhald Last Exorcism

Eli Roth hefur átt í miklum vandræðum upp á síðkastið með að tjá sig um framhald ´síðustu særingarinnar´eða ´the Last Exorcism´en í ljós hefur komið að ´the Last Exorcism´getur ekki mögulega titlast svo verði framhaldið sem þegar hefur látið trailer sinn dagsins ljós látið heita Last Exorcism 2. Þar með virðist aldrei ætla að koma almennilegt samkomulag um það hvernig í ósköpunum Eli hafi látið sér það detta í hug að Last Exorcism sé í raun ekki Last Exorcism heldur ´Just another Exorcism´.
Eli Roth hefur útskýrt furðumál þetta með þeim hætti að hann kæri sig köllóttan um hvað öðrum finnst um kvikmyndir hans eða hvað þær eigi að heita.

VILJA ELDRI BORGARA BURT AF MYND - MÓTMÆLENDUR

´Þið eruð næst´. Í skoðun er hjá Sjálfstæðisflokknum að svipta eldra parið ellilífeyri í kjölfar mikillra umkvartana um efni myndarinnar.


Stór hópur mótmælenda hringdi í íbúðarhúsnæði í hverfi 101 í Reykjavík á dögunum til að mótmæla nærveru eldra , sjentílmannlegs pars á skissu sem hafði orðið viðskila við eiganda sinn í rúma viku nokkrum dögum eftir að síðasta degi jóla lauk.
Fólkið vill koma á framfæri skoðun sinni þess efnis að höfundur myndarinnar sé ´hálfviti , brjálæðingur og algjört fífl´fyrir að hafa málað nokkrar myndir ásamt þessari þar sem börn eru sýnd myrt , étin eða limlest á hrottafenginn hátt. Óhugnanlegasta atriði myndarinnar sýnir stúlku sem er nýbúin að drepa eldri bróður sinn.
Myndirnar eru unnar í akrýl og eru málaðar í kjölfar mikillrar umræðu um misnotkun gegn börnums em staðið hefur yfir í meira en 2 áratugi á Íslandi og í mörgum löndum víðs vegar um heiminn.
Eins og sjá má á myndinni þá var eldri bróðirinn líklega skorinn á háls og augun stungin út fyrir að vera með leiðindi við systur sína. Kannski gekk þeim systkynum eitthvað annað til. Því miður er ekki hægt að verða við kröfum mótmælendanna og eru þeir vinsamlega og kurteisislega beðnir um að skilja að íslensk stjórnvöld og lögregluyfirvöld líka taki nærveru eldri borgara í íslensku samfélagi af stökustu ró , nema auðvitað í tilfellum þeirra sem hafa allt á hornum sér og er með vesen og vandræði úti um allt. Í skoðun er hjá kjörskrifstofu Sjálfstæðisflokksins að refsa eldra parinu með því að svipta þau ellilífeyrisréttindum sínum og koma þeim einhvers staðar í vinnu , líklega á Sauðárkróki.

Wednesday, November 14, 2012

Svarthöfði gerir innrás á heimili Birgittu Jónsdóttur

Illa liðinn af Búddistum á Íslandi - Darth Vader.


Þingkonan Birgitta Jónsdóttir hefur ákaft kvartað yfir því að Svarthöfði skuli hafa gert tilraun til þess að gera árás á friðhelgi sína.
Birgitta kvartaði um það sem hún taldi að væru athafnir í fari Svarthöfða sem mætti túlka sem ógn við sig og sína hagsmuni sem þingkonu.
Hún kallaði Svarthöfða m.a. ´maniac´en eins og við vitum er Svarthöfði vissulega algjör ´maniac´ eins og þeir sem hafa horft á allar Star Wars myndirnar hafa lengi haft fulla vitneskju á.
Merkilegt þykir nokk hvort Birgitta sé að tala um Svarthöfða í DV eða einhvern allt annan Svarthöfða.
Spurning er því hvort hér sé á ferðinni Svarthöfði eða Svarthöfði , eða Darth Vader , eða bara hreinlega hann Darth.
Að vera eða vera ekki Darth eða Darth , það er spurningin.........
Sem kunnugt er er Birgitta mikið náttúrubarn og má því gera ráð fyrir að hún sé að koma af fjöllum í orðagljáfri sínu um Darth og Darth.