Þessi gömlu og úreltu stúdentakort eru að gera alla hundleiða.
Fólk er beðið um að afhenda bláókunnugum manneskjum persónulegar upplýsingar um sig sjálft.
Síðan afhending persónulegra upplýsinga fór að aukast á Íslandi milli 1990 og 2000 jókst tíðni afbrota verulega.
Tíðni líkamsárása jókst einnig , og nú er svo komið að langsamlega flestar líkamsárásir sem eru skipulagðar í höfuðborginni verða á stöðum þar sem fólk er krafið afhendingar persónuskilríkja.
Hvenær ætlar fólk að fara að læra það að allt þetta stúdentakortadæmi er einkamál hvers nemanda og að það er ókurteisi að biðja nemendur um að afhenda persónuupplýsingar - slíkt stríðir í bága við lög um virðingu fyrir friðhelgi einkalífsins?
Ef nemendur í HÍ eru beðnir um afhendingu stúdentakorta af aðilum sem þeir þekkja ekki sjálfir ættu þeir hiklaust að kæra viðkomandi í stað þess að taka þátt í mögulegum blekkingarvefjum sem vinda svo bara upp á sig og eru engum til gagns fyrir rest.
Ef stúdentakortin halda svo áfram að valda svona miklu veseni og vandræðum þá verðum við að snúa aftur til þess tíma megar nemendur voru ekki með stúdentakort , heldur létu skrá sig beint inn og þá var líka miklu erfiðara að komast yfir persónulegar upplýsingar um nemendur.
Fyrir rúmum 30 árum síðan treystu nemendur í HÍ hvor öðrum miklu betur en þeir gera í dag og böll þar sem flöskum er kastað í fólk út af engu voru algjörlega óþekkt fyrirbrigði , en auðvitað var allt fullt af böllum eins og allir vita sem muna eftir þeim tíma.
Hvenær ætlar háskólasamfélagið að taka á brotalöm þeirri sem ofnotkun stúdentakorta er orðin?
Í dag , á morgunn eða þegar nemendur fá nóg og ákveða að kæra ókunnuga sem krefjast afhendingar persónuskilríkja?
Nemendur HÍ eiga rétt á að ákveða sín mál sjálfir........og burt með þessa ´afslætti´í nafni afhendingar persónuskilríkja - ef menn virkilega vilja hafa afslætti , hafa þá , og ekki neinar heimskulegar og gamaldags hundakúnstir í kringum það..........
Hið sama má segja um örflögurnar sem fólk hélt að myndu bjarga köttum frá því að verða fyrir árásum af mannavöldum og hundum frá drukknun.