Popular Posts

Friday, December 16, 2011

Vísindamenn uppgötva að borgarfulltrúi með guðseindarheila!!!!

Þegar Davíð Oddson bullaði um góðæri á Íslandi voru allir meðvitaðir um hvað það væri mikið bull. En þegar borgarfulltrúi á vegum Reykjavíkurborgar bullar um góðæri er bullinu tekið sem heilögum sannleika af fíflum og fávitum.

Vísindamenn sem starfa fyrir Öreindahraðalinn CERN hafa gert stórmerkilega uppgötvun - þeir hafa nefnilega uppgötvað heila á stærð við guðseind , svonefndan guðseindarheila!
Guðseindarheilar eru reyndar svo agnarsmáir að spurning er hvort þeir kunni nokkuð að reikna.
Borgarfulltrúar hjá höfuðborgum um allan heim voru látnir taka þátt í tilraun sem gekk út á leit að guðseindarheilum og kom í ljós að á Íslandi má finna mikinn meirihluta slíkra borgarfulltrúa.Margir þessara borgarfulltrúa trúa hlutum á borð við að á Íslandi fyrirfinnist e.k. góðæri.
Staðreyndin er sú að á Íslandi fyrirfinnst ekkert góðæri. Fólk þarf að fara erlendis í leit að lækningu og er stoppað í Leifsstöð á meðan ´útrásarvíkingar´sem geta ekki notað peningana sína til að kaupa flatköku fá að ferðast til London og New York og meira að segja hafa börnin sín með sér.

No comments:

Post a Comment