Popular Posts

Wednesday, December 21, 2011

Óttast skætt afbrigði af Pokemon - æði

Ofurpokemon - bakterían er til vinstri. Landlækni lýst ekkert á hana.

Vísindamenn HeilbrigðisvísindasviðsHÍ hafa þróað mannskætt afbrigði af Pokemon - æðinu svokallaða , en æðið ógurlega breiddist út um allar trissur í Asíulöndunum og barst loks til Íslands , en stuttu síðar dó æðið eins og öll æði gera.
Uppskriftina af nýju útgáfunni af æðinu vilja vísindamennirnir ekki gefa upp , en þeir hafa nefnt að breiðist nýja Pokemon - bakterían út gæti útbreiðsla hennar haft í för með sér að fullorðnir fái Pokemon æði og ekki einungis börn.
Fólki sem er hrætt við bakteríur er ráðlagt að smitast af þessari bakteríu , það sé komið nóg af allri vitleysunni í kringum að þróa bóluefni við hinni og þessari bakteríunni......
Landlæknisembættið hefur sent yfirlýsingu þar sem landlæknir lýsir yfir óhug með tilraun vísindamannanna til að búa til Ofur - Pokemon bakteríuna og hafa þegar reynt að ná sambandi við Heilbrigðisvídindasvið en án árangurs.

No comments:

Post a Comment