Popular Posts

Tuesday, February 28, 2012

Maður liggur undir feldi á Bessastöðum - ónáðið ekki

Áríðandi skilaboð til vegfaranda um veginn sem liggur að Bessastöðum og nánasta umhverfi; maður liggur á feldi. Akið hægt og um fram allt varlega. ENGAR TRUFLANIR LEYFÐAR.
Virðingarfyllst,

Hrunstjórnin......

Ill meðferð á dýrum?

Ég sá heimildarmynd fyrir stuttu sem fjallaði um flutning nashyrninga til Kenýa frá Tékklandi.
Mér fannst það ekki skemmtileg tilhugsun að vera nashyrningur og vera fluttur til lands þar sem bíður manns ekkert nema hatur og fyrirlitning af elítu sem vill mann feigann.
Þó ásetningurinn sé ekki illa meintur - verið er að reyna að bjarga nashyrningum , finnst mér það óskynsamleg ákvörðun að láta þá vera senda þangað sem þeir eiga einfaldlega ekki heima.
Þeir eiga vissulega heima í villtri náttúru - en er það þess virði að senda þá til Kenýa? Er það þess virði að senda þá til Zimbabwe eða Namibíu?
Ég held ekki.....

Monday, February 27, 2012

Áríðandi tilkynning frá Steingrími J. og Össuri Skarphéðinssyni

Villikettir hafa gert sig heimakomna í húsakynnum höfuðstöðva Vinstri Grænna , og vilja Steingrímur J. og Össur að kettirnir verði eyrnamerktir og þeim komið fyrir í umsjón Kattholts. Steingrímur og Össur taka fregnum af villiköttum fagnandi enda miklir stuðningsmenn þess að villikettir séu hafðir á almannafæri í stað þess að hafa þá bundna og keflaða í búrum eftir að hafa hætt sér of nálægt mannabyggðum.
Nágrönnunum fannst allt í lagi að hafa villikettina eða þangað til þeir byrjuðu að mjálma og mjálma daginn út og daginn inn , breima eins og köttum er einum lagið , og slást hvor við annan þess á milli......þá ákváðu nágrannar að hafa samband. Lögregla neitar að fjarlægja villikettina vegna ósamkomulags á milli Steingríms og yfirlögregluþjóns vegna orðróms um að Steingrímur hafi tekið þátt í að koma af stað óreiðum á milli villikatta , tamdra katta og annara dýrategunda á Austurvelli.......

Tuesday, February 21, 2012

Builderberg þjást af Joðskorti eftir að hafa lesið grein í DV og reynt að taka alvarlega.......

Bjarni Benediktsson svarar fyrirspurn ritstjóra DV um Joðskort hjá meðlimum Builderberg hópsins.


Mjög margir Builderbergerar hafa haft samband við ritstjóra DV að undanförnu og hótað honum öllu illu - einna þekktastur þeirra er Bjarni Benediktsson eftir tilraun til að fara í einu og öllu eftir grein frá DV um ´gagnsleysi´vítamína sem er ein af frægustu flökkusögum samtímans og jafnfrant ein af þeim allra fyndnustu.
´Hvað í andskotanum ertu eiginlega að hugsa þarna maður? Hvernig dettur þér í hug að setja grein með tilkynningu um að vítamín séu óholl? Síðast þegar við fórum var ég ekki búinn að prófa joðtöflur í mánuði og allir hinir Builderbergarnir líka , og sjáðu hvað þú ert búinn að gera! Þú ert búinn að valda okkur bólgum og liðagigt og ég veit ekki hverju meiru. Ertu með skýr og vel skiljanleg svör sem geta skýrt hvað fór úrskeiðis?´
´Úrskeiðis? Það fór ekkert úrskeiðis. Þetta var nákvæmlega áætlunin. Samsærið hjá mér var vel skipulagt. Ég hafði frétt að þú værir meðlimur í Builderberger hópnum og ákvað að spila með ykkur og því sendi ég greinina í DV. Skilurðu? Steingrímur J. Sigfússon hefur ekkert að gera á svona fund og samt lýsir Björn Bjarna hann Builderberger. Hvurs lags eiginlega er þetta? Megið þið bara valta yfir alt og alla og enginn má hefna sín til baka?´......


Monday, February 20, 2012

Mótmæla harðlega; ´Ég er Tinni , Ég er Kolbeinn , ég er Vandráður , og þetta er hann Kobbi! Fari það í glóandi gaddaskötur og blauta Stórfeta!´

Kolbeinn Kafteinn þjáist ekki af samsemdarefasemdum eins og Ed Chiriani hefur verið sakaður um.


Kolbeinn Kafteinn , Tinni og Vandráður hafa haft samband við mann nokkurn sem gengur undir hinu þekkta nafni Ed Chiarini vegna nýlegra myndbanda sem hann hefur sett á youtube.com og sem ruglað hafa margann í rýminu. Á myndböndunum kemur m.a. fram að David Icke sé Richard Branson og Julian Sands sé Julian Assange. Hinum frægu eigendum Hótels Myllusetur var illa brugðið í brún þegar þeir fréttu af því að Ed hafi ruglað saman Vælu Veilólínó við Irmu , Kolbeini Kafteini við Jósef , Kobba við svartann púðluhund og loks Tinna við Tsjang.
Tinni hringdi fyrstur í Ed , og brást hinn rólegasti við og krafðist skýringa. ´Ég held að þú sérst Tsjang og búi í Tíbet og að Tinni hafi aldrei búið á Myllusetri´, sagði Ed hinn rólegasti á móti.
Kolbeinn Kafteinn brást hinn alversti við og hótaði Ed öllu illu. ´Þú ætlar þó ekki að halda áfram að rugla mér við Jósef? Að þú skulir ekki skammast þín , grámygluga hafbjúgað þitt!´
Ed sagðist áfram lýsa yfir að Kolbeinn sé Jósef.
Jósef hefur sent Ed bréf frá Myllusetri með skýringum þess efnis að hann og Kolbeinn séu ólíkir karakterar. Irma hefur hótað verkfalli en allir sem hafa komið til Mylluseturs og séð íbúana þar og haft dagleg samskipti vita hins vegar hið sanna í málinu. Ljóst er að Ed á von á miklum vandræðum framundan. Ekki hefur verið haft samband við Julian Sands vegna málsins. Meira að segja sjálfur Vandráður prófessor hefur fengið að kenna á Ed og ruglinu í rýminu á honum , og verið lýstur Skapti og Skafti. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur aðdáendum Tinnabókanna um víða veröld ekki tekist að hafa samband við Ed vegna málsins......

Áríðandi skilaboð frá Flugleiðum

Flónadagurinn verður haldinn hátíðlegur 18. ágúst næstkomandi. Þá ætla öll flón sem eru með risastórar fjárupphæðir sem gagnast engum , ekki einu sinni þeim sjálfum , að koma saman og vera með Harmoniku tónleika í Hörpunni.
Eigum gleðilegann dag 18. ágúst. Framkvæmdastjórar sem hafa hækkað ofurlaun sín nýlega hjá íslenskum flugfélögum verða meðal viðstaddra.
Ef þú ert framkvæmdastjóri flugfélags með 20 til 50 milljarða á mánuði og þér finnst óeðlilegt að flugfreyjur fái kauphækkun , endilega mæta.
Svona hættu að kúra alltaf í rúminu alla daga og nenna ekki að mæta í vinnuna nema þú sérst með ofurlaun á milli handanna , OG MÆTTU!!

Friday, February 17, 2012

Vandræði og æðubunugangur hjá Harold Camping......

Harold Camping. Hvar höfum við séð þennan svip áður? Bíddu nú við.......


Harold Camping lenti í vandræðum á dögnum þegar lögreglan leitaði allt annara aðila en hans - fólks sem var týnt í útilegu og skráð sem ´camping´ í skráningarkerfi lögreglunnar.
Harold lenti í því að skellt var á hann marg oft þar sem hann hafði týnt bakpoka sínum og tjaldi þegar þau fuku í roki einhverja helgina um árið og þurft að hringja til lögreglunnar úr farsímanum sínum.
´I´m Camping , can you be so kind to get me some help over here? I´m an old man , I´m Harold Camping......´
´So you´re Harold , you´re an old man and you´re camping? Where are you? Are you lost?´
´Well I´ve lost my tent and I´ve lost my sleeping bag. Can you be so kind to help me? Can you get me over a new tent?´
´Sir you gotta be fucking shittin´me. Which Harold are you? You can´t just call here and claim to be Harold and claim you´re camping. You´ve gotta give us your full name´.
´But sir , I am Harold Camping´.
´Look , I´m repeating then. Quit this nonsense and just tell us who  you are´.
´I´m Harold Camping and I´m sick and tired of this nonsense in you , you stupid fed! Go get your arse over here and help me , or I´ll have you reported on my Facebook Fan Page´.
Skömmu síðar var Camping fær um að tjá lögreglu nákvæmlega hvar hann væri.
´Roger sir.......where are you located precicely?´
Eftir aðeins meiri útskýringar var loks hægt að staðsetja Camping og koma honum til hjálpar og til heimahaga sinna......

Jósef Goebbels. ´Þess stærri sem lygin er , þess fleiri munu trúa henni´......

Tunglið eða Máninn eins og við þekkjum hann í dag. Fyrir árið 1500 er hvergi minnst á ´Tunglið´ í ræðu eða riti svo neinn kannist við. Flestir af frægustu hugsuðum heims fyrr og síðar svo sem Kant og Schoepenhauer minnast ekki á tunglið í sínum ritum. Goebbels og Hitler minntust heldur ekki á það. Ef Tunglið væri virkilega fylgihnöttur Jarðar væri byrjað að senda geimskip þangað í þeim tilgangi að koma með Helium 3 til Jarðar. Hvar finnum við Helium? Í loftbelgjum! Það er auðvelt að búa til marga , marga loftbelgi , hafa þá alla jafn stóra , mála þá alla eins , mála yfir með fosfór , og byggja allar eftirlíkingarnar á einu módeli. Tunglið sést alls staðar í lofthjúpnum frekar en utan hans eins og það ætti að sjást væri það náttúrulegur fylgihnöttur Jarðar. Ef allir þessir loftbelgir eru eins í laginu og jafn stórir , málaðir og hannaðir af afkomendum þeirra sem bjuggu til fyrstu loftbelgina - myndi það ekki meika sens að það væri tiltölulega auðvelt að koma þeim fyrir bak við sjóndeildarhringinn þar sem hann er reiknaður út miðað við hversu langt maður sér til sjóndeildarhringsins í hverju landi  , og halda þeim svo svífandi í dágóðum tíma þar , á meðann þeir eru svo látnir svífa hægt og bítandi niður til Jarðar á svona 5 til 10 klukkustundum. Er ekki merkilegt að stundum sést tunglið alls ekki , nánast enginn hefur farið þangað nema fáránlega lítill hópur manna opinberlega og nánast ekkert hefur verið farið með frá Tunglinu til Jarðar opinberlega nema grjót. Náttúrulegur fylgihnöttur er ekki að hverfa eina nóttina og birtast aftur aðra nóttina.......hann fylgir himinhnetti sínum eins og hann sé sjáaldur auga himinhnattarins.......´þess stærri sem lygin er , þess meiri munu trúa henni´.

Friday, February 10, 2012

Troddu þessu klámskjaftæði ofan í rassgatið á þér ef þú ert karlmaður eða píkuna eða rassgatið ef þú ert kona , þvílík ósmekklegheit!!

Hvurs lags er þetta eiginlega með marg berrassað internetið?
Ég verð að vera mér sárreiðastur þessa dagana - hef engan annan til að vera sárreiðastur við.
Ég lýsi sjálfan mig hér með sem minn versta óvin - ég ætti að hafa mun meiri gætur á sjálfum mér en ég hef haft hingað til.
Hvernig stendur á því að sumir hata börn svo mikið að þeir eru viljugir til þess að skilgreina allt milli himins og jarðar sem barnaníð , meira að segja samskipti leikskólakennara við þau á meðan kennsla fer fram þegar engin ástæða þykir að koma illa fram við þau að áliti viðkomandi kennara?
Ójú , það skal ég segja ykkur , væntanleg framtíðar fórnarlömb kossa á kinnar , hinna frægu knúsa sem allir voru með hvor við annan í gamla daga , ´koddu nú og sestu á lappirnar mínar á meðann ég les fyrir þig upp úr sögunni af Dísu ljósálfi´, ´hlustum öll á söguna af henni Öskubusku!´ , ´er einhver til í að heyra sögurnar af John Wayne Gacy þegar hann var drengur?´´Það ætti að rasskella þig fyrir að haga þér svona , bölvaður frekjudallurinn þinn!´ Þannig er nefnilega mál með vexti að ég var að teikna með börnum í dag í Ráðhúsinu og Ketill Larssen var með okkur. Ég var fullorðinn eins og hinir fullorðnu og menn voru smeykir við að allt færi úr böndunum. Börnin voru háheilög , og auðvitað verða þau mjög hrokafull á allri þessari framkomu í sinn garð þar sem þau eru tignaðir sem guðir og gyðjur - en þegar þau vaxa úr grasi , þá breytast þau í þá sem framleiða öll störfin - og viti menn , sum þeirra fremja hinn hroðalega glæp að gerast leikskólakennarar. Já , leikstjórakennarar eru hræðilegar ófreskjur sem á bara að úthýsa úr höfuðborginni því þær ógna lífum og öryggi barna - já , bara hafa þessar skelfilegu ófreskjur helst múlbundnar , þær eru svo góðar við börnin að þessi barnelska er að gera alla í Ráðhúsinu snælduvitlausa. Svo þeir lumbra á þessum vondu kennurum , m.a. því þeir eru skjólstæðingar Reykjavíkurborgar , Reykvíkingar eins og ég , og skulu hataðir fyrir vikið , og skal engu skipta þó þeir væru ættaðir af Vestfjörðum - en jafnvel þá skal refsa þeim mun harðara ef þeir eru að búa á landsbyggðinni í stað borgarinnar. Skapa þeim nógu mikla hættu , helst lífshættu. Þvílíkur rugl hugsunarháttur og þvílíkur hroki og dónaskapur og óvirðing og skeytingarleysi gagnvart þessum skemmtilegu og hugrökku og gáfuðu leikskólakennurum. Það þarf svo að kalla öryggisverðina til af ótta við að menn breytist í vonda geimeðlu ef þeir eru nærstaddir börnum svo menn taki nú þannig til orða og borði svo börnin. En hvernig væri veröldin án barna? Eins og hún var dágóðann hluta myndarinnar Children of Men. Börn voru rasskellt ef þau voru með óþægð , í stað þess að setja þau á Rítalín. Jafnvel þegar þau voru ekki  með neina óþægð. Öskubuska var saga sem allir kunna. Menn voru fávitar ef þeir vissu ekki hvaða lands Osló var höfuðborg. Það voru allir að hlýða þegar Halldór Killjan Laxness var ungur að lesa upp úr skemmtilegu og stundum sorglegu sögunum sínum í útvarpinu þegar engar samfélagssíður voru til sem gátu bannfært eða lokað reikningnum hans.
Jóhannes S. Kjarval gat ferðast heimshornanna á milli án þess að vera stungið í steininn af kolbrjáluðu rugludallaliði ættuðu úr dimmum skúmaskotum Heimavarnamálaráðuneytisins. Ævar R. Kvaran skondaði til Nínu Rúnu dóttur sinnar og kleip hana í kinnina sem hluta af atriði í leikriti. Í dag væri hann vondur barnaníðingur. Jafnvel þó hann hafi verið Frímúrari væri hann í dag vafalaust ekki bara vondur barnaníðingur heldur vond geimeðla.
Hvers konar rugl er komið fyrir með þetta blessaða þjóðfélag? Konur eiga að hafa fullan rétt á því að knúsa börnin sín og karlar líka. Börn mega mæta með hníf í skólann en ekki fullorðnir. Neei - börnin eru meinlausari þó þau hóti öllum í skólastofunni lífláti.
Að klípa barn í kinnina til að sýna væntumþykju er gróf og siðlaus líkamsárás á barnið að áliti þeirra sem semja ólög - markmiðið er hjá þeim að semja bara nógu andskotins , dískotins mörg ólög. Hvurs lags rugl er þetta eiginlega? Þið eruð væntanlega að tala um það enn hversu mikið ég hef tapað mér - mikið er ég ánægður - en hversu mikið hafið þið tapað sjálfum ykkur á þessu andskotans , bölvaða rugli? Svona nú , fullorðnin ykkar - ef heimsendir verður í desember , hafið þið enn tíma um sinn að fullorðnast. Voru það ekki þið sem óluð mig svona vel upp - ókei , alið þið nú ykkur sjálf upp því þið steingleymduð ykkur sjálfum og létum þetta rugludallalið láta rigna yfir ykkur als kyns rasl ólögum og vitleysu sem þið hafið ekkert við að gera.
Auðvitað megið þið flengja þessi óþekku börn á bossana og faðma þau að ykkur og leika við þau og gera eins mikið skemmtilegt með þeim og ykkur langar.
Meiri göngutúra , meiri hreyfingu , meiri útilegu , meiri nútímavæðingu! Hættið svo að éta allt þetta heimskulega og bjánalega iðnaðarsalt! Og þetta eitur tarna , aspartam.
Ágætu fulltrúar sem við Reykvíkingar kusum til að fara með málin í borginni - HÆTTIÐ AÐ KOMA SVONA FRAM VIÐ LEIKSKÓLAKENNARA.
Þið þarna sem semjið þessi drasl lög um að allt sé barnaníð , farið eftir ykkar eigin ofsóknarbrjálæðiskenndu ranghugmyndum og forðist að troða þeim upp á aðra , annars fer fyrir ykkur eins og fór fyrir George Soros þegar einn góðann veðurdag hann vissi ekki lengur hvaða byltingu hann væri að fjármagna.
Það er rétt - það er til fólk sem misnotar börn - og við eigum að passa okkur á því að vera eins mikið og við getum með börnunum okkar , en hin hræðilega staðreynd er að inni í okkur öllum blundar barnaníðingurinn því hann er hluti af okkar eðli - við höfum þróast þannig að nú höfum við miklu meiri stjórn á honum. Við þurfum ekki að meðhöndla börnin lengur nema okkur langi til - og þá er hægt fyrir okkur að stoppa slíkar hvatir svo við gerum það ekki og sköðum þau þar með - eins og rándýrin meðhöndla bráð sína í frumskógunum og á Savannah sléttunum. Börnin eiga að vera meira virði en þau eru metin í dag - ÞAU ERU FRAMTÍÐIN. Reynum að forðast að rugla þau í rýminu með öllu þessu tali um hvað sé barnaklám og hvað ekki , og verum ekki að finna einhvers konar algildar skýringar á því hvað sé barnaklám sem geta innihaldið hvað sem er frá því að fara í nærbuxur staddur kílómetrum saman í fjarlægð frá einhverju barninu , til þess að lesa upp úr sögu fyrir barn og vera fullorðinn sjálfur.
Við sem erum fullorðið fólk eigum að hætta að gleyma því til þrautar hvernig lífið var þegar við vorum börn - því að við vorum born líka , og hvernig við komum fram við börn þá eins og við gerum í dag þegar við viljum koma vel fram við þau og kurteisislega á ekki að vera ávísun á það að menn séu barnaníðingar og að þar með eigi að koma til kasta beinnar afskiptu löggjafar eða dómsvaldsins.
Margrét Möller er gott dæmi um kennara sem átti ansi auðvelt með að kvelja og pína börn , eða eins og pressan hefur fjallað um málið - en , það er ekki þar með sagt , að allir leikskólakennarar og allir kennarar sem kenna börnum í skólum séu Margrét Möller eða Séra Georg. Ónei.
Fyrir mörgum árum trúðu menn því , að þegar barn er 7 ára á það að taka ákvörðun um hvort það vilji teljast fullorðið eða ekki - nú vitum við betur.......reyndar höfum við kannski vitað betur lengur , en við höfum viljað tjá okkur sjálfum um......
Ef ég vill lesa Lilju yfir barni er ég þá að níðast á barninu samkvæmt enn einu fáránlegu lögunum með furðulegustu túlkunum í þá átt að foreldrar eigi að eyða minni tíma með börnum og hafa þau lengur í skólanum og að kennararnir eigi að vera á minni launum osv.frv? Hvernig var lífið þegar Sagan Endalausa var bara kvikmynd sem fullorðna fólkið fór á með börnunum? Það var frábært miðað við það hvernig það er í dag þegar það er stutt í að áliti sumra að það að vera fullorðinn og fara með barn í bíó á Söguna Endalausu eða Stjörnustríð sé barnaníð.......

Er verið að nota kosningaseðilinn þinn til að fjármagna hvítþvegið eiturlyfjafé?

Sumir hafa tjáð mér að þeir séu þeirrar skoðunar að Alþingishúsið sé rekstrarmiðstöð fyrir hvítþvegið eiturlyfjafé. Ef það er rétt væri ég sammála því að örugglega hljóta að vera einhverjir í Alþingishúsinu sem hafi ekki vitað af því. Sjálfur tel ég að næst þegar kosningar verða haldnar hér á landi , þegar kosið verður til Alþingis , séu líkur á að ég sé að sóa peningum mínum meir en ég hef þegar gert , og hugsanlega taka þátt í dreifingu hvítþvegins eiturlyfjafés óafvitandi. Ég hef oft heyrt um hvítþvegið eiturlyfjafé áður , en ég fór að spyrja fólk um málið og eitt af svörunum sem ég fékk var að Alþingi hljóti að hafa verið notað til að dreifa eiturlyfjafé og eiturlyfjum síðan frá stofnun þess.
Tjón af völdum starfsemi innan Alþingishússins er tamið nema á allt að þriðja til fjórða þúsund milljarða íslenskra króna. Tjónið er rakið til kolvitlausra ákvarðana eða ákvarðana sem voru teknar skipulega með það að markmiði að draga úr trúverðugleika íslenska efnahagslífsins í augum fjárfesta sem höfðu talið að það væri öruggt að fjárfesta í landi eins og Íslandi. Hatar fólk sjálft sig virkilega svo mikið að það er tilbúið til þess að leyfa bláókunnugu fólki sem það þekkir ekki bofs , að koma íslensku þjóðinni sem það segist svo annt um í annað gjaldþrot , finnast það bara allt í lagi , og gera ekkert í því? Eða er kominn tími til þess að gera eitthvað? Framtíð þín er ekki neins virði nema þú gerir hana einhvers virði!
Hugsaðu áður en þú kýst - helst nokkrum árum áður en komið er að kosningadegi - sjálfsímynd þín er órjúfanlegur hluti af þínu lífi og ef hún er nógu léleg til að þér finnist allt í lagi að manneskja sem hatar þig og þína hagsmuni fari með öll völd í samfélaginu , þá ertu í virkilega vondum málum......ef þú vilt vera í góðum málum , hugsa aðeins áður en farið er á kjörstað og spyrja spurninga eins og - eru líkur á að ég sé að sóa tíma og orku í hvítþvegið eiturlyfjafé með því að kjósa þennan eða hinn stjórnmálaflokkinn?

Monday, February 6, 2012

Ögmundur gefur skýringu á því af hverju hann vill ekki að Geir verði ákærður


´Burt! Drullið ykkur burt!´sagði Ögmundur við blaðamennina þegar þeir voru að spyrja hann út í það af hverju hann hafi skipt um skoðun varðandi Geir.
´Af því bara´ svaraði Ögmundur.
´Hvers konar svar er þetta eiginlega?´spurði annar blaðamannanna.
´Nú þetta er af því bara svar. Við hverju bjóstu? Að ég færi að fara að lýsa yfir að þetta hafi tengst hagsmunaástæðum?´
Þegar Ögmundur var loks farinn sagði hinn blaðamaðurinn ´þá er skýringin kominn. Hann er bara pirraður. Það er það sem er málið. Við ættum að hætta að vera að fara svona nálægt með myndavélarnar okkar þegar við tökum myndir af þeim , og vera bara með örmyndavélar næst´.

Óhreint Tau fannst í kassa við sprengjuleit - Stjórnarráðið

Jóhanna reyndist hafa gleymt óhreina tauinu fyrir utan Stjórnarráðið sem skýrir kassan dularfulla

Lögreglan hefur tilkynnt að óhreint tau úr eigu forsætisráðherra hafi fundist við sprengjuleit , ásamt nokkrum grenjuklútum.
Lögreglan telur að þar með sé dularfullt mál sem krefjist tilgangslaust eftirlits loksins upplýst.
Karlmaður um fimmtugt kom auga á kassann og hrópaði ítrekað ´það er óhreint tau í kassanum! Varúð! Sýklahætta!!´en enginn hlustaði þar sem allir voru að fara heim úr vinnunni eða í vinnuna þegar til kassans spurðist......
Sumt af tauinu hafði ekki verið þvoð svo vikum skipti enda hafði spyrst um undarlega lykt í Stjórnarráðinu og á Alþingi og nánast alls staðar annars staðar þar sem forsætisráðherra hefur haldið sig.

Íslenska Læknamafían á Facebook!!

Nú geturðu gengið í grúppu Íslensku Læknamafíunnar á Facebook.
Íslenska Læknamafían hefur stofnað mafíu í Mafia Wars á Facebook og biður allar íslenskar konur í leit að brjóstastækkunum velkomnar.
Konur sem eiga veik börn sem þarf að senda til útlanda í aðgerðir þegar íslenska læknamafían gerir mistök eru ekki velkomnar.
Zynga Games hafa tilkynnt að þeir muni bæta við sérkafla um Ísland á næstu misserum þar sem þú getur m.a. gengið í íslensku mafíuna þar , þ.m.t. læknamafíuna.
Fyrir þá sem hafa áhuga , endilega senda póst á HerrDoktorJens í Mafia Wars.