Popular Posts

Friday, February 10, 2012

Er verið að nota kosningaseðilinn þinn til að fjármagna hvítþvegið eiturlyfjafé?

Sumir hafa tjáð mér að þeir séu þeirrar skoðunar að Alþingishúsið sé rekstrarmiðstöð fyrir hvítþvegið eiturlyfjafé. Ef það er rétt væri ég sammála því að örugglega hljóta að vera einhverjir í Alþingishúsinu sem hafi ekki vitað af því. Sjálfur tel ég að næst þegar kosningar verða haldnar hér á landi , þegar kosið verður til Alþingis , séu líkur á að ég sé að sóa peningum mínum meir en ég hef þegar gert , og hugsanlega taka þátt í dreifingu hvítþvegins eiturlyfjafés óafvitandi. Ég hef oft heyrt um hvítþvegið eiturlyfjafé áður , en ég fór að spyrja fólk um málið og eitt af svörunum sem ég fékk var að Alþingi hljóti að hafa verið notað til að dreifa eiturlyfjafé og eiturlyfjum síðan frá stofnun þess.
Tjón af völdum starfsemi innan Alþingishússins er tamið nema á allt að þriðja til fjórða þúsund milljarða íslenskra króna. Tjónið er rakið til kolvitlausra ákvarðana eða ákvarðana sem voru teknar skipulega með það að markmiði að draga úr trúverðugleika íslenska efnahagslífsins í augum fjárfesta sem höfðu talið að það væri öruggt að fjárfesta í landi eins og Íslandi. Hatar fólk sjálft sig virkilega svo mikið að það er tilbúið til þess að leyfa bláókunnugu fólki sem það þekkir ekki bofs , að koma íslensku þjóðinni sem það segist svo annt um í annað gjaldþrot , finnast það bara allt í lagi , og gera ekkert í því? Eða er kominn tími til þess að gera eitthvað? Framtíð þín er ekki neins virði nema þú gerir hana einhvers virði!
Hugsaðu áður en þú kýst - helst nokkrum árum áður en komið er að kosningadegi - sjálfsímynd þín er órjúfanlegur hluti af þínu lífi og ef hún er nógu léleg til að þér finnist allt í lagi að manneskja sem hatar þig og þína hagsmuni fari með öll völd í samfélaginu , þá ertu í virkilega vondum málum......ef þú vilt vera í góðum málum , hugsa aðeins áður en farið er á kjörstað og spyrja spurninga eins og - eru líkur á að ég sé að sóa tíma og orku í hvítþvegið eiturlyfjafé með því að kjósa þennan eða hinn stjórnmálaflokkinn?

No comments:

Post a Comment