![]() |
| Kolbeinn Kafteinn þjáist ekki af samsemdarefasemdum eins og Ed Chiriani hefur verið sakaður um. |
Kolbeinn Kafteinn , Tinni og Vandráður hafa haft samband við mann nokkurn sem gengur undir hinu þekkta nafni Ed Chiarini vegna nýlegra myndbanda sem hann hefur sett á youtube.com og sem ruglað hafa margann í rýminu. Á myndböndunum kemur m.a. fram að David Icke sé Richard Branson og Julian Sands sé Julian Assange. Hinum frægu eigendum Hótels Myllusetur var illa brugðið í brún þegar þeir fréttu af því að Ed hafi ruglað saman Vælu Veilólínó við Irmu , Kolbeini Kafteini við Jósef , Kobba við svartann púðluhund og loks Tinna við Tsjang.
Tinni hringdi fyrstur í Ed , og brást hinn rólegasti við og krafðist skýringa. ´Ég held að þú sérst Tsjang og búi í Tíbet og að Tinni hafi aldrei búið á Myllusetri´, sagði Ed hinn rólegasti á móti.
Kolbeinn Kafteinn brást hinn alversti við og hótaði Ed öllu illu. ´Þú ætlar þó ekki að halda áfram að rugla mér við Jósef? Að þú skulir ekki skammast þín , grámygluga hafbjúgað þitt!´
Ed sagðist áfram lýsa yfir að Kolbeinn sé Jósef.
Jósef hefur sent Ed bréf frá Myllusetri með skýringum þess efnis að hann og Kolbeinn séu ólíkir karakterar. Irma hefur hótað verkfalli en allir sem hafa komið til Mylluseturs og séð íbúana þar og haft dagleg samskipti vita hins vegar hið sanna í málinu. Ljóst er að Ed á von á miklum vandræðum framundan. Ekki hefur verið haft samband við Julian Sands vegna málsins. Meira að segja sjálfur Vandráður prófessor hefur fengið að kenna á Ed og ruglinu í rýminu á honum , og verið lýstur Skapti og Skafti. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur aðdáendum Tinnabókanna um víða veröld ekki tekist að hafa samband við Ed vegna málsins......

No comments:
Post a Comment