Popular Posts

Tuesday, January 29, 2013

Við unnum!!

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafa lýst yfir að þau hafi unnið IceSave.
Sem kunnugt er vann íslenska þjóðin IceSave en þessu eru Jóhanna og Steingrímur ósammála.
Rök Jóhönnu eru þau að Íslendingar viti ekkert í sinn haus en að hún viti jafnframt allt miklu betur heldur en allir hinir og rök Steingríms eru þau að Jóhanna hafi ekki hundsvit á því hvað hún hafi verið að tala um. Jóhanna svaraði Steingrími í fullum hálsi og sagði að hún gæti þess vegna haft kattarvit á því í stað hundsvits.
Össur Skarphéðinsson hefur lýst yfir að um mikinn sigur hafi verið að ræða. Það sé vissulega rétt að Jóhanna og Steingrímur hafi unnið IceSave. Það sé hins vegar sorglegt að þurfa að horfa upp á vesalings skötuhjúin rífast um það hvor aðilinn hafi unnið IceSave. Það sé eins og að fara í leikskóla og horfa á litla krakka rífast. IceSave er eins og loftbóla sem springur á endanum og verður að engu , en það þykir sorglegt að fleiri íslenskir Alþingismenn og ráðamenn séu ekki meðvitaðri um notkunarmöguleika loftbólna en þetta. ´En hvernig í ósköpunum fóruð þið að því að vinna IceSave´var Jóhanna spurð af viðmælanda hennar. ´Nú við unnum með því að fara fyrst samningsleiðina , svo samkomulagsleiðina´. ´Og hver var samningsleiðin?´ ´Hún var sú að öll dýrin í skóginum ættu að vera óvinir´. ´Og hver var samkomulagsleiðin?´ ´Hún var sú að það væri samkomulagsatriði að hér hafi mikill sigur verið unninn. Ég og Steingrímur unnum þennan sigur , en við höfðum allan tímann vitað að allt IceSave dæmið var tóm steypa frá upphafi og frá fyrstu umræðu um IceSave´.
´Hefði ekki verið nær að viðurkenna að íslenska þjóðin hafi unnið IceSave?´
´Réttlæti , ekki ranglæti! Vanhæfur viðmælandi! Vanhæfur viðmælandi! Vanhæfur viðmælandi!´

Skilaboð til starfsmanna Aspartamestofnunar

Gamalt eintak af myndbandi með Dóru Landönnuði er enn í óskilum. Vinsamlega skilið myndbandinu sem allra fyrst.
Takk fyrir,

Stjórnin.

Monday, January 28, 2013

Tapað og fundið - gamalt handrit frá Timbuktu um kynlíf loðfroska

Gamalt handrit frá Timbuktu hefur sloppið undan ofsóknum sem sagt er að geysi nú um þessar mundir á því merka landssvæði. Handritið fjallar um kynlífsathafnir loðfroska og ýmsar áhugaverðar og merkilegar uppgötvanir sem gerðar hafa verið á þessu merkilega froskasamfélagi.

Stofna islamskt ríki í Mið - Afríku

Sumir loðfroskar eru miklir unnendur Kóransins og íhuga alvarlega að auka útbreiðslu Islams í heiminum. Hér sést loðfroskur leggjast á bæn frammi fyrir Allah.
Loðfroskar hafa ákveðið að stofna islamskt ríki í Mið - Afríku í kjölfar fregna af átökum í Malí.
Loðfroskarnir hafa engu að tapa og hafa aukið fylgi sitt en þeir þykja illir viðureignar og stórhættulegir þegar þeir verja sig með kjafti og klóm sem þeir eru frægir fyrir.
Talið var lengi að loðfroskar væru illa menntaðir og ættu erfitt með að tjá sig en eftir tilraunir til að láta nokkra loðfroska lesa Kórana kom í ljós að svo væri ekki. Loðfroskar virðast hafa mest gaman af því að borða Kóranana eftir að þeir hafa lesið þá.
Margir loðfroskar hafa lært að lesa og skrifa og nota byssur og fleira sér til varnar gagnvart árásum annara loðfroska.
Loðfroskarnir hafa komið upp Shaira lögum en þau eru frábrugðin hefðbundnum Shairah lögum þar sem að virðing er borin fyrir stöðu kvenna meðal meðlima loðfroskastofnsins.

Strumparnir banna Ögmund

Æðsti Strumpur og Gáfnastrumpur eru andvígir árásum Ögmundar Jónassonar ráðherra á strumpahús sem þykja mikil prýði.
Strumparnir hafa sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að þeir hyggist banna Ögmund.
Gáfnastrumpur hefur farið yfir tilkynningar frá Ögmundi Jónassyni um drög að þingályktunartillögu um bann við klámi á internetinu.
Gáfnastrumpur gerði ítarlega rannsókn á starfsemi Ögmundar á dögunum og komst að því að hér væri um aðila að ræða sem líklega ógnaði hagsmunum íbúa Strumpabæjar og nærliggjandi þorpa.
Gáfnastrumpur er mikill sérfræðingur í heimskulegum lagafrumvörpum og hefur samið langann lista yfir heimskuleg lagafrumvörp frá ýmsum heimshornum.
Meðal lista yfir efni sem Ögmundur telur vera klám má nefna strumpahús , köttinn Brand , Biblíur , gataða sokka , Harry Potter dagbækur , danskar marglyttur , Barbídúkkur og fleira.
Æðsti Strumpur er sammála ummælum Gáfnastrumps í garð Ögmundar að hér sé um stórhættulegan aðila að ræða sem sé til alls vís , hann gæti jafnvel bannað hunda - og kattahús og þá eigi hundar og kettir í engin hús að venda nema mannanna hús.
Allir strumpar og strympur sem málið varða eru beðnir um að segja sitt álit á frumvarpi Ögmundar gegn klámi á næstu misserum.

Fyrrverandi möppudýr á leið til Íslands


Möppudýr laðast gjarnan að framandlegum eyjum svo sem Íslandi þar sem þau geta fengið að stunda iðju sína undir ekki eins miklu álagi og í þeim löndum þar sem þau eiga erfiðara með að gera það heima fyrir.
Aðili af ætt möppudýra er væntanlegur til landsins en um er að ræða kvenkyns eintak af þessari merkilegu dýrategund.
Möppudýr eru aðallega þekkt fyrir að hangsast í möppuvinnslu en vart nenna nokkru öðru.
Möppudýrið ætlar að deila reynslu sinni af daglegu lífi í ævi möppudýrs.
Mikið af möppudýrum hafa komið fram undanfarin misseri og sagst vera ´fyrrverandi´möppudýr.
Kannski hafa möppudýrin mismælt sig og átt við að þau væru búin að fara yfir möppurnar á einum stað og séu að bíða eftir að fá að fara yfir möppurnar á öðrum stað.
Möppudýr geta verið stórhættuleg og eru dæmi um að veitt hafi verið verðlaun hverjum sem geti handsamað eða leitt til handsömunar þessarar sjaldgæfu dýrategundar sem þó virðist ganga nokkuð vel með að endurnýja stofn sinn.

Sunday, January 27, 2013

Tapað og fundið - gamall víbrator

Gamall víbrator frá árinu 1899 til sölu. Áhugasamir endilega hringið í Gunnar Gunnarsson víbratorsfræðing. Gunnar Gunnarsson er með BA gráðu í víbratorarannsóknum en hann brautskráðist með BA gráðuna 2009.

Guð kemst að hann sé tvíkynhneigður

Tvíkynhneigð Guðs leynir sér ekki.
Guð hefur komist að þeirri niðurstöðu að hann sé tvíkynhneigður. Guð komst að þessari niðurstöðu í fyrrakvöld þrátt fyrir þráláta orðróma á internetinu þess efnis að hann sé tvíkynhneigður.
Guð fordæmir ítrekaðar tilraunir rússneskra yfirvalda til að ráðast á homma og lesbíur og er mikill aðdáandi hljómsveitarinnar Pussy Riot.
Guð hefur verið hinn hressasti á dögunum svo að ásakanir um að hann hafi verið að grenja í gærkvöldi eru algjörlega á skjön við raunveruleikann að hans dómi.
Guð hefur haft úr nógu að snúast undanfarin misseri - meðal verkefna hefur verið að koma á fót sérstakri móttökudeild fyrir fíla í himnaríki , auka umhirðu trjáplantna , henda í ruslið gömlum , úreltum hugmyndum , rita eiginhandaráritun í Guðbrandsbiblíu og margt fleira skemmtilegt.

Fred Flintstone

Er vinsamlega beðinn um að hafa uppi á Barney. Barney týndist í Kringlunni á föstudaginn.

Ábending til prófessora

Sést hefur til leikara sem segist vera prófessor sem hefur sérþekkingu á Sandy Hook atburðinum. Vakin skal athygli á því að leikarinn virðist ekki vita að á Íslandi er hægt að vera prófessor án þess að vera skráður opinberlega sem slíkur. Þessi leikari er sem sagt algjör prófessor!!

Tapað og fundið

Farsími frá árinu 2006 fannst í gröf manns frá árinu 1888 og reyndist hafa elst samkvæmt því. Áhugamenn um tímaferðir og tímaferðalanga eru vinsamlega og kurteisislega látnir vita af fundinum.

Nornaveiðarar!!

Munið Nornaveiðaradaginn. Alþjóðlegi Nornaveiðaradagurinn er haldinn í Menningarhúsinu 28. janúar ár hvert.

Saturday, January 26, 2013

Bíll Batman varð fyrir blæðingu

Batman gleymdi að fara á vísir.is og lesa Morgunblaðið og DV á dögunum á meðan hann ferðaðist um landið á bílnum sínum á tímabilinu þegar tjöruvesenið stóð sem hæst. Fari það í blæðandi tjöru!!
Batman bíllinn verður tímabundið ónothæfur eftir blæðingu. Leðurblökumaðurinn hefur sent yfirlýsingu frá sér þess efnis að hann taki blæðingunni mjög sárlega. Hann sé auðvitað hlynntur notkun annara eldsneytisgjafa en þeirra sem eyða mest svo sem metanóls og annara gagnslausra aflgjafa. Batman hyggst á næstu misserum skipta repjuolíunni út fyrir rafhlöðugeymi og hafa Batman og Robin fjárfest í fyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði hönnunar slíkra orkugjafa en þeir munu reynast framtíðin á sviði orkunotkunar bíla næstu áratugi. Hingað til hefur rafhlaðan verið pínulítil en það gæti breyst ef menn fara að nota rafhlöður til að framleiða rafmagn fyrir skip , flugvéla , bíla og húsnæði.

Saturday, January 19, 2013

Holjarðarbjór til sölu

Holjarðarbjór er nú loksins fáanlegur á Vestfjörðum. Áhugasamir eru endilega beðnir um að hafa samband við formann Holjarðabjórs ehf en hann heitir Skírskot Arharhreiðursson.

Drekar mótmæla olíuvinnslu á Drekasvæðinu

Drekar um allan heim hafa safnað saman undirskriftalista undir yfirskriftini ´Björgum Drekasvæðinu´þar sem farið er fram á að drekasvæðið njóti verndar samkvæmt alþjóðlegum náttúruverndarlögum. Þeir sem eru fyrirferðarmestir í þessum hópi dreka eru að sjálfsögðu sædrekarnir. Drekarnir eru mjög ósáttir við ástand mála á Drekasvæðinu og vilja benda öðrum drekum á mikilvægi þess að verja hagsmuni svæðisins fyrir ágengi þeirra sem ekki eru drekar. Drekarnir eru alfarið á móti olíuleit á svæðinu , þeir telja að menn ættu frekar að einblína á að leita uppi perlur en olíu , því að perlurnar skili miklu meiri hagnaði.
Drekar þykja ansi sjaldgæf sjón nú á dögum og því munu það þykja mikil tíðindi að þeir áti vita af sér í auknari mæli en áður í kjölfar umræðunnar um olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Drekunum hefur hins vegar verið bent á að vilji þeir að undirskriftalisti þeirra verði tekinn alvarlegur verði þeir að sækja um ríkisborgararétt.

Monday, January 14, 2013

NASA uppgötva tilvist ´Almost Game Over´vera

Ljóst er að Bill Gates er ekki heppilegasta dæmið um ´Almost Game Over´veru.
Vísindamenn hjá NASA hafa uppgötvað að ´Almost Game Over´verur þrífist á reikistjörnu sem líkist Jörðinni , að þar noti menn Facebook eins og hér , en að nöfnin þeirra séu hins vegar stórfurðuleg , svo mjög að vart er hægt að stafa nöfn sumra ´Almost Game Over´veranna.
Hingað til hafa ýmsir áhugamenn um geimverur og geimverufræðingar unnið í ró og næði við að flokka ýmsar gerðir geimvera , allt frá ´Game Over´verum til ´Start Game´vera , og allt þar á milli. Talið er að rannsóknir vísindamannanna á hinni annars tæknilega háþróuðu siðmenningu muni skila góðum árangri í að skilja hvernig líf hafi þróast þar.
Eitt af nöfnunum sem kemur upp þegar leitað er að ´Almost Game Over´verum á Facebook er ´Interrogist Methodologies´ en geimverur af þessari gerð hafa gaman af að þykjast vera verur sem búa á Jörðinni og hafa náð góðri jarðtengingu og hafa jafnvel reynt að skrifa pósta til sjálfra sín á þeirra útgáfu af Wordpress - inu með það að markmiði að fá Jarðarbúa til að halda , að þær séu fæddar og uppaldar hér.
Magnús H. Skarphéðinsson , sérfræðingur Íslands í geimverum , hefur ekki fengið fyrirspurn um það hvers eðlis ´Almost Game Over´verur séu og t.d. hver sé munurinn á þeim og ´Game Over´verum.

Fá ekki að nota fílapensla

Mugabe vill hafa hemil á fílahjörðum séu þær staddar í nágrenni Zimbabwe eða á yfirráðasvæði hans og félaga hans. Mugabe telur að með því að hafa hemil á fílum og banna þeim að segja fílabrandara megi koma í veg fyrir að fílabrandarar lendi á válista yfir tegundir brandara í útrýmingarhættu.
Robert Mugabe hefur tilkynnt öllum fílum í Zimbabwe að þeir megi ekki verða sér úti um fílapensla til þess að mála myndir. Þeir megi aðeins verða sér úti um sams konar gerðir af penslum og þeim sem mannfólkið notar. Fílarnir í Zimbabwe eru mjög óhressir með þessa ákvörðun enda er einræðisstjórnin þar þekkt fyrir ýmsar heimskulegar og skrýtnar ákvarðanir.
Fílarnir hafa bent á að mannfólkið sé full fært um að framleiða fílapensla og furða sig á því af hverju þeir megi ekki verða sér sjálfir úti um fílapensla.
Þá hefur þeim verið tjáð að þeir megi ekki prumpa á almannafæri og að þeir megi alls ekki segja brandara um sjálfa sig og starfsemi sína.
Fílar þykja hættuleg hryðjuverkasamtök í augum sumra Afríkubúa og því telja yfirvöld í Zimbabwe að nauðsynlegt sé að hafa hemil á fílahjörðunum.
Þá hefur nashyrningum verið tjáð að þeim sé bannað að vera nærsýnir og að framvegis eigi þeir að vera fjarsýnir.

Loch Ness skrímslið vill fá staðfestingu frá Baggalút - er Lagarfljótsormur í raun allur??

Loch Ness skrímslið er mikill aðdáandi Lagarfljótsormsins og krefst skýringa á frétt um andlát hans.
Loch Ness skrímslið hefur sent skoskum yfirvöldum beiðni um að fá að höfða mál á hendur Baggalúti í kjölfar fréttatilkynningar þess efnis að Lagarfljótsormurinn sé allur.
Loch Ness skrímslið virðist ekki sammála opinberum skýringum um að lagarfljótsormurinn sé allur og hefur því tekið ákvörðun um að fara dómstólaleiðina.

Álftamýrarskóli hættir við að reka nemanda með sjóndepurð

Álftamýrarskóli hefur hætt við að reka nemanda með sjóndepurð en til stóð að gera það eftir að nemandinn hafði fyrir slysni skrifað ´andlát skal haft í nærveru sálar´en nemandinn hafði ruglast á skilti í skólanum sem á stendur ´aðgát skal höfð í nærveru sálar´.
Foreldrar nemandans vilja vinsamlega og kurteisislega koma á framfæri skilaboðum til skólayfirvalda og menntamálaráðuneytis með afsökunarbeiðni.
Menntamálaráðherra hefur þegar svarað foreldrunum til baka með fokkmerki.

Bandarískir vísindamenn uppgötva áþreifanlegar sannanir fyrir tilvist bandarískra ríkisborgaera

Bandarískir vísindamenn sem eru sérfræðingar í að káfa á fólki og starfa aðallega á bandarískum flugvöllum telja sig hafa komist yfir tilvist áþreifanlegra sannana þess efnis að bandarískir ríkisborgarar séu til.
Eftir að hafa káfað á 21 þúsund bandarískum ríkisborgurum ákváðu vísindamennirnir að halda ráðstefnu uppgötvun sinni til heiðurs. Sem kunnugt er uppgötva bandarískir vísindamenn aðallega það sem þeim er sagt að uppgötva en stundum kemur þó fyrir að sumir þeirra taka ansi djarfar og sjálfstæðar ákvarðanir í uppgötvana - og rannsóknagleði sinni. Vísindamennirnir umræddu sérhæfa sig fyrst og fremst í að þukla á kynfærum fólks þegar það ferðast á milli landa. Þeir eiga erfitt með að skilja af hverju aðrir vísindamenn þurfa ekki endilega að staðfesta tilvist bandarískra ríkisborgara þegar ferðast er á milli landa.
Ráðstefnunni ´On the Discovery of American Citizens in the United States of America´lauk í dag en hún var haldin á föstudaginn og stóð til morgunns. Eftir ráðstefnuna voru allir sofnaðir úr leiðindum þar til einhver minntist á japönsku kvikmyndina ´Flower of Flesh and Blood´.

Sunday, January 13, 2013

Lísa í Undralandi fordæmir brottrekstur íbúa þaðan

Lísa í Undralandi er mikill andstæðingur þess að íbúum þar sem hafa aðgang að samfélagsmiðlum svo sem Fésbókinni sé hent út annars lagið ef tilefnið til slíks þykir smávægilegt í sumum tilfellum. Líklega var það kanínan sem var hent út í þetta skiptið.
Hin kunna ævintýrapersóna Lísa í Undralandi hefur ákveðið að koma á framfæri skilaboðum til ritstjórnar Undralandsins á Fésbókinn þar sem brottrekstri íbúa er mótmælt en þó að menn hafi verið spurðir hvað hafi orðið til brottreksturs téðs aðila , virðast enn ekki hafa komið fram nein skýr svör um hvað hafi farið úrskeiðis í samskiptum á milli ritstjórnar og téðs aðila.
Lísa er ekkert sérstaklega hrifin af því að stofnuð sé vefsíða henni og íbúum landsins sem hún varð heimsfræg fyrir að sækja heim eftir að hafa kynnst hvítri kanínu þar sem hægt sé að reka íbúa úr Undralandinu með að því er virðist , tiltölulega litlum fyrirvara.
Lísa vill minna menn á mikilvægi þess hver það sé sem menn eigi að bera mesta virðingu fyrir af öllum íbúum Undralands og helst fara eftir ákvörðunum hennar í einu og öllu. Lísa í Undralandi er mjög ósátt við framgang mála í þessu undarlega máli sem aldrei hefði þurft að verða svona undarlegt ef þar hæfist enginn við sem væri stórundarlegur , sem gerir málið einmitt svona skemmtilega undarlegt. Undraland samanstendur aðallega af undarlegu fólki annars vegar og stórundarlegu fólki hins vegar. Í skógi nokkrum fyrirfinnst köttur einn sem hefur mikinn áhuga á geðlæknisfræði , og stöku sinnum heimsækir hvít kanína Undralandið þegar henni leiðist. Minnstu munaði að holunni sem nær inn í Undraland yrði lokað á dögunum í kjölfar framkvæmda við gerð golfvallar í nágrenni kanínunnar. Íbúar Undralands tengdust Fésbókinni fyrir rúmum 4 árum síðan og nú er Drottningin í Undralandi loksins komin með ljósleiðara.

Steingrímur J. Sigfússon lærir að kveðja á 46 mismunandi tungumálum

Steingrímur J. Sigfússon hefur farið á tungumálanámskeið til að bæta við sig fjölda tungumála sem hann hefur lært um ævina , en eitt af því sem hann hefur kynnt sér sérstaklega fyrir varðandi þessi tungumál er hefðbundnir kveðjusiðir. 

Lyf við skammdegisþunglyndi þróað

Vísindamenn hafa þróað lyf við skammdegisþunglyndi. Lyfið virkar þannig að það breytir skammdegisþunglyndi í síðdegisþunglyndi svo að hinn þunglyndi geti einfaldlega stýrt því betur hvenær næsta þunglyndiskast muni koma fram.

Áríðandi skilaboð til refa

Síðustu refaskórnir runnu út í dag........

Eli Roth tjáir sig um framhald Last Exorcism

Eli Roth hefur átt í miklum vandræðum upp á síðkastið með að tjá sig um framhald ´síðustu særingarinnar´eða ´the Last Exorcism´en í ljós hefur komið að ´the Last Exorcism´getur ekki mögulega titlast svo verði framhaldið sem þegar hefur látið trailer sinn dagsins ljós látið heita Last Exorcism 2. Þar með virðist aldrei ætla að koma almennilegt samkomulag um það hvernig í ósköpunum Eli hafi látið sér það detta í hug að Last Exorcism sé í raun ekki Last Exorcism heldur ´Just another Exorcism´.
Eli Roth hefur útskýrt furðumál þetta með þeim hætti að hann kæri sig köllóttan um hvað öðrum finnst um kvikmyndir hans eða hvað þær eigi að heita.

VILJA ELDRI BORGARA BURT AF MYND - MÓTMÆLENDUR

´Þið eruð næst´. Í skoðun er hjá Sjálfstæðisflokknum að svipta eldra parið ellilífeyri í kjölfar mikillra umkvartana um efni myndarinnar.


Stór hópur mótmælenda hringdi í íbúðarhúsnæði í hverfi 101 í Reykjavík á dögunum til að mótmæla nærveru eldra , sjentílmannlegs pars á skissu sem hafði orðið viðskila við eiganda sinn í rúma viku nokkrum dögum eftir að síðasta degi jóla lauk.
Fólkið vill koma á framfæri skoðun sinni þess efnis að höfundur myndarinnar sé ´hálfviti , brjálæðingur og algjört fífl´fyrir að hafa málað nokkrar myndir ásamt þessari þar sem börn eru sýnd myrt , étin eða limlest á hrottafenginn hátt. Óhugnanlegasta atriði myndarinnar sýnir stúlku sem er nýbúin að drepa eldri bróður sinn.
Myndirnar eru unnar í akrýl og eru málaðar í kjölfar mikillrar umræðu um misnotkun gegn börnums em staðið hefur yfir í meira en 2 áratugi á Íslandi og í mörgum löndum víðs vegar um heiminn.
Eins og sjá má á myndinni þá var eldri bróðirinn líklega skorinn á háls og augun stungin út fyrir að vera með leiðindi við systur sína. Kannski gekk þeim systkynum eitthvað annað til. Því miður er ekki hægt að verða við kröfum mótmælendanna og eru þeir vinsamlega og kurteisislega beðnir um að skilja að íslensk stjórnvöld og lögregluyfirvöld líka taki nærveru eldri borgara í íslensku samfélagi af stökustu ró , nema auðvitað í tilfellum þeirra sem hafa allt á hornum sér og er með vesen og vandræði úti um allt. Í skoðun er hjá kjörskrifstofu Sjálfstæðisflokksins að refsa eldra parinu með því að svipta þau ellilífeyrisréttindum sínum og koma þeim einhvers staðar í vinnu , líklega á Sauðárkróki.