Popular Posts

Tuesday, March 6, 2012

Davíð og Geir báru vitni - vitnin blindfull


Óáreiðanlegt vitni í réttarhöldum. Guð er meðal þeirra sem hafa enn ekki verið kallaðir til vitnis um hrunið

Davíð og Geir H. Haarde hafa borið vitni í dag og gær í hinu alþekkta spillingarmáli tengdu hruni íslensku bankanna.
Davíð bar dágóðann fjölda vitna með sér í réttarsalinn og í gær hafði Geir einnig borið með sér vitni sem fylgdu honum.

Alkóhólistar hafa í a.m.k. 1. tilfelli átt von á því að vera sviptir sjálfræði og dæmdir geðveikir og sektaðir og settir í fangelsi fyrir að stela 1000 krónum úr verslun á Íslandi - en steli 40 manna hópur 1000 milljörðum þá er farið öðruvísi að og þeir sem vara við og reyna að gera það í tæka tíð gætu átt von á að vera kallaðir nöfnum á borð við ´ósómi Íslands´.

Báðir höfðu ekki verið upplýstir um það að þeir ættu að bera vitni , en ekki fólk með sér inn í salinn sem segðust vera vitni.....Guð og Allah hafa ekki verið kallaðir til vitnis um nákvæmlega hvað fór úrskeiðis en í ræðu fyrir nokkrum árum nefndi Davíð Oddsson Búddha og Allah. Vantrúar - og Siðmenntarfólk hefur sakað Guð og Allah um að hafa ekki getað komið í veg fyrir áhrif hrunsins á samfélög kristinna manna og múslíma á Íslandi en hvorki Guð né Allah hafa svo vitað til tekið ákvörðun um hvort beri að svara þeim ásökunum.Vitnin sem Davíð og Geir reyndu að bera með sér í réttarsal reyndust blindfull og óáreiðanleg og því ákváðu dómarar og verjendur og saksóknari að hlusta frekar á röksemdir sakborninga.


Mjög óáreiðanlegt vitni. Allah - hefur ekki verið kallaður til vitnis um hrunið

Mjög áreiðanlegt vitni. Hefur oft verið kallaður til vitnis áður í frægum réttarhöldum , svo sem t.d. Nuremberg réttarhöldunum.

No comments:

Post a Comment