KEPPA Í VÆLI.
Sjálfstæðismenn, Framsókn, Samfylking, Vinstri Grænir, Hreyfingin og fleiri hyggjast keppa í væli í kvöld.
Landssamtök íslenskra útvegsmanna eða LÍÚ munu þjálfa liðsmenn hreyfinganna og formenn til þess að keppa í vælinu sem á að fara fram í kvöld þegar þingmenn stjórnmálaflokkanna keppa með það að markmiði að væla sem mest þeir mega.
Væl er ein vinsælasta, óviðurkennda íþróttin um þessar mundir og er ekki vitað sem stendur hvernig þessi íþrótt fór að því að verða svona vinsæl en um það hafa spunnist ýmsar kenningar.
Talið er að fyrstu vælukjóarnir hafi komið fram á sjónarsviðið fyrir langa, langa, langa löngu síðan og verið upprunalega letidýr en ekki bavíanar eins og sumir hafa haldið fram enda eru bavíanar mjög fjörugir og apakettir sömuleiðis og kunna lítið að væla, aðallega arga og garga.
Þar sem vitað er að arg og garg eru ekki íþróttir verður auðvitað ekki keppt í því í kvöld, en formenn stjórnmálaflokkanna eru yfir sig hrifnir af því að nú skuli í fyrsta sinn keppt í væli á opinberum vettvangi.
Þá hefur landsmönnum verið tjáð í fjölmiðlum að aldrei hafi verið meiri valmöguleikar í boði en miðað við hversu háar fylgisprósentur valmöguleikarnir fá má líta svo á að hér sé auðvitað um bull eitt að ræða og ekkert nema tómt bull.
Keppendum í væli en keppnin fer fram í Þorlákshöfn er óskað góðs gengis. Spáð er að Bjarni Ben lendi í fyrsta sæti, Sigmundur Davíð í öðru sæti, formaður Samfylkingar í því þriðja, og Katrín Jakobsdóttir í því fjórða.
Formenn flokkanna hafa farið í sérstakt vælunámskeið og eru því vel undirbúnir í slaginn.

No comments:
Post a Comment