Popular Posts

Tuesday, November 29, 2011

Drapst úr leiðindum........Hunter S. Thompson

Færustu sérfræðingar rannsókna á sviði sjálsvíga hafa komist að þeirri niðurstöðu að Hunter S. Thompson hafi drepist úr leiðindum - opinbera skýringin á dauða hans segir að hann hafi framið sjálfsmorð , en líklegast voru það að öllum líkindum leiðindi sem drógu manninn til dauða. Skiljanlegt enda hafði hann lítið annað að gera síðustu daga ævi sinnar en að skjóta út í loftið , hæfa stundum , skrifa eitthvað sem fyrir flestum þá kæmi fyrir sjónir sem algjört bull , og setja upp sína frægu Richard Nixon grímu. Þessi snillingur er þó meðal merkustu gáfumenna sem uppi hafa verið fyrr og síðar.
Nýlegt fórnarlamb sjálfsvígs vegna leiðinda var Barack Obama - en um er að ræða auðvitað pólitískt sjálfsvíg , ekki sjálfsvíg ´a la Gonzo style´........þannig að til allrar hamingju fyrir furðulega og drepfyndna unnendur Obama er Obama enn á lífi...........eftir öll heimskulegu prakkarastrikin sín. Hvurs vegna í ósköpunum ætti hann að fá eitthvað í skóinn á jólunum????

Menntamálaráðherra skyldar hunda til að tala kínversku......

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur farið fram á að allir hundar skuli tala kínversku hyggist eigendur hunda sem sæki nám í hundaskólum skrá hunda sína í nám í hundaskóla á Íslandi.
Til stendur að reisa hundaskóla í Grindavík en ekki hefur verið gefið upp hver á að reisa skólann.
Menntamálaráðherra telur að með því að skylda alla íslenska hunda til að læra kínversku , þá aukist líkurnar verulega á því að íslenskir hundar geti skilið kínverska hunda.
Tilefnið er niðurstaða rannsókna vísindamanna sem sérhæfa sig í hundum , þess efnis að allir hundar séu upprunalega ættaðir frá Asíu......nú er hins vegar spurning HVAR Í DÍSKOTANUM Í ASÍU??

Thursday, November 17, 2011

Fáviti ættaður úr Færeyjum skaut á Hvíta Húsið

Óskar heilalausi er mikill unnandi Færeyja. Það var nefnilega í Baggalútíu sem fyrst voru fram lögð drög að tillögu um yfirtöku Færeyja.
Fáviti ættaður úr Færeyjum skaut á Hvíta Húsið. Reikningum hans hafði verið lokað í Baggalútíu , á Sannleikanum , á Kaffi Blút , á íslenska irkinu og fleiri stöðum þar sem hann hélt því ítrekað fram að það sé gáfuleg hugmynd að skjóta á Hvíta Húsið - húsið sjálft sé nefnilega vont , a skiptir engu máli  hvort þeir sem starfi þar inni starfi við góðann eða slæmann starfsanda - neeei - ef eitthvað er að í húsinu er það húsið sjálft sem er vont. Í rannsóknarskýrslum hjá CIA , FBI , Pentagon og Homeland Security kemur fram að hann horfi vikulega á Guffa og hafi mótmælt yfirtökum Íslendinga á Færeyjum og vilji að Færeyjar öðlist sjálfstæði úr hendi grimmra og skefjalausra Íslendinga sem svífist einskis í að ná sínum markmiðum fram.
Spurning til Óskars; væri ekki gáfulegra að skjóta hreindýr heldur en Funkishús?

Geimverur frá Arktúrusi!!

Snæfellsjökull er með afsakið hlé sem stendur........

Wednesday, November 16, 2011

Tvífari Stalíns gengur í Undraland - Fésbókarfrétt mánaðarins!!

Skuggalega líkur Stalín. Fór Stalín kannski í yngingaraðgerð?
Það vottast hér með að tvífari Stalíns hafi uppgötvast á undanförnum misserum eftir langa og erfiða leit ættfræðinga á Íslandi að hinum eina sanna , íslenska Stalín. Að vísu tókst þeim ekki að finna íslenskan Stalín sem væri nógu líkur Stalín í útliti , en þeir fundu einn amerískann sem er það líkur Stalín að meirihluti þeirra kana sem hafa hlustað á hann tóku ekkert eftir því - a.m.k. ekki fyrr en hugsanlega síðar frekar en nú. Ýmislegt er líkt í fari þessa manns og Stalíns og því er eðlilegt að upp vakni spurningar. Er þetta hugsanlega tvífari Stalíns eða fór Stalín í yngingaraðgerð og dó kannski aldrei?? Haft hefur þegar verið samband við Hannes Hólmstein Gissurarson stalínfræðing en hann starfar hú sem sérfræðingur Sjálfstæðismanna í stalínfræðum og rannsóknum á öllu sem við kemur Stalín í tengslum við útgáfu bókarinnar Íslenskir kommúnistar. Það er hverjum og einum heilbrigt að velta því f yrir sér a.m.k. 1. sinni á ævinni hvort Stalín hafi ekki haft rétt til þess eins og aðrir samborgaramenn sínir , að gera sjálfann sig ungan aftur - a.m.k. í anda. Slæmt að maðurinn skuli ekki hafa endurtekið slíkar tilraunir oftar en hann gerði.

Eftirfarandi Jólasveinar beðnir um að gefa sig fram strax!!

EFTIRFARANDI JÓLASVEINAR ERU VINSAMLEGA BEÐNIR UM AÐ GEFA SIG STRAX FRAM EF ÞEIR HYGGJAST TAKA ÞÁTT Í NÆSTKOMANDI JÓLASTARFI;

1. Salman Rushdie (bókaskelfir)
2. Einhver af afkomendum Franks Herbert (The Original Father Christmas eins og ég kalla hr. Herbert)
3.Netskrifasprellir
4. Lýbíuhrellir
5. Grátur og Gnístan Tanna.........(óopinbert heiti; verður ekki gefið upp hér af gefnu tilefni)
6. Hurðarskellir (notar stundum pistlahöfundaheitið Tyrannosaurus Kex)
7. Bussyskotsafhleypir (talar norsku og er í haldi og verður líklegast fram yfir jól)
8. Fluggáfaður (mun líklegast aldrei koma til byggða)
9. Treggáfaður (ráðfærir orkufyrirtækin á Íslandi um efnahagsmál - sást síðast uppi að Kárahnjúkum fyrir efnahagshrun ´reiknandi út´að hægt væri að græða meira en 3% á ´arðsemi´´virkjunarinnar´)
10. Lygalaupur...........
11. Ólagasmiður (situr sem fastast sem stendur í stóli landbúnaðar - og sjávarútvegsráðherra).
12. Allir sómalskir jólasveinar búsettir í Danmörku sem ásaka fólk um að vera kynþáttahatarar fyrir að vera það ekki.

Mark Zuckerberg syngur fyrir Salman Rushdie

Pólitískt Alla - Alli eða alla vega ekki kórrekt enn þann dag í dag - herra Salman Rushdie.
Mark Zuckerberg hefur ákveðið að hefja tónleika fyrir Salman Rushdie með það að markmiði að sanna tilvist sína fyrir Rushdie á tónleikunum. Tónleikarnir munu bera hinn skemmtilega og fræðandi titil ´Extraordinary Claims Require Extraordinary Evidence´. Mark mun hafa átt í mestu erfiðleikum með að sanna tilvist sína fyrir kappanum en hingað til hefur tilvist hans verið talin óumdeild eða þar til að Salman skarst í leikinn og benti á á fundi rökfræðinga að það væri í raun spurning hvort að Mark Zuckerberg væri í raun og veru til - það í sjálfu sér væri spurning.
Aðspurður á fundinum hvað hann ætti eiginlega við sagði hann ´jú jú , Facebook var stofnað , en var það stofnað af Mark Zuckerberg? Getur Mark sannað með skynsamlegum rökum að hann sé til? Ef Facebook er til - getum við þar af leiðandi sannað tilvist þess áþreifanlega?´
´Nei´var samþykkt nánast einróma af rökfræðingunum á fundinum , 2 greiddu atkvæði á móti , með þeim mótrökum að það sé engin skeið.

Tuesday, November 15, 2011

Áfram Stjörnugrís! Brjótið ólög!!!!

 Ég er alveg sammála rekstraraðilum Stjörnugríss þess efnis að þeir eigi að brjóta ólög.
Það á að vera siðferðileg skylda allra Jarðarbúa að brjóta ólög - t.d. eiga Suður og Austur Afríkubúar að fara að brjóta þau óskráðu lög að það sé skylda að sýna lífríkinu þarlendis óvirðingu.
Hér á landi á fólk að fara að gera eitthvað svipað og svo verðum við að finna lausnir á því hvað á að gera við úrganginn sem myndlistarmenn og aðrir sem vinna svipuð störf þurfa að losa frá sér.
Það gengur nefnilega einfaldlega alls ekki að hér á landi sé fámennur hópur fólks sem sýnir verslunarrekendum og bændum óvirðingu og vanþakklæti og sem bannar fólki að merkja vörur sem það vill selja og sem er skít - drulluhrætt við Jóhannesarrót og hempu og sem finnst ekkert að því að borða seríos og annað ruslfæði.
Þetta rusl á heima á haugunum , ekki innan um fólk sem vill láta kalla sig fullorðið.
Á haugana með Jón Bjarnason. Fólkið á sambýlunum hagar sér skárra heldur en hann gerir. Og á haugunum er nóg garg að heyra í fyrir hann til þess að hlusta á til þess að við sem erum ekki haugabúar þurfum ekki að heyra það nema helst þegar við löbbum framhjá þessu hundleiðinlega Ráðhúsi Reykjavíkur sem í starfar maður sem finnst allt í lagi að fólk sé lagt í einelti og að menn séu með leynimakk , þegar hann segir að svo sé ekki þá sé einfaldlega ekki svo að hans mati. Voðalega finnst mér að öðrum kosti sjávarútvegs - og landbúnaðarráðuneytið vera gagnslítið. Það var næstum gersamlega gagnslaust í stjórnartíð forvera Jóns Bjarnasonar , eins og t.d. Guðna Ágústssonar þegar hann var landbúnaðarráðherra.
Það er skömm að fullorðið fólk á Íslandi þurfi að biðja annað fullorðið fólk um leyfi til þess að fá sér pylsu. Það er sömuleiðis skömm af Alþingishúsinu. Eða fylgist ég kannski svona lítið með umræðunni?  Ég er auðvitað ósammála hugmyndum um að Stjörnugrís sameinist öðrum stórfyrirtækjum og hef frekar trú á að Stjörnugrís sé rekinn áfram sjálfstætt en með meiri fjárstuðningi en hefur verið hingað til. . Um tíma hafði ég reynt að styðja Jón á Facebook þegar ég taldi að með andstöðu sinni gagnvart ESB væri hann að lýsa yfir stuðningi við vor þjóð. En nú sé ég fram á það að þessi svokallaða andstaða hans hjálpar honum ekkert við að bæta ímynd eins stórlega gallaðrar stofnunar og Sjávarútvegs - og Landbúnaðarráðuneytisins. Kannski er Jón bara svona steiktur!!!!

Saturday, November 12, 2011

David Icke Aðdáendur

Muna töframannsspilið í Illuminati spilaleiknum.

Bandaríska dómsmálaráðuneytið njósnar um Hreyfinguna til að fá upplýsingar um merkingu íslenska orðsins ´að hreyfa sig´

Það vottast hér með að Julian Assange sé skráður meðlimur Hreyfingarinnar - áhugafólks um hreyfingu sem hittist oft í World Class og ræðir málin. Bandaríska dómsmálaráðuneytið álítur Hreyfinguna hluta af samsæri gegn sér.......samsæri fólks sem hefur einfaldlega alls engann áhuga á bandarískum stjórnvöldum eða bandaríska dómsmálaráðuneytinu.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að merking orðsins ´hreyfing´felist í því að hreyfa sig og að því sé Birgitta Jónsdóttir ekki hluti af glæparannsókn.
Össur ákvað að taka bandaríska sendiherran í karphúsið en hefur sjálfur verið marg oft tekinn í karphúsið fyrir þáttöku í alls kyns skepnuskap og sóðaskap á Alþingi , t.d. stuðning við Kárahnjúkavirkjun. ´Málið er það að við hjá ríkisstjórninni erum tilbúin til að verja merkingu íslensku sagnarinnar ´að hreyfa sig´með kjafti og klóm og við ætlum ekkert að fara að láta bandarísk stjórnvöld pirra okkur með einhverjum rugludallaútskýringum á því hvað þessi setning merkir.
Sem kunnugt er samanstendur Hreyfingin af áhugafólki um hreyfingu sem hittist reglulega og stundar líkamsræktarstarfsemi í World Class.
Ljóst er að allt tal um að Hreyfingin sé stjórnmálaflokkur er því einn stór misskilningur.
Líklega hefur enginn trúað þeirri flökkusögu nema sendiherrann í Sendiráði Bandaríkjanna að Laufásvegi........
                                                               Líkamshreyfing og hvers kyns heilsubót eru taldar til glæpsamlegs athæfis að áliti bandarískra stjórnvalda
Íslenska utanríkisráðuneytið ætlar að halda áfram að styðja innrásina í Lýbíu , kínversk stjórnvöld og alls kyns aðra vitleysu og þvælu en samt þykjast vera að verja réttindi þingmanna Hreyfingarinnar til þess að hreyfa sig eins og aðrir Íslendingar..........

Tuesday, November 8, 2011

Björk hefur aldrei heimsótt Jörðina - Barack Obama

Obama stjórnin spurði Vantrú og Siðmennt á dögunum um sannanir fyrir tilvist Bjarkar Guðmundsdóttur

Nýleg skýrsla sem Siðmennt og Vantrú hafa sent Barack Obama bandaríkjaforseta hefur lýst yfir að það sé alls ekki rétt að Björk Guðmundsdóttir hafi nokkurn tímann heimsótt Jörðina.
Barack Obama var hæstánægður með þessa skýrslu og segir að allar frásagnir af tilvist Bjarkar Guðmundsdóttur séu getátur einar , bandarísk stjórnvöld sjái enga ástæðu til að hylma yfir upplýsingum um tilvist hennar. Engin ummerki sé að finna um Björk á neinum tónleikum sem hún á að hafa haldið að sögn. En hins vegar má finna greinilega áþreifanleg ummerki þess efnis að Obama stjórnin sé að biðja um ofbeldisfull viðbrögð frá áhugafólki um líf í geimnum enda hefur það fólk fengið nóg af persónunjósnum og ofsóknum í sinn garð þar ytra því þær trufla rannsóknarstörf þess....
Þessi geimvera hefur opinberlega viðurkennt að hún sé geimvera

Skilaboð til Seðlabankastjóra frá Bill Gates......

An Error occured , please try again later........

Risaeðlur!

Munið kosningadaginn þegar að kemur því hvort á að velja , Hönnu Birnu eða einhverja aðra risaeðlu........

Forstjóri Landsvirkjunar er grænmeti.......

Ljóst er að forstjóri Landsvirkjunar er einhvers konar flatjarðarhaus þegar hann heldur því rugli fram að Urriðafossvirkjun skaði ekki Þjórsá. Það er álíka sama ruglið og þruglið þegar þessir bullukollar héldu fram að Töfrafoss hyrfi ekki með Kárahnjúkavirkjun. Eitt af því sem landsmenn þurfa að fara að átta sig á er að það er ekki lengur forgangsverkefni að kjósa stórann flokk á borð við Sjálfstæðisflokkinn eða Samfylkingu eða annan flokk miðstýringarsinna , og halda að það reddi öllu á endanum. Málið er að miðstýringarsinnar vilja færa allt til miðju og ef það þýðir að búa til drullupolla og sukka og svínaría og breyta fjallgörðum í svínastíur þá má fórnfæra þeim. Þannig hugsar þetta lið. Allt þetta unga fólk sem hræðist betri kjör þegar það eldist á einfaldlega ekki að kjósa yfir sig neina miðstýringarsinna. Miðstýrt vald hefur oft verið nefnt ´sósíalismi andskotans´hér á landi og það er nafn sem það ber með fyrir rentu. Það þýðir eða merkir að hið miðstýra vald hugsi einungis um eigin hagsmuni og beri ekki hagsmuni annara fyrir brjósti - hagsmunir sem slíkir séu miðstýringarsinnum einfaldlega ofvaxinn biti að gleypa. Forstjóri Landsvirkjunar og aumingjar geta haldið áfram að væla og væla , væla og væla yfir því með endalausri þvælu og þvaðri hvað allt er vont og slæmt við að fara í útilega - ef þeir vilja það ekki , sleppa því í staðinn fyrir að gera sjúklega hræðslu við útilegu að vandamáli heillar þjóðar. Það vill enginn sjá þessar virkjanir nema nokkrir rugludallar , og þeim fer fjölgandi sem styðja Sjálfstæðisflokkinn því atvinnurekendur eru ekki nógu duglegir við að hafa fólk ekki í vinnu sem styður miðstýringarsinna. Og atvinnurekendur eiga að hætta að hóta fólki öllu illu ef það gengur ekki í þann flokk sem viðkomandi atvinnurekandi styður - ef þú ert að vinna hjá atvinnurekanda sem þú getur ekki treyst þýðir það að atvinnurekandanum er ekki treystandi - ekki taka áhættuna á því , hún er ekki þess virði þegar til lengri tíma er litið. Horfum bara á Schengen. Er ekki öllum Íslendingum það degi ljósara að Schengen á heima á dögum Evrópusambadsins en ekki í nútímanum? Eða hafa menn gleymt því hvað orðið ´nútími´merkir? Ef svo er , myndu gleraugu eða talkennsla hjálpa þeim?
Grænmeti hafa aldrei verið sérlega gagnleg þegar að kemur stjórnmálum. Enda engir heilar.Því fer verr og miður að Ísland sé enn land hinna klikkuðu karlmanna......hér er smá tillaga handa ungmennum þessa lands - eflum forvarnir gegn miðstýrðum stjórnmálaflokkum!! Var forstjóri Landsvirkjunar kannski Lúlli laukur í fyrra lífi? Munum við ekki öll eftir smjattpöttunum , hvernig er þetta eiginlega??

Dr. Haiter mótmælir persónunjósnum á Íslandi

Eins og allir sem vita hver Dr. Haiter er þá er Dr. Haiter þekktur skurðlæknir í heimalandi sínu og sérfræðingur í aðskilnaði síamstvíbura.

Dr. Haiter er væntanlegur til landsins stuttu fyrir 10. næstkomandi og hefur lýst yfir andstöðu við drög að þingályktunartillögu Sivjar Friðleifsdóttur og átta annara þingmanna , fíflsins sem vildi niðurlægja samborgara sína með því að auka forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu.
Dr. Haiter er eindregið andsnúinn miðstýringu valds og telur hana ekki vera af hinu góða.
Í viðtali sagði Dr. Haiter ´Biblían segir að sá sem brjóti af sér verði fyrir háði og spotti þegar að kemur fjórðu kynslóð. Við erum fjórða kynslóðin og getum gert þá að háði og spotti sem frömdu afglöp og afbrot í síðari heimsstyrjöld og uppúr!´

Saturday, November 5, 2011

Ísbirnir og heimskautarefir hertaka Reykjavík!!!!

Tveir meðlimir Occupy Reykjavík takast á hendur um stofnum Þings Ísbjarna

Lögreglan átti fullt í fangi með að handsama ísbirni og heimskautarefi sem hreiðruðu um sig ásamt rjúpum og hreindýrum , Kanadagæsum , selum og öðrum furðulegum kvikindum tengdum náttúru og umhverfi heimskautanna á dögunum. Ísbirnirnir hafa komið sér fyrir í tjaldi og einangrað Alþingishúsið til að hefna fyrir dauða nokkurra ísbjarna sem hafa farist í tilraunum til að friða ísbirni endanlega þegar þeir villast til Íslands.
Ísbirnir hafa hreiðrað um sig á Íslandi en nú er genginn í garð vetur og tiltölulega stutt er síðann Vetrardagurinn var haldinn hátíðlegur.


Ísbirnirnir hafa gert tilraun til að koma á framfæri Þingi Ísbjarna en lögreglan hefur tjáð þeim að þeir megi ekki vera hér.
Occupy Reykjavík - Þing Ísbjarna lýsir eindregið yfir stuðningi við Occupy , aðallega starfsemi ísbjarnadeildar Occupy á heimskautaslóðum.
Stórhættulegur meðlimur Íslandsdeildar Occupy - einn af þeim sem lögreglan taldi ástæðu til að hafa afskipti af á hrekkjavökudaginn 31sta október á þessu ári

Ungir meðlimir Occupy The Antartic bíða eftir upplýsingum um viðbrögðum lögreglu við tilraun ísbjarna til að ná yfirráðum yfir íslenskri lögsögu
Beðið í afplánun eftir handtöku og strangar yfirheyrslur.
Lögreglan rannsakar nú fleiri en ísbirni sem komu við sögu í mótmælunum að Austurvelli þegar Þing fólksins var haldið
Occupy (hertaka)  Reykjavikurtjörn!!!!
Laganna verðir handtaka miðstýrðann ísbjörn , enda er Occupy mikið um að styðja afmiðjun en ekki miðstýringu , a.m.k. opinberlega
Þessi ísbjörn var handtekinn fyrir eiturlyfjavörslu. Hvort það hafi tengst starfsemi Occupy Reykjavik eða ekki er óljóst um þessar mundir.



Friday, November 4, 2011

Risastíflugerðarfólk í útrýmingarhættu - fyrirlestur í HÍ

Í útrýmingarhættu. Kanadískur prófessor telur að sumir sem eru meiri prófessorar en aðrir gætu lent á válista yfir tegundir í útrýmingarhættu.

Samkvæmt niðurstöðum kanadísks prófessors í virkjanasinnafræðum eru miklar líkur á að Risastíflugerðarfólk deyji út í íslenskri náttúru.
Prófessorinn lýsti yfir að rannsóknir á kanadískum stóriðjuframkvæmdasinnum hafi haft athyglisverðar niðurstöður í för með sér.
Í ljós hafi komið að fólki hafi fundist þeir hundleiðinlegir svo að karlkyns stóriðjuframkvæmdasinnarnir hafi átt í verstu vandræðum með að verða sér úti um kærustur.
Í fyrstunni hafði verið talið að stóriðjusinnar dæju ekki út í sínu náttúrulega umhverfi ef viðkvæmu lífríki sé raskað verði viðkvæm svæði sem þeir hafa hreiðrað um sig fyrir hnjaski af manna völdum.

Sannleikurinn loksins kominn fram - er þetta Sannleikurinn eða Sannleikurinn??

Sannleikurinn rekur spjallborðið sannleikurinn.com en annar þeirra er líklegast lögreglumaður - hinn Sannleikurinn er bloggari sem hefur einnig skrifað á þeirri síðu en líklegast undir öðru nafni. Nú er spurn; hvor er Sannleikurinn? Löggan eða hinn?

Já, og leggi menn nú höfuðið í bleitið því þetta er annað hvort Sannleikurinn eða Sannleikurinn, en hinir tveir snillingar eru fyrir löngu orðnir landsmönnum góðu kunnir fyrir sprellið á sér.
Annar er Sannleikurinn í Baggalútíu en hinn er Sannleikurinn hjá Sannleikanum sem oft svarar póstum og argi og leiðindum á spjallborðinu Tilgangslaust Röfl Geðsjúkra Manna.
Svo virðist sem að annar hvor þeirra sé lögreglumaður, því að félagar hins eru alltaf að tala um það hvað þeim er illa við forræðishyggju. En nú er spurn; eru það félagar annars eða hins?
Spurningin er sem sagt hvor þeirra er þessi Sannleikur sem tröllreið forræðishyggjumönnum á fyrri hluta ársins með þeim afleiðingum að sumum þeirra fanst eins og það væri verið að kyrkja sig af kyrkislöngu.
Sannleikurinn hefur lýst yfir með stolti að síðan sé mest kærða síðan á Íslandi en heimskasti og vitlausasti bloggarinn þar er auðvitað T. Kex sem segist m.a. eiga bókasafn þó fyrir tilvist þess séu takmarkaðar sannanir fyrir utan fallega ljósmynd.