Popular Posts

Friday, November 4, 2011

Risastíflugerðarfólk í útrýmingarhættu - fyrirlestur í HÍ

Í útrýmingarhættu. Kanadískur prófessor telur að sumir sem eru meiri prófessorar en aðrir gætu lent á válista yfir tegundir í útrýmingarhættu.

Samkvæmt niðurstöðum kanadísks prófessors í virkjanasinnafræðum eru miklar líkur á að Risastíflugerðarfólk deyji út í íslenskri náttúru.
Prófessorinn lýsti yfir að rannsóknir á kanadískum stóriðjuframkvæmdasinnum hafi haft athyglisverðar niðurstöður í för með sér.
Í ljós hafi komið að fólki hafi fundist þeir hundleiðinlegir svo að karlkyns stóriðjuframkvæmdasinnarnir hafi átt í verstu vandræðum með að verða sér úti um kærustur.
Í fyrstunni hafði verið talið að stóriðjusinnar dæju ekki út í sínu náttúrulega umhverfi ef viðkvæmu lífríki sé raskað verði viðkvæm svæði sem þeir hafa hreiðrað um sig fyrir hnjaski af manna völdum.

No comments:

Post a Comment