Össur ákvað að taka bandaríska sendiherran í karphúsið en hefur sjálfur verið marg oft tekinn í karphúsið fyrir þáttöku í alls kyns skepnuskap og sóðaskap á Alþingi , t.d. stuðning við Kárahnjúkavirkjun. ´Málið er það að við hjá ríkisstjórninni erum tilbúin til að verja merkingu íslensku sagnarinnar ´að hreyfa sig´með kjafti og klóm og við ætlum ekkert að fara að láta bandarísk stjórnvöld pirra okkur með einhverjum rugludallaútskýringum á því hvað þessi setning merkir.
Sem kunnugt er samanstendur Hreyfingin af áhugafólki um hreyfingu sem hittist reglulega og stundar líkamsræktarstarfsemi í World Class.
Ljóst er að allt tal um að Hreyfingin sé stjórnmálaflokkur er því einn stór misskilningur.
Líklega hefur enginn trúað þeirri flökkusögu nema sendiherrann í Sendiráði Bandaríkjanna að Laufásvegi........
![]() |
| Líkamshreyfing og hvers kyns heilsubót eru taldar til glæpsamlegs athæfis að áliti bandarískra stjórnvalda |


No comments:
Post a Comment