 |
| Pólitískt Alla - Alli eða alla vega ekki kórrekt enn þann dag í dag - herra Salman Rushdie. |
Mark Zuckerberg hefur ákveðið að hefja tónleika fyrir Salman Rushdie með það að markmiði að sanna tilvist sína fyrir Rushdie á tónleikunum. Tónleikarnir munu bera hinn skemmtilega og fræðandi titil ´Extraordinary Claims Require Extraordinary Evidence´. Mark mun hafa átt í mestu erfiðleikum með að sanna tilvist sína fyrir kappanum en hingað til hefur tilvist hans verið talin óumdeild eða þar til að Salman skarst í leikinn og benti á á fundi rökfræðinga að það væri í raun spurning hvort að Mark Zuckerberg væri í raun og veru til - það í sjálfu sér væri spurning.
Aðspurður á fundinum hvað hann ætti eiginlega við sagði hann ´jú jú , Facebook var stofnað , en var það stofnað af Mark Zuckerberg? Getur Mark sannað með skynsamlegum rökum að hann sé til? Ef Facebook er til - getum við þar af leiðandi sannað tilvist þess áþreifanlega?´
´Nei´var samþykkt nánast einróma af rökfræðingunum á fundinum , 2 greiddu atkvæði á móti , með þeim mótrökum að það sé engin skeið.
No comments:
Post a Comment