Popular Posts

Friday, November 4, 2011

Sannleikurinn loksins kominn fram - er þetta Sannleikurinn eða Sannleikurinn??

Sannleikurinn rekur spjallborðið sannleikurinn.com en annar þeirra er líklegast lögreglumaður - hinn Sannleikurinn er bloggari sem hefur einnig skrifað á þeirri síðu en líklegast undir öðru nafni. Nú er spurn; hvor er Sannleikurinn? Löggan eða hinn?

Já, og leggi menn nú höfuðið í bleitið því þetta er annað hvort Sannleikurinn eða Sannleikurinn, en hinir tveir snillingar eru fyrir löngu orðnir landsmönnum góðu kunnir fyrir sprellið á sér.
Annar er Sannleikurinn í Baggalútíu en hinn er Sannleikurinn hjá Sannleikanum sem oft svarar póstum og argi og leiðindum á spjallborðinu Tilgangslaust Röfl Geðsjúkra Manna.
Svo virðist sem að annar hvor þeirra sé lögreglumaður, því að félagar hins eru alltaf að tala um það hvað þeim er illa við forræðishyggju. En nú er spurn; eru það félagar annars eða hins?
Spurningin er sem sagt hvor þeirra er þessi Sannleikur sem tröllreið forræðishyggjumönnum á fyrri hluta ársins með þeim afleiðingum að sumum þeirra fanst eins og það væri verið að kyrkja sig af kyrkislöngu.
Sannleikurinn hefur lýst yfir með stolti að síðan sé mest kærða síðan á Íslandi en heimskasti og vitlausasti bloggarinn þar er auðvitað T. Kex sem segist m.a. eiga bókasafn þó fyrir tilvist þess séu takmarkaðar sannanir fyrir utan fallega ljósmynd.

No comments:

Post a Comment