 |
| Skuggalega líkur Stalín. Fór Stalín kannski í yngingaraðgerð? |
Það vottast hér með að tvífari Stalíns hafi uppgötvast á undanförnum misserum eftir langa og erfiða leit ættfræðinga á Íslandi að hinum eina sanna , íslenska Stalín. Að vísu tókst þeim ekki að finna íslenskan Stalín sem væri nógu líkur Stalín í útliti , en þeir fundu einn amerískann sem er það líkur Stalín að meirihluti þeirra kana sem hafa hlustað á hann tóku ekkert eftir því - a.m.k. ekki fyrr en hugsanlega síðar frekar en nú. Ýmislegt er líkt í fari þessa manns og Stalíns og því er eðlilegt að upp vakni spurningar. Er þetta hugsanlega tvífari Stalíns eða fór Stalín í yngingaraðgerð og dó kannski aldrei?? Haft hefur þegar verið samband við Hannes Hólmstein Gissurarson stalínfræðing en hann starfar hú sem sérfræðingur Sjálfstæðismanna í stalínfræðum og rannsóknum á öllu sem við kemur Stalín í tengslum við útgáfu bókarinnar Íslenskir kommúnistar. Það er hverjum og einum heilbrigt að velta því f yrir sér a.m.k. 1. sinni á ævinni hvort Stalín hafi ekki haft rétt til þess eins og aðrir samborgaramenn sínir , að gera sjálfann sig ungan aftur - a.m.k. í anda. Slæmt að maðurinn skuli ekki hafa endurtekið slíkar tilraunir oftar en hann gerði.
No comments:
Post a Comment