Popular Posts

Sunday, October 30, 2011

Saturday, October 29, 2011

Nýja varðskipið kom til Færeyja of seint - þegar búið að yfirtaka þær

Fórnarlömb sýklaárásarinnar eru til hægri. Framkvæmdastjóri eldflaugatilraunarinnar er til vinstri.

Eldflaugum með sýklavopnum var skotið til Færeyja fyrir rúmum 4 klukkustundum síðan með það að markmiði að yfirtaka eyjarnar, og munu Reykvíkingar bíða spenntir eftir niðurstöðum rannsókna okkar færustu vísindamanna og sérfræðinga í sýkla - og efnavopnahernaði á afleiðingum árásarinnar.
Hin ægilega árás leyndi sér ekki, margir Færeyjingar misstu heimili sín og allt atvinnulíf í Færeyjum er lamað.
Talið er að marga mánuði taki að byggja upp aftur stjórnkerfi landsins frá grunni. Sameinuðu Þjóðirnar hafa fordæmt árásina og hefur Íslendingum verið hótað úrsögn úr Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna sem og Sameinuðu Þjóðunum sjálfum.
Danska konungsfjölskyldan hefur fordæmt árásina og segir hana heimskulegasta athæfi sem Ísland hefur nokkrum sinnum staðið fyrir.
Eldflaugunum var skotið á Keflavíkurflugvelli skömmu fyrir tilkynningu sem hafði borist út á Facebook þess efnis að vort glænýja varðskip hafi yfirtekið Færeyjar.
Skipstjóri nýja varðskipsins var auðvitað vonsvikinn að heyra að einhver hafi verið á undan. 

Eru þessi grænmeti sem vilja skemma Þjórsá gersamlega fattlaus og farlama??

Ef ég ætti ráð á fé og hefði rænu í kollinum myndi ég yfirgefa Þjórsárver hið bráðasta.
Fólk á ekki að auka líkurnar á að fallegar náttúruperlur verði eyðilagðar af vangefnu, þroskaheftu fólki, a.m.k. illa gefnum fíflum með því að eyða langtímum saman þarna með það að markmiði að halda svæðunum óspilltum. Það sem fólk á að gera er að flytja til hinna óbyggðu svæða, græða þau upp og byggja einungis á flatasta landinu og því sem er með auðveldast aðgengi, og skilja það svo eftir í nánast ósnertu formi þegar það land er yfirgefið.
Það er grátbroslegt að Lögreglan leiti að maríúana í stað þess að leita að fólki þegar það reynir að ógna hagsmunum lands og þjóðar, og á ég þá auðvitað með hagsmunum okkar allra almennt, okkar Íslendinga, hagsmunum Íslands.
Það má stela stórfljótum og tugum milljarða á hverjum degi frá íslensku þjóðinni og drulla í stórfljótin sandi og fjúki, en það má ekki stela fyrir 1000 kall í mataverslun. Svona hefur þjóðfélagsandinn lengi verið hér á Íslandi. Svo eru Íslendingar hissa á því að það sé komið illa fram við þá erlendis. Hvað gerist þegar fólk hagar sér eins og hálfvitar og leyfir hálfvitum að skemma og eyðileggja allt hjá sér? Það hlæja allir að því og segja því að hypja sig.
Ef Ísland væri virkilega byggð af svona miklum ofur - gáfnaljósum væri búið að lúgberja þessi fífl sem vilja eyðileggja Þjórsá og fá til sín letihauga sem nenna ekki að vinna í annari vinnu en heimskulegum, umhverfiseyðandi ´framkvæmdarverkefnum´á meðan arðbærar framkvæmdir eru látnar bíða. Ætli það verði ekki sennilega sagt á morgunn ´við viljum ekki hafa neina Fljótsdælinga hér!´þegar Fljótsdælingar koma upp um nærveru sína í verslunum landsins í dauðaleit að mat til að borða? Og hvað gerðist svo fyrir þá sem kölluðu nútímavæðingarsinna á sínum tíma ´óvini Austurlands´? Nú sitja þeir í miðri kreppu, ófærir um að greiða niður skuldir sínar, og verði þeim að góðu.
Burt með allt þetta ruslaralið sem vill breyta Þjórsá í drullupoll eins og gert var við árnar að Kárahnjúkum.
Virðum náttúruna og framleiðum sjálf orku og gerum það á sjálfbærann hátt - vatnsaflsvirkjanir eru alls ekki sjálfbærar.
Lifum í nútímanum, og hættum að þola fólk sem hatar okkur hvort sem er. Enda er það að vilja Þjórsá illt ekkert annað en að hata hana og Þjórsárver og Fljótsdalshérað.
Auðvitað ætti fólkið sem vill varðveita Þjórsá til komandi kynslóða og sem býr þar að halda þeim arðbæru áformum áfram, og það er Íslandi til skammar hvernig þeir sem hata þetta fólk hafa komið þannig fram við það, að núna þykir það vart þjóna neinum tilgangi að búa í Þjórsárverum til langtíma, nema menn séu örugglega vissir um, að þar séu ekki búnir til fleiri drullupollar en þegar eru komnir.


Friday, October 28, 2011

Kolkrabbamæður!!!!

Til ábendingar vegna ´no kids movement´. Segjum nei við no kids!!

Thursday, October 27, 2011

PRUMP - Forvirkar hvað?

 Annað hvort/ eða. Annað hvort líkar þér vel við starfið þitt og þú vinnur það af dugnaði og hörku, eða ekki. Ef ekki, segðu því þá lausu.
Það vottast hér með að forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu eru enn í umræðunni. Einhver bullukollur úr Besta Flokknum skrifaði annars mjög vel málfarslega vandaða grein með skynsamlega framsettum röksemdafærslum gegn þessari arfavitlausu rannsóknaheimild lögreglu. Vegna þess hversu vitlaus og heimskuleg hugmyndin þykir, finnst svonefndum Áttmenningum það bara allt í lagi og besta mál að leggja hana fram, þó að þegar hafi verið njósnað um einn þeirra.
Ljóst er að þessir heimsku Áttmenningar lifa á myrkum miðöldum en ekki á 21stu öldinni. 
Mér finnst allt í lagi að vera á móti ESB enda er ég dyggur stuðningsmaður Evrópu og þeir sem styðja ESB hata í raun Evrópu og evrópska hagsmuni og allt sem Evrópu við kemur.
Nú þykir ESB ekki lengur í tísku, íslenska krónan er aftur komin í tísku, og Davíð virðist mér enn vera lúinn og þreyttur á stjórnmálum enda eðlilegt. Það er leitt að svona skuli hafa farið - að Alþingi skuli hafa misst trúna á getu sinni til að starfa sem stofnun, og að íslenska lögreglan sé að fara sömu leið.
Gott og vel, verum þá ekkert að borga þessu liði. Þetta er okkar fyrirtæki, þeir eru starfsmenn þess, þeir hafa brotið reglurnar, og þeir skulu borga fyrir sig.
Hætta að nenna að vinna störf sem þeir nenna hvort eð er ekkert að vinna í - annað hvort er það að vera alþingismaður starf sem þú ræður við eða ekki, menn eiga ekki að þurfa að sjá ástæðu til þess að láta óánægju með starfið sem þeim var veitt upp í hendurnar bitna á öllum hinum, hvort sem þeir eru 350000 eða 450000 eða meira manns eða kvenmanns.
Bókstaflega. Basta.
Takk fyrir mig.

Guffi styður ´forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu´

´Daaaa......forvirkar........raaaaansóknar....heheheeeeeeeeeimilddd......iiiiiiiiir?´Eindreginn stuðningsmaður bilaðrar og úreltrar og óskaplega gamaldags og ómerkilegrar tillögu Sivjar Friðleifsdóttur. Guffi í Andabæ hefur verið samur við sjálfann sig öll þessi ár, enda mikill óvinur Bjarnabófa.

 Guffi, einn af ástsælustu heimskingjum allra tíma og meðal þeirra allra forhertustu styður eindregið heimskuleg drög að heimskulegri tillögu þess efnis að fylgjast megi með öllum Íslendingum.
Foreldramenn og forráðamenn barna í Andabæ eru vinsamlega beðin um að hafa hemil á Guffa og öllum hans ferðum og benda honum á hvaða afleiðingar stuðningur hans kynni að hafa fyrir hans eigið félagslega öryggi......
Guffi telur að forvirkar rannsóknaheimildir gætu auðveldað til muna að góma Bjarnabóafana en þeir hafa tröllriðið Andabæ síðan þeir komu fyrst til sögunnar sem karakterar þar á bæ.......

Wednesday, October 26, 2011

Je minni eini!!



Ja hérna hér!
Þetta 2012 lið ætti allt saman að skammast sín!
Þegar þau líta á dagatalið sitt neita þau að trúa því að árið 2012 sé ekki enn komið - slappið af, það eru tveir mánuðir í það.
Í öðru lagi halda þau fram alls kyns þvælu og bábiljum um árið 2012 sem ekkert er hægt að botna í fyrir neinn - bábiljum sem enginn nema einhverjir örfáir nerdar nenna að pæla mikið í.
Hið góða við umræðuna um árið 2012 er allar upplýsingarnar um frábæra ferðamannastaði til að sjá stórbrotin sólarlög.
Hið slæma er allt þetta rusl sem er hent ofan í opið geðið á fólki - ´kaupið þessa vöru um endalok heimsins árið 2012 og þá frelsist þið! Þegar árið 2012 kemur, þá verður þetta allt í lagi - sálir ykkar verða allar þar sem þær eiga að vera´.
Þá hlýtur sálin mín að vera þar sem hún á að vera þá - með báða fæturna niðri á Jörðinni - annars meika menn það bara alls ekki.
Allt þetta yfirþyrmandi 2012 þvaður er bara til þess að valda pirringi og leiðindum en annars auglýsa ágætis staði til að sjá fallegt sólsetur þegar kvölda tekur 22. desember.
Og hana nú!
Drög að tillögu um eitthvað skemmtilegt efni fyrir ríkissjónvarpið út allt árið 2012 - gömlu Brúðuleikararnir. Svona strumparnir okkar, þau ykkar sem eiga DVD eða VHS með gömlu Brúðuleikurunum - endilega skellið þeim inn og leyfið okkur hinum að sjá eitthvað almennilega skemmtilegt sjónvarpsefni það sem af verður þessu ári.
Svo átti að skemma og eyðileggja afmælisdaginn minn með Elenin brotlendingu.
Auðvitað fékk ég nóg, sagði ´hingað og ekki lengra´og Elenin að sögn brotnaði niður á leið sinni til sólarinnar, gefið að þessi Elenin halastjarna hafi nokkurn tímann verið til.
Kannski var ég svo leiðinlegur og svartsýnn að Elenin fannst nóg um og bara gersamlega brotnaði niður. 
Bíðum frekar eftir sumarstórmyndunum sem eiga að vera sýndar í kvikmyndahúsum árið 2012 frekar en einhverjum leiðinlegum fréttum um heimsendi eða einhvern endanlegan samkomustað sálna.
Hvað sálir varðar er enn verið að sýna Bosch og það finnst mér hreint út sagt stórkostlegt og miklu betra heldur en allt þetta leiðinlega þvaður um það hvar á að setja vor sálir þegar menn eru óvissir um það að öðrum kosti.
Hér eru smá kilaboð frá mér til þeirra sem hanga á árinu 2012 og vilja sannfæra alla um að hanga á því í stað þess að lifa hér og nú; skamm! Skamm!

Tuesday, October 25, 2011

Landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna eru nú Steven Segal kvikmynd

Hinn nýji Gentleman Killer - eins og sjá má er spurning hvort Mexíkóbúar og Bandaríkjamenn muni treysta þessum óvenjulega landamæraverði fyrir landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna

Það vottast hér með að Steven Segal eigi að sjá um landamæravörslu á milli Mexíkó og Bandaríkjanna.
Hákarlar eru ekki á lista þeirra dýra sem Steven Segal mun hafa reglulegt eftirlit með svo að bankastofnanir á landamærasvæðinu verða nokkuð öruggar.
Steven Segal er landsmönnum og veröldinni gjörvallri góðu kunnur eftir fjölda kvikmynda sem hann hefur leikið í, margar þeirra standa mitt á milli þess að vera B eða C myndir.
Ljóst er að hin lélega kvikmynd Occupy hefur misheppnast gersamlega svo að það er skiljanlegt að gerð yrði tilraun með einhvern sem sumir myndu kalla ´alvöru hollywoodleikara, karl í krapinu´.

Okkúp - æ æ og ó!!

Voðalega finnst mér þetta leiðinleg og vitlaus ´mótmæli´hjá Occupy ´hreyfingunni´sem er ekkert annað en eitt af sköpunartólum Soros nokkurs sem er einn af þekktustu stuðningsmönnum heimsvaldsstefnu í heiminum.
Ég er ekki bara að tala um Occupy heldur Anonymous og Wikileaks - allt plat og hannað með það að markmiði að fá fólk til að halda að það hafi verið valið af frelsinu sjálfu til þess að þröngva þrælahaldi upp á sjálft sig og alla - sama þrælahaldinu og það sjálft er og hefur alltaf verið á móti eða hefur sagst vera á móti.
Allt þetta Occupy æði endaði sem sagt í eintómri endaleysu, vitleysu og þvælu.
Og fólkið sem ber ábyrgð á þessu ruslaraliði ætti að skammast sín. Þau ættu að skammast sín fyrir að vera skítseiði sem skipta alþjóðasamfélagið í raun engu raunverulegu máli - því það sem skiptir aljþjóðasamfélagið í raun máli, er afmiðjun og allar leiðir til þess að koma samfélaginu á fót aftur og þjóðvæðing banka.
Fólk þarf að þjóðvæða banka meira og reka þá á svipuðum nótum og Gaddafi gerði - með það að markmiði að bankar eigi að vera leiðir fyrir fólk til að fá peninga en ekki gera það þannig að það treysti ekki hvert öðru.
Það er þegar byrjað að skamma þessa hreyfingu, og skammirnar munu halda áfram, og hún mun falla.
Julian Assange er fallandi stjarna en ekki rísandi, og stjörnur þessara hreyfinga eru fallandi á sömu braut og stjarnan Julian Assange sem getur ekki endað öðruvísi en með einum alls herjar árekstri.
Við, fólkið á Jörðinni eigum að sýna hinum sem eru þarna úti, að við höfum ábyrgðartilfinningu gagnvart litla fallega bláa hnettinum sem við búum á, og það getum við ekki gert svo lengi sem menn láta rugludalla og nytsama fávita eins og Occupy segja sér fyrir verkum í stað þess að stinga þeim í skáp og hafa þá þar og leyfa þeim að arga út úr sér allt argið og gargið.
Rétt er að Occupy er Hollywood kvikmynd - ég gef henni eina stjörnu.



Saturday, October 22, 2011

Tilkynning til embættis sérstaks ríkissaksóknara......

Eintak af ritinu Zen Tales hefur selst í Bókabúð Braga og því verður ekki hægt fyrir embættið að verða sér úti um þetta rit en sérstakur ríkissaksóknari hefur orð á sér á sumum heimilum á Íslandi fyrir að fara mjög hægt í öllum sínum rannsóknum á sérstökum sakamálum undanfarið, m.a. þeim sem tengjast íslenska efnahagshruninu.
Ekki kæmi það þjóðinni á óvart ef sérstakur ríkissaksóknari gæfi út bókina Zen og listin að hugleiða um rannsóknir á málum sem borin eru upp á borð embættis sérstaks ríkissaksóknara.

Vefir veður.is bilaðir.......

ADHD samtökin vilja vinsamlega og kurteisislega koma því á framfæri við landsmenn að vefir veður.is séu bilaðir.
Aðdáendum veður.is er bent á að kanna sviptingar í hinum pólitískum vindum í staðinn........

Vill Hinn Gullna Meðalveg um Lyngdalsheiði - Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins

Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins er orðinn landsmönnum vel kunnur eftir að hafa lýst yfir mikillri aðdáun á starfsemi Vegagerðarinnar.
Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins hefur sent Ögmundi óþekka bréf með beiðni þess efnis að vegur á tilteknu svæði á Vestfjörðum verði skýrður ´Hinn Gullni Meðalvegur´.
Hinn Gullni Meðalvegur á að þvera svæði sem umdeildur vegur hafði átt að þvera síðast, og ráð Ögmundar óþekka þóttu eitthvað vafasöm í því tilfelli en ljóst er að Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins lifir greinilega ekki í nútímanum frekar en Ögmundur, því að það er komin 21sta öldin og þá skrifa menn bækur eins og UFO how to þar sem farartækjum er lýst sem krefjast einfaldlega alls engrar veganotkunar - þar með eru öll vegavandamál leyst.
Meðal þeirra sem hafa talað um útrýmingu frekar en fjölgun vega, er Dr. Steven M. Greer.
Hvað gera Vestfirðingar nú? Munu þeir fylgja ráðum Vegarins, Ögmundar, eða Stebba vegalausa?
Á öndverðum meiði - Stebbi vegalausi lifir í nútímanum og hefur haldið mikið af fyrirlestrum að undanförnu, m.a. um hina fögru, ´nýju´vegalausu veröld......hann hefur farið fjölfarinn veg og ferðast um ótroðnar slóðir í rannsóknum sínum, m.a. á vegaleysi og afleiðingum þess á samfélag Inúíta......

Minning um mann.........



Er þetta John Malkovich eða Gaddafi? Ég hallast að því að yfirvaraskegg þessa karakters sé yfirvaraskeggjum allra skeggjaðra heimsvaldssinna æðra........


Nú er víst komið að fyrsta  innlegginu mínu um hann Gaddafi, blessaðan kallinn sem Sámur Frændi var svo ósáttur við, kannski vegna þess að yfirvaraskeggið hans sé æðra yfirvaraskeggi Sáms frænda.
Alla vega held ég að Sámur frændi myndi standa sig all bærilega yfirvaraskeggslaus, og ef hann veldi að skipta um hatt......
En sýnist hverjum um Sám frænda.
Málið er, Gaddafi er sagður látinn af pressunni einn daginn og daginn þar á eftir kemur einhver og sendir einhverjum öðrum tilkynningu þess efnis að herra Gaddafi sé dauður.
Þarf það að koma mér eitthvað sérstaklega mikið við að Gaddafi sé dáinn?
Nei - ég var ekki þarna og get ekki staðfest það frekar en ég get staðfest að Idi Amin á Facebook sé ekki Idi Amin.
Þannig að, hvernig í ósköpunum kynni herra Gaddafi að vera dauður eða ekki dauður af því að fjölmiðlar halda því fram?
Sem minnir mig á kennivaldsvilluna - ´Úlfamaðurinn í Baggalútíu heldur því fram að Gaddafi sé ekki dauður´, ´Gaddafi er ekki dauður af því að Úlfamaðurinn heldur því fram að hann sé það ekki´.
Þetta er svona álíka jafn gáfulegt og ´hlewagastiR er fífl af því að Salli / Úlfamaðurinn heldur því fram því að hingað til hefur Salli yfirleitt haft rétt fyrir sér´.
Hver er það sem á endanum hefur rétt fyrir sér? Jú auðvitað sá sem hefur rétt fyrir sér - það er víst algjörlega öruggt mál.
Sé Gaddafi enn á lífi er hann enn á lífi, sé hann dáinn er hann dáinn - ég hef ekkert í höndunum sem stendur sem getur staðfest að hann sé eða sé ekki á lífi.
Hvernig getur þá Gaddafi verið á lífi ef ég eða pressan segja það? Það er næstum því algjörlega vonlaust að reyna að færa skynsamleg rök fyrir því að hann sé á lífi með því að segja að það sé af því að X hafi haldið fram að hann sé á lífi - þar með erum vér víst lentir í hinni frægu og ódauðlegu kennivaldsvillu.
Þeir sem ekki eru málkunnugir kennivalsvillunni í rökfræði eiga ekkert upp á pallborðið sem nemendur í Háskóla Íslands, ef Háskóli Íslands vill láta kalla sig eitthvað annað en ´háskóli heimskunnar´sem sumir hafa kallað hann þegar þeir ræddu um hann við mig á mínum yngri árum - ég nennti yfirleitt ekki að rífast við þá um það hvort Háskólinn væri háskóli gáfunnar eða heimskunnar - ég vona þó svo sannarlega að ég hafi eitthvað lært af náminu mínu þar.
Og eitt af því sem ég lærði var kennivaldsvillan - en því miður vegna bjánagangsins og hálfvitagangsins í mér - allt of seint.
Kennivaldsvillan var villa sem ég hefði átt að kynna mér um 14 ára að aldri og sem flestir nemendur í skólum verða varir við þá - en nei, ég var víst ekki nógu skýr í kollinum þá til að flétta í einhverju skemmtilegu alfræðiriti um villur í rökfræði, en þó var ég nógu skýr til að læra í skóla þó ég hefði lítinn tíma til að læra sjálfur.
Og nú hef ég meiri tíma til þess en áður.
Kennivaldsvillan er sem sagt það þegar einhver eða eitthvað sem litið er á sem kennivald heldur einhverju fram sem kynni að vera ósatt - t.d. að Gaddafi sé dáinn, að Osama Bin Laden sé dáinn, að Michael Jackson sé dáinn, að það sem gerðist 11. September 2001 hafi gerst eins og kennivald bandarísku stórpressunnar hefur haldið fram.
Kennivaldsvillan er og verður alltaf til staðar síðan Aristóteles gaf henni hið fræga latneska heiti þegar hann var að flokka villur í rökfræði, en síðan þá hafði hún þegar verið vegin og metin af öðrum en heitið ýmsum nöfnum.
Eitt algengasta heiti kennivaldsvillunnar er einfaldlega ´hin opinbera skýring´ því að það er einhver sem heldur fram slíkri skýringu sem vill láta líta á sig sem kennivald, og vegna þess er auðvelt fyrir mjög marga að falla ofan í þá gryfju að taka viðkomandi meira alvarlega en eigin skoðanir á einhverju tilteknu málefni, t.d. kennivald um Bob Dylan.
Ég skrifa þetta innlegg mitt í minningu um Gaddafi - og votta honum hér með, fólkinu hans og fólkinu í Lýbíu virðingu mína - mér þykir fyrir því að ég hafi ekki gert meira að því að verða mér úti um eitthvert efni um Lýbíu, en svona er lífið þegar menn hafa hugann fastann við það sem þeir eru að gera fyrir námið sitt og reyna eins og þeir geta að einblína honum eitthvað út fyrir landsteinana í þeim efnum.
Ég heyri býsna tvennar sögur af Gaddafi - hann hafi verið vondur einræðisherra, hann hafi verið hugrakkur og hugumprúður leiðtogi sem hafi farið fyrir her manna sem vildu frekar deyja fyrir Lýbíu en ónýtt og brotið heimsvald.
Það er 100% öruggt að mínu mati, að Gaddafi hafi verið andsnúinn heimsvaldstefnu, og ég tel að auðlindir Lýbíu hafi gegnt mikilvægu lykilhlutverki í augum bandarískra stjórnvalda vegna löngunar þeirra til að koma á laggirnar stjórn í Lýbíu sem væri þeim hliðholl.
Það vilja Lýbíumenn ekki, og það er leitt að hin föðurlandslausu bandarísku stjórnvöld neiti að horfast í augu við það.
Lýbíubúar eiga að fá að vera í friði og þyggja aðstoð frá þeim ríkjum sem eru til þess bær að aðstoða þá, en að öðrum kosti fá að byggja upp landið sitt sjálfir án íhlutunar bandarískra stjórnvalda.
Langar mig þá til að minna alla sem vilja kynna sér eitthvað meira um Gaddafi en hafa ekki lesið grein hans um fjölskylduna, að gera það sem allra fyrst, og þess fyrr því betra........

Thursday, October 20, 2011

Bandarísk stjórnvöld neita að verða þegnum landsins að ósk þeirra......´snáfið burt, mygluðu greipaldin´.

Bandaríkjamenn hafa lengi verið þekktir fyrir ást sína á eigin föðurlandi - en nýlegt heimildarmyndband sem hinn þjóð - og landskunni David  Dukes senti frá sér, hefur heldur en ekki betur fengið margann mann og annan til að draga djúpt andann og freta öllu ruglinu sem stjórnvaldið í Bandaríkjunum hefur reynt að troða í rassgatið á öðrum undanfarna áratugi út úr rassgatinu - en Dukes gagnrýnir m.a. hvernig kristnum er gert óheimilt að hafa sín trúartákn til sýnis á almannafæri víðs vegar um Bandaríkin.
Voðalegt væl og vesen er þetta í Bandaríkjastjórn vegna alls föðurlandsmissisins.
Þetta vilduð þið, verið bara ánægðir og verði ykkur að góðu og gjörið svo vel að drulla ykkur úr Bandaríkjunum!
Þetta lúsuga letihaugalið hefur ekkert að gera í Bandaríkjunum innan um milljónir sem þeir neita að búa með.
Bandarísk stjórnvöld hafa ráðist á Bandaríkin 11. September 2001  og ótal mörgum sinnum áður, fjárhagslega og með öðrum leiðum og reynt að stórskaða ímynd Bandaríkjanna alþjóðlega og út um allan heim og geim og kennt svo fólki um sem rannsakar opinbera stjórnsýslu og alls kyns spillingu í embættum, og fólki sem verða vitni að hryðjuverkaárásum eða launmorðum sem eru skipulögð af sömu aðilunum og þeim sem segjast vera að frelsa hin og þessi lönd undan oki einræðisherra sem sömu aðilar hafa sjálfir komið til valda.
Þeir hafa svoleiðis gefist upp á sínu starfi og enn væla þeir, enn væla þeir með að fyrirtæki eins og Alcoa eigi að væla og valda veseni og vandræðum á stöðum eins og Bakka. Bakkadæmið endaði bara glæsilega og allbærilega og nú geta allir verið ánægðir, nóg af fjölbreytilegum atvinnutækifærum nema íslensk stjórnvöld velji að fara leiðina sem þau bandarísku gerðu - glata Íslandi sem föðurlandi.
Frá 1933 til 1947 og síðar hafa bandarísk stjórnvöld haldið áfram að væla og ergjast út í allt og alla fyrir að vera einhvern veginn öðruvísi en þau - en svona er þetta nú bara.
Ástandið var að vísu nokkuð ágætt þegar Kennedy var við völd sem forseti - og kannski hjá einhverjum fáeinum líka fyrir og eftir 1933, t.d. Abraham Lincoln, Andrew Jackson, Dwight D. Eisenhower og fleirum sem reyndu sem best þeir gátu og reyndu að gera sitt besta með stæl.
Svona eru þessir heimsku og vitlausu vælukjóar sem nú segjast standa fyrir bandarísku þjóðina en standa ekki í raun fyrir baun, endalaust að rífast og reyna að plata fólk til að gera alla skapaða hluti fyrir sig þar til fólk fær einfaldlega nóg og sparkar þeim út úr sínu föðurlandi.
Ein leið til þess að losna við land sem manni finnst leiðinlegt að búa á, er einfaldlega að yfirgefa það í stað þess að fara leiðir sem bullukollar eins og Friðrik Sophusson, Obama og Bush völdu að fara.
Skilaboð heimsbyggðarinnar til bandarískra stjórnvalda eru skýr - skilaboð bandarísku þjóðarinnar til bandarískra stjórnvalda eru skýr - gjörið svo vel að drulla ykkur í burtu úr Bandaríkjunum og leyfið fólki að vera í friði - já, snáfið burt!
Þessi skilaboð eiga einnig erindi til sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi og til sendiherrans þar - það gengur ekki að menn séu að starfa á Íslandi og hafi verið sendir þaðan í umboði einhvers forseta Bandaríkjanna í stað bandarísku þjóðarinnar sjálfrar.
Sem endar auðvitað með smá lestri upp úr sögunni endalausu.
Sagan endalausa hófst nefnilega svona - ákveðið var að byrja hvorki á fyrstu blaðsíðu á fyrsta kafla, né klára endinn......til að tryggja að hún yrði áfram endalaus, eða í sumum tilfellum, rífa fyrstu blaðsíðuna af fyrsta kaflanum og taka endalokin með.
Bandarísk stjórnvold =  mygluð greipaldin.

Wednesday, October 19, 2011

Forsætisráðherra stofnar Vælukjóaklúbbinn........

Einn lesenda bréfs Jóhönnu - þessi lesandi starfar þó ekki í forsetaembættinu.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur fengið höfnunarbréf frá Ólafi Ragnari Grímssyni forseta í kjölfar tilraunar hennar til að senda bréf til forsetans þar sem hún hafði farið fram á að forsetinn gengi í nýstofnaðan klúbb hennar.
´Ég hef engann áhuga á þessu helvítis, andskotans rugli og þvaðri í þér´sagði Ólafur, og bætti við ´Hurðaskellir yrði betri forsætisráðherra en þú - ekkert bull, bara hurðaskellingar!´
Forsetaembættið lýsti yfir leiðindum og pirringi með ruglinu á forsætisráðherranum sem virðist greinilega ekki hafa litið nýlega á dagatalið sitt til að kanna hvaða ár er - nefnilega, ár 2011.
Forsetaembættið fer fram á að forsætisráðherra skoði dagatalið sitt á hverjum degi.
´Það voru nokkur okkar sem sáu bréf forsætisráðherra og við skiljum að hún er full fær um að skrifa bull - pósta´segir starfsmanneskja forsetaembættisins í viðtali við Monitor um málið.
Forsætisráðherra hefur fengið fjöldamarga pósta með beiðnum þess efnis að nöfn sendenda verði ekki bætt á lista væntanlegra meðlima Vælukjóaklúbbsins.......

Þjófarnir loksins gripnir!

Þjófarnir loksins gripnir glóðvolgir - þeir reyndust ættaðir úr Andabæ.
 Þjófarnir sem stálu fyrir stuttu síðan nálægt Krambúðinni hafa loksins fundist.
Reyndust þeir vera ættaðir úr Andabæ.
Íbúar á Skókavörðuholtssvæðinu vilja koma fram þakklæti í garð lögreglu fyrir að hafa fundið og handsamað hina alræmdu Rip, Rap og Rup en ekki er vitað til þess að íbúar Andabæjar hafi reynt að fremja þjófnað á höfuðborgarsvæðinu áður.
Rip Rap og Rup eiga mjög erfitt með að skilja íslensku og tala aðeins fáein orð, og það útskýrir af hverju ræningjarnir hljómuðu eins og andarungar......
Andrés Önd, Mikki Mús, Mína og Jóakim Aðalönd hafa þegar gefið sig fram við lögreglu vegna málsins og beðið lögreglu afsökunar á þjófnaðinum.
Rip, Rap og Rup er lýst sem glisgjörnum einstaklingum sem stelist gjarnan úr Andabæ til að falast eftir úrum og skartgripum, einkum á morgnanna.......




Thursday, October 13, 2011

Mýveiki herjar á Landlæknisembættið

Landslæknisembættið hefur tilkynnt um nýja farsótt sem numið hefur land hérlendis af gerð svonefndra málfarssótta......

Dularfullur sjúkdómur skyldur hinum hræðilega málfarsvírus sem ber titilinn ´mýveiki´hefur herjað á Landlæknisembættið.
Landlæknisembættið þakkar öllum sem þekkja til einkenna sjúkdómsins þær upplýsingar sem því hafa borist.
Mýveiki lýsir sér þannig að ´v´er skipt út fyrir ´þýsku u - i´, o - er einnig skipt út fyrir þýsku u - i og öllum venjulegum, íslenskum u - um er skipt út fyrir þýsku u - i.
Í er einnig skipt út og verður ´þýskt u´hjá þeim sem sýkjast, en um er að ræða hið fræga u með tveim punktum yfir.

Sagan af Vista er ekki einu sinni merkileg........

Lesendur þessarar síðu eiga rétt á að vita sannleikann - og sannleikurinn er líklega eitthvað sem ég hef ekki hugmynd um hvað er, ef ég ætti að segja sannleikann um það hvað hann er, 100%.
Skýring hans væri þá handan merkingarfræði sjálfs tungumálsins.
Þannig er mál með vexti, að sannleikurinn sem um ræðir hér, er nokkuð margslunginn - hann er um ´vista´hugtakið og hvað það merkir.
Íslensk þýðing á hinni ódauðlegu sögn ´save´, eða ´vista´.
Þar sem að það vantaði vistara í Baggalútíu en þar sem var a.m.k. einn Enter, ákvað ég að ég myndi láta langann tíma líða áður en ég veldi eitthvað sniðugt nafn til að nota þegar ég stofnaði mína eigin síðu.
Ég er ekki 100%, ég held ég sé 1%.

Sprengiefnisþjófurinn loksins kominn í leitirnar

Þjófurinn gripinn glóðvolgur. Laganna verðir eru vel kunnugir sjónvarpsþáttum þeim sem hann kemur fyrir í og áttu því í engum vandræðum með að bera kennsl á hann þegar þeir sjáu hver var að verki. Alþingismenn voru flemtri slegnir og héldu að sléttuúlfurinn hafi ruglast á sér og veghlauparanum því þeir eru stundum jafn fljótir og veghlauparinn nær að hlaupa undan honum að hlaupa undan ábyrgð á eigin mistökum......

Dularfulli sprengjumaðurinn sem gerði allt vitlaust á höfuðborgarsvæðinu á dögunum er fundinn.
Um er að ræða karakter sem hefur mjög gaman af því að elta vegahlaupara, en í fyrstunni var lengi talið að um venjulegann mann væri við að etja.
Fljótlega fóru tvær grímur að renna á ríkislögreglustjóra og lögreglunni fór að finnast að hún væri að glíma við ofurefli.
Í ljós kom hins vegar eftir að vitni greindu frá því að hafa séð sjakala eltandi vegahlaupara að skýring var komin á því hvað í ósköpunum gengi eiginlega á - tilgangurinn með sprengiefnaþjófnaðinum hafi verið sá að sprengja fyrir vegahlauparanum svo að vegahlauparinn dytti í sprungu og sléttuúlfurinn gæti náð honum.
Um er að ræða einn alræmdasta og frægasta vegahlaupara veraldar, Road Runner, sem sléttuúlfurinn náði þó á endanum.

Monday, October 10, 2011

Krefjast skýringa hjá vísindasamfélaginu - Vantrú, Siðmennt og Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar.....

Vantrú, Siðmennt og Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar funda um hvað fór úrskeiðis varðandi Landeyjarhöfn í logandi leit að hárnákvæmum og rökréttum skýringum.Er það kannski hreinlega málið að Landeyjarhöfn kemst ekki fyrir í Landeyjarhöfn?



Vantrú, Siðmennt og Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar hafa krafist alls herjar vísindalegrar og hárnákvæmrar skýringar frá konunglegu bresku vísindaakademíunni þess efnis nákvæmlega hvað fór úrskeiðis í tengslum við Landeyjarhöfn.
Ýmiss konar kunnuleg og minna en kunnuleg svör hafa borist, frá Lagarfljótsorminum, til Monsoon vinda og jafnvel reiði Jarðarinnar.
Meira að segja Magnús H. Skarphéðinsson sjálfur hefur verið nefndur sem skýring.
´Það er klárt mál að við erum ekki búin að fylla mælinn hjá okkur ennþá í leit vor að hárnákvæmum og rökréttum og skynsamlegum skýringum á því nákvæmlega hvað fór úrskeiðis´sagði formaður Vantrúar í viðtali við Reykjavik Grapewine á dögunum.
Richard Dawkins hefur fengið fyrirspurn frá Vantrú ásamt Stephen Hawking og Roger Penrose, en enginn þeirra hefur gefið nein svör við því hvert er sitt álit á hvað kynni að hafa farið úrskeiðis í þessu sérstaka tilfelli Landeyjarhafnar og Herjólfs.




Saturday, October 8, 2011

Tilkynning um yfirvofandi heimsendi - utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið vill koma fram eftirfarandi tilkynningu til erlendra fjárfesta um yfirvofandi heimsendi;
Fjárfestum frá Austur - Evrópu er ráðlagt að halda öllum Austur - Evrópskum glæpagengjum heima fyrir þegar Heimsendirinn skellur á.
Islenska ríkissjónvarpið er tilbúið undir Heimsendi, en Áfallahjálp er upptekin.
Formaður Músavinafélagsins er beðinn um að halda öllum músum heimafyrir.
Umhverfisráðuneytið hefur að þessu tilefni ákveðið að heimila innflutning gaupna til Íslands.
Rottweiler hundar á íslandi eru farnir að rækta nýja hundaeigendur sem eru sérhannaðir til að vera meðfærari til notkunar sem hundaeigendur svo að þeir verði samvinnuþýðari og blíðari við sig.
Guð á Facebook hefur tilkynnt að hann sé ósammála Idi Amin Dada þess efnis að hann sé skapari himins og Jarðar, drottnari Jarðarinnar, síðasti ókrýndi konungur Skotlands og að hann hafi sigrað Jörðina, Afríku, og sérstaklega Úganda.
Hitler er vinsamlegast og kurteisislega beðinn um að hringja í Kolbein Kaftein skömmu fyrir heimsfrumsýninguna á Tinna.
Noam Chomsky er spurður hvenær komi fram gagnrýni á störf Alan Greenspan......
Alan Greenspan er ráðlagt að bursta tennurnar sínar með flúorlausu tannkremi.......
Tim Osman er beðin um að halda áfram að hugleiða.....
Osho er beðinn um að halda kjafti, hann sé þegar dauður.......
Kofi annan er vinsamlegast og kurteisislega beðinn skýringa þess efnis af hverju nafnið hans hljómar svona fáránlega á Íslandi en hvergi annars staðar í heiminum.......
Stækkunarstjóri ESB er beðin um að lýta í spegil og færa skynsamleg rök fyrir því hvers vegna heimsendir hafi ekki komið fyrir ESB ólíkt því sem flestir aðrir telja í dag um hvað hafi komið fyrir ESB á undanförnum misserum........
Pútín er beðinn um að missa ekki af ´33´......

Lýst eftir eintaki af tunglinu

Lýst er eftir eintaki af tunglinu - sérstaklega bitum eða hlutum af tunglsteinum eða mánasteinum.
Verslanirnar Betra Líf og Gjafir Jarðar hafa þegar boðið út sína mánasteina.
Bilaði endurskoðunarsinninn þakkar öllum sem telja sig geta komist yfir eintak af tunglinu eða hlutum af tunglsteinum fyrir, nema þeim sem reyndu að sprengja tunglið að sögn ´síðast´........

Monday, October 3, 2011

Skatmann Reykjavik City

Skattmann; Reykjavíkurborg, framhald af Skattmann.....


Skatmann: Reykjavik City byggir á grunninum á Skatmann; Kleppur og sendir spilarann í gegnum Reykjavíkurborg sem er nýtt sem hámarksöryggis"heimili" fyrir alla þjófa, glæpamenn og geðsjúka menn Íslands.
Sögusvið leiksins er innan veggja Reykjavíkurborgar, einhvers staðar í miðbæ Reykjavíkur. Leikurinn sem margir aðdáendur Skattmanns hafa beðið eftir kynnir til leiks nýtt lið af klassískum karakterum og hrottalegum illmennum héðan og þaðan úr íslensku samfélagi sem og erlendu, og einnig vítt svið af nýju og bættu leikkerfi til að skila bestu upplifun sem sjálfur Vinstri Grænn Riddari Reykjavíkur.

Leikurinn inniheldur:

- Vertu Skattmann - Skatmann Reykjavik City skilar ósvikinni reynslu sem Skattmann í krefjandi spilun á hverju stigi; erfiðir bardagar við illskeytta mótmælendur, magnþrungin huliðsspilun, dýpri rannsóknarvinnu sérstaks saksóknara, epískir bardagar við ofur - illmenni og ófyrirséð brot inn í truflað líf sjálfs Steingríms J. Sigfússonar - hins upprunalega Skattmann.

- Spilaðu sem Skattakonan - Skattakonan er spilanlegur karater í Skattmann Reykjavíkurborg og hefur hún sinn eigin söguþráð í aðalsöguþræði leiksins sem er samofinn söguþræði Skattmann. Leiðsöguhæfileikar hennar, bardaga (eða réttara sagt sukks, svindls - og svínarístækni), tæki og tól hafa verið sérstaklega hönnuð fyrir Skattakonuna til að skapa einstaka og fyllta reynslu.

Þróaðra FreeFlow bardagakerfi - Skattmann stendur á móti taktískum árásum frá heiftúðugum mótmælendum á sama tíma frá hverri átt á meðan gengi glæpagengi Reykjavíkurborgar fær stærri vopn og mun betri gervigreind inn í bardagann, en Skattmann hefur farið skrefinu lengra og er með tvisvar sinnum fleiri bardagasenur og tvöfalt svið árása, afturkvæmra árása og aðferða til að taka niður andstæðinginn........(t.d. eru lögreglumenn notaðir sem mannlegir skildir).

Ný vopn - Skattmann hefur ný fengið sér Ofurskaframtal og ofurskattleggjara og kúbverska vindla,sérunna úr ofur - illgresi, ásamt fullt af nýjungum á beltið sitt.

Nýr söguþráður - Borgarahreyfingin sem fengið hefur fimm sinnum Emmy verðlaunin fyrir fífla - og fávitaskap í tengslum við nýliðna atburði undanfarinna missera snýr nú aftur með nýja sögu Skattmann; Reykjavíkurborg, sem tekur spilendur lengst inn í sýktan og harðan heim daglegs lífs í Íslandi nútímans.

Landsbankinn er fluttur frá Austurstræti - eftir að Reykjavíkurborg og Kleppi hefur verið lokað og kleppararnir settir í stjórn íslensku bankanna svo að þeir geti sogið 60 milljarða á dag úr almannafé, þá hefur Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkurborgar fyrirskipað að allir sem voru lokaðir inni á hælinu og fangelsinu verði fluttir í nýja fangelsið sem Ögmundur Jónasson hafði látið reisa (einhvern tímann í náinni framtíð).

Rosalegt úrval karaktera - t.d. Skattakonan, Barack Obama Tvífés, Harrý og Heimir, Andrei Chikatilo, Hugo Chavez, Huan Nabo, Enter, Egill Helgason og fleiri flottir karakterar sem ekki verða nefndir hér en eru þekktir úr heimi Skattmanns.......

Skattakonan og Skattmann eru stundum óvinir......


Leikraddir - Laddi.

Saturday, October 1, 2011

Félag Eggjakastara formlega stofnað í dag

Nóg var að gera á setningarræðu formanns Félag Eggjakastara sem far formlega sett á laggirnar í morgunn laust um klukkan 9; 30 á Austurvelli.

Félag Eggjakastara far stofnað formlega í dag á Austurvelli.
Framkvæmdastjóri og nýkjörnir stjórnendur félagsins vilja þakka íslensku þjóðinni fyrir dyggan stuðning í sinn garð.
Félag Eggjakastara minnir alla á að mæta á fyrsta fund félagsins á mánudaginn kemur, en prufufundur fór fram klukkan 9; 30 í morgunn á staðartíma.
Áhugasamir mega m.a. koma með fílafugla egg með sér, og auðvitað strútsegg......

Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins vill funda með Vegagerðinni

Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins er m.a. mikill aðdáandi bókarinnar Vegurinn 

Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins hefur hvatt íslensku Vegagerðina til árása á íslenskar náttúruperlur.
Vegurinn segist mjög ánægður með starfsemi íslensku Vegagerðarinnar í þeim efnum og hefur tilkynnt að íslenska Vegagerðin eigi að fá heiðursnafnsbót og Fálkaorðuna vegna vegarins sem var lagður um Lyngdalsheiði.
Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins er framkvæmdastjóri fyrirtækis sem á árabísku heitir einfaldlega Vegurinn.
Hann er mikill aðdáandi bókarinnar Vegurinn, og lýtur á hvatningar til hvers kyns hryðjuverkaárása sem íþrótt.
Veginum finnst leiðinlegt að hvatningar til hryðjuverkaárása séu ekki álitnar vera íþrótt, þar sem að í þeim felist svo mikil málþóf.
Íslensku Vegagerðinni hafði borist einkennilegt bréf 11. September á þessu ári klukkan 9 að morgni með kurteisislegri beiðni frá Veginum um Veginn frá Veginum til Vegarins þar sem íslenska Vegagerðin er studd í ákvörðuninni um að leggja nýja Lyngdalsheiðarveginn.
Vegurinn um Veginn frá Veginum til Vegarins er alltaf með puttann á lofti þegar hann nefnir nafn sitt, og finnst að aðrir muni þannig muna nafn sitt betur.
Í viðtali við þýska dagblaðið Der Spiegel sagði hann ´uppáhalds kvikmyndin mín er The Road (Vegurinn) og allt mitt líf hef ég helgað vegum og vegarannsóknum og vegagerð. Mitt líf er einfaldlega hinn svarti, frekar en gulli meðalvegur, alútaðaður olíu, drullu, brennisteini og allri mögulegri mengun sem hægt er að hugsa sér. Já, ég elska nútímann, en það er ekki þar með sagt að ég vilji endilega vera í takt við hann´.
Aðspurður segist Vegurinn neita alfarið að tengjast starfsemi Al Quaeda á neinn hátt.