Það vottast hér með að hinn heimsþekkti og geðþekki hjartaknúsari , kvikmyndaleikstjórinn Srdjan Spasovejic hafi fallið í ónáð hjá íslensku söngkonunni Nínu Rúnu Kvaran.
Nína telur að kvikmynd hans , Serbian Film , sé einn sá almesti viðbjóður sem hún hefur nokkurn tímann séð fyrr og síðar.
Myndin fjallar um ungan klámmyndaleikara sem kynnist kvikmyndaleikstjóra sem er svo krefjandi að verk hans mun setja líf beggja í bráða hættu en hvernig verður auðvitað ei sagt frá hér.
Engu breytir um það hverra pólitískra eða annara lífsskoðana hjartaknúsarinn ógurlegi er - söngkonan hefur tilkynnt álit sitt á myndinni í sjerlegum einkapósti til mikils aðdáanda leikstjórans á facebook , þar sem hún kvartar sáran undan því m.a. að Srdjan Spasovejic sé ekki með nógu sítt hár , og sje þar að auki gersamlega skegglaus.
Hinn veraldarvani aðdáandi hefur fengið beiðni um að láta ekki myndina hafa nein áhrif á sig , en sem liður í tilraun á sviði áfallahugstjórnunar þá skilaði notkun myndarinnar ágætis árangri.
Myndin þykir í dag meðal merkustu kvikmyndaverka serbneskrar kvikmyndasögu , og fær alls staðar góða dóma sem hryllingsmynd og sem klámmynd.
´Þér megið ei láta skegglausa og sköllótta menn eins og Srdjan Spasovejic hafa áhrif á það hvaða myndir þér veljið til þess að horfa á hverju sinni eða lána mjer því þjer vitið vel að íslenskar söngkonur eru tilbúnar til þess að fyrirgefa Conan þrátt fyrir að hann hafi verið svona mikið vöðvatröll á sínum tíma þar sem hann var stundum pínulítið skeggjaður í gömlu teiknimyndablöðunum - en þetta skeggleisi hjá þessum sósíalistíska níhilista er í mínum huga algjörlega ófyrirgefanlegt!´
Í svari til söngkonunnar tjáði aðdáanda leikstjórans eftirfarandi; ´ég skil sjónarmið yðar vel. Ef ég framleiddi sem sagt tvöfalt óhugnanlegri og skelfilegri hryllingsklámmynd , þá ætti ég uppi á pallborðið svo lengi sem ég væri alskeggjaður , og með mátulega lítið af vöðvum á mér - svona eins og t.d. hellahindúi´.
Svar til baka; ´æi farðu nú ekki að blanda hellahindúum í klámmyndir frá Svartfjallalandi!´







































