Popular Posts

Sunday, March 20, 2011

Alþingi opnar leið fyrir kjaftæðiskvótakerfi


Á móti íslensku bændastjettinni líkt og margir fyrrverandi forverar hans - Jón Bjarnason hefur mikinn áhuga á að opna leið fyrir viðskipti með kjaftæðiskvóta. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við sjávarútvegsráðuneytið til þess að geta hafið kaup á kjaftæðiskvóta sem allra fyrst.....

Jón Bjarnason hefur lýst yfir fyrir stuttu að vel komi til greina að opna leið fyrir kjaftæðiskvótakerfi.
Forstæsiráðherra , Jóhanna Sigurðardóttir tekur vel í hugmyndir Jóns Bjarnasonar en hann dvelur á sambýli um þessar mundir þar sem fjármunir hans duga vart til þess að greiða fyrir heimilisrekstrinum og þar sem fá önnur úrræði reyndust í boði fyrir sjávarútvegsráðherran varðandi búsetumál.
Jón Bjarnason er íslensku þjóðinni kunnugur vegna andstöðu sinnar gagnvart ESB.
Kjaftæðiskvótakerfið verður byggt á hugmyndum manna um rekstur gamla kvótakerfisins sem er í algjörri kös og upplausn og sem enginn nennir lengur að reka , a.m.k. ekki neinn heilvita maður sem komið er.
Kjaftæðiskvótakerfið er í skoðun hjá forsætisráðuneytinu , sjávarútvegsráðuneytinu og innanríkisráðuneytinu.
Þeir sem eru velunnarar Alþingis fá að sjálfsögðu sjerstakann gjafa - kjaftæðiskvóta , á meðann aðrir þurfa að kaupa sinn kjaftæðiskvóta dýrum dómum.
En jafnvel þó að Alþingi úthluti kjaftæðiskvótanum , er ekki þar með sagt að jafnvel hann verði ekki ritskoðaður.

No comments:

Post a Comment