Popular Posts

Saturday, March 5, 2011

Gústaf krókódíll bannar öðrum krókódílum að freta nálægt sér

Gústafi er afar illa við fret og hefur bannað öllum krókódílum að freta í návist sinni. Meðal krókódíla sem eru á bannlista hjá honum eru allir forsögulegir krókódílar , allir óuppgötvaðir krókódílar , síamskrókódílar , Gaiman krókódílar vegna tengsla sinna við IceSave , og að sjálfsögðu langtrýningar.

Gústaf krókódíll hefur gefið út tilkynningu þess efnis að öllum krókódílum í heiminum sje bannað að freta í nálægð sinni.
Gústaf lýtur afar stórt á sjálfann sig og hefur nýlega titlað sjálfann sig sem ´landvætt allra fljóta og fljótsmunna Afríku´.
Gústaf hefur ekkert gefið upp hvort að ferðamenn megi prumpa eða ekki í viðurvist sinni , en Gústaf er að sögn meinilla við ferðamenn og er heimsþekktur fyrir illan bifur sinn á mannkyninu.
Gustaf er talinn eiga yfir 200 líf óbreyttra borgara frá ýmsum hjeruðum Afríku á samvisku sinni og sætir nú rannsóknar alþjóða stríðsglæpadómstólsins og mannréttindadómstólsins í Haag en getur að sjálfsögðu ekki komið fram sjálfur í væntanlegum rjettarhöldum verði hann á annað borð fundinn sekur.

No comments:

Post a Comment