Popular Posts

Friday, March 25, 2011

Námsráðgjöf HÍ endurskilgreinir hugtakið ´rökfræði´

Rökfræðungur á ferð - þessi rökfræðingur hefur væntanlega ekki brautskráðst með BA gráðu í heimspeki en yrði ábyggilega ráðinn sem kennari í rökfræði í HÍ ef Náms - og starfsráðgjöf fengi að ráða.


Jæja , þá er loksins komið að því að langþráður draumur áhugafólks um listfræði sem heimspeki rætist , en einn af hátt settu aðilunum hjá Námsráðgjöf HÍ hefur lýst yfir að það sje sem sagt sín skoðun að listfræði sje rökfræði.
´Ef að nemandi getur fengið 6 á prófi í heimspeki en fær svo aftur 4 fyrir seinna próf má breyta því með því að segja sem svo að nemandinn hafi klárað próf í listfræði en eigi heimspeki eða rökfræði - sem sagt jeg er þeirrar skoðunar að ef jeg ákveð að rökfræði sje í raun það sama og listfræði þá skiptir það mig sem sagt engu máli að listfræði og heimspeki / rökfræði sjeu eitt og hið sama´.
Blaðamaður Reykjavik Grapevine spurði konuna frekar út í furðulega skoðun sína á merkingu hugtaksins ´heimpspeki´og hugtaksins ´rökfræði´og hún svaraði reyndar algjörlega út í hött sem er HÍ einum lagið þegar svoleiðis spurningar eru spurðar ´ef þú ert t.d. fatlaður nemandi í háskólanum þá hefurðu litla sem enga hugmynd um það nákvæmlega hversu miklan rjett þú hefur og ef þig langar til að fá 6,0 í einkunn metna í stað 4,0 þá kem jeg bara og segi að nemandanum hafi sem sagt gengið svona ofboðslega vel í listfræði og er alveg sama þó að Quine eða Jacques Derrida væru mjer ósammála´.
´En ef að Quine segði þjer að Jacques Derrida væri sófisti hvernig myndirðu svara Quine?´
´Jeg myndi segja honum að hann og Derrida væru báðir listfræðingar en að jeg væri starfsmaður Námsráðgjafar HÍ´.
´Þannig að Námsráðgjöf HÍ getur sem sagt endurskilgreint alveg upp á nýtt merkingu hugtaksins ´heimspeki´og fært það hugtak yfir á hugtakið ´listfræði´? Er það ekki merki um brenglað mat á veruleikanum?´
´Neinei alls ekki. Þú getur faktískt sjeð talað um það við hana Auði Ólafsdóttur listfræðing. Kannski hefði hún sagt við Quine að bæði hann og Derrida væru á bullandi bólakafi í sófisma ef þeir væru enn á lífi´.
Óheppinn - skv. ákvörðun Náms - og starfsráðgjafar HÍ telst Quine ekki til heimspekinga eða rökfræðinga. Enn eitt áfallið fyrir CIA en Quine vann fyrir þá og var sagður hundleiðinlegur þegar hann kom til Íslands sem er aðalsmerki sumra starfsmanna stofnunarinnar.
´Mikið er nú gott að þeir sjeu dánir í dag , annars yrðu þeir brjálaðir ef þeir frjettu af þessu rugli hjá ykkur´sagði blaðamaðurinn og námsráðgjafarfulltrúinn var greinilega hin ánægðasta með að heyra svör hans.


No comments:

Post a Comment