Popular Posts

Friday, March 4, 2011

Stewart Swerdlow gengur í Al Quaeda


Til vinstri - David Icke í lífsskoðunum , til hægri - afkomandi stofnanda Sovjetríkjanna , Jacov Swerdlow , Stewart Swerdlow , í lífsskoðunum , nýorðinn sunna múslími. Stewart ákvað að ganga inn í Al Quaeda á dögunum eftir ítrekaðar beiðnir um að hann fjarlægi Al Quaeda greinar á vefsíðu sinni þar sem þær þykja innihalda svæsnar staðreyndavillur. Stewart sjer ekkert að innihaldi greina sinna. Maðurinn til vinstri er að sjálfsögðu enn til vinstri en að vísu ´óopinberlega´. Eins og sjá má vantar hakakrossinn á Icke og sigðina á Swerdlow.Óstaðfestar fregnir herma að David Icke þjáist af tunglsýki sem hafi haft alvarlega smitandi áhrif á framtíðarmöguleika svonefnds Constellation verkefnis NASA á sviði tunglkönnunar.

Bandaríkjamaðurinn sem allir Íslendingar með snefil af viti um Bandaríkin elska hefur ákveðið að gerast meðlimur í hinum alræmdu hryðjuverkasamtökum Al Quaeda.
Að sögn færustu sjerfræðinga á sviði málefna Al Quaeda eiga samtökin sjer eigi tilvist í raunheimum svo vitað sje , en þau voru lengi bendluð við hin margumtöluðu hryðjuverk 11.September 2001 , hryðjuverkin í Mumbai á Indlandi og víðar. Al Quaeda samtökin hafa dvínað í vinsældum sem umræðuefni eftir nokkur youtube.com myndbönd sem eru bútar af hinni heimsþekktu heimildarmynd There´s No Such Thing As Al Quaeda. Stewart lætur það ekkert á sig fá þótt flest bendi til þess að Al Quaeda sjeu eigi til.
Í nýlegu viðtali við Útvarp Sögu tjáði Stewart Swerdlow Arnþrúði Karlsdóttur eftirfarandi; ´þá bý jeg bara til hóp hvítra Mujahaddina og vjer munum herja á bandaríska skæruliða úr röðum NATO hersveita´.
´Ottist þjer eigi árásir ómannaðra flugvjela og annara háþróaðra NATO tæknifyrirbrigða?´
´Nei , það væri tilgangslaust - tilgangurinn hjá mjer með því því að ganga inn í Al Quaeda , er að lifa og deyja fyrir málstað. Þar sem mjer tókst eigi að sannfæra bandarísku þjóðina um að tjeð samtök hefðu áhuga á að fá ameríska ríkisborgara til liðs við sig , hef jeg ákveðið að prufa að ganga í þau sjálfur´.
´En ertu ekki mannvinur sem elskar höfrunga og gengur um með gullmerkaba á hálsinum?´
´Að sjálfsögðu - jeg vona það að fyrstu skotin sem verða skotin í mig hitti gullmerkabað mitt og tryggi þar með að jeg fái að lifa aðeins lengur svo jeg geti komið heim og skrifað næstu bók´.
Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um að taka niður youtube.com myndband og vefsíðuyfirlýsingu með þvælukenndum þvaðursyfirlýsingum um að Al Quaeda vilji fá bandaríska og breska ríkisborgara til liðs við sig , hefur Íslandsvinurinn því miður enn þrálátast.
Í stórhættu á að verða fyrir barðinu á Al Quaeda skæruliðum í meira en 11 ár - bandarískur ríkisborgari. Myndi koma hrollvekjandi og ósmekklega fyrir sjónir væri hann með heila.

No comments:

Post a Comment