Popular Posts

Monday, March 7, 2011

Veðurguð kvartar undan einelti í Hveragerði

Þessi veðurguð er afar ósáttur við einelti í sinn garð í skólakerfinu í Hveragerði. Pazuzu hefur hótað öllu illu svo að íbúum Hveragerðis er ráðlagt að halda sig heima undanfarin misseri og vaða ekki út í storma og stórhríðir að óþörfu.

Veðurgoðið Pazuzu er öskuillur þessa dagana en styttur af honum hafa verið margbrotnar í skólum um gjörvallt Hveragerði.
Pazuzu ákvað að taka sjer bólfestu í nunnu og kvarta fyrir prestinum hvað hafi farið úrskeiðis og krefjast þess að börnin sem beri ábyrgð á eineltinu í sinn garð verði látinn biðjast fyrirgefningar hjá presti.
Pazuzu er mörg þúsund ára gamall að sögn , og kemur frá Írak , Íran og svæðunum í kringum Afghanistan og var landvættur norðanvindsins í Ahrimanstrú og öðrum trúarbrögðum.
Þar sem að kennarar , skólastjórar og aðilar tengdir menntamálaráðuneytinu hafa lýst yfir að þeir sjeu þeirrar skoðunar að neyðarástand hafi skapast í landinu sökum skorts á einelti , þá er spurning hvort landvættinum verði fært að ná fram markmiði sínu.
Komið var með Pazuzu styttur til krakkanna í nokkrum skólanna í Hveragerði og þau ærðust og byrjuðu að kalla stytturnar nöfnum.
Þau brutu allt og brömluðu og höguðu sjer eins og fífl og fávitar og reyndu meira að segja að sprauta stytturnar með geðlyfjum sem þau höfðu fengið lánuð hjá geðlæknum sem liður í ´vísindalegum tilraunum á sviði sálfræði og geðlæknisfræði´.
Krökkunum var tjáð að þau ættu að skammast sín , biðja stytturnar afsökunar , og fara með fallegar bænir til Pazusu á hverjum morgni , annars hefndi hann sín grimmilega.
Eins og sjá má hefur veðurfar undanfarna daga bent til þess að ekki hafi verið farið eftir ítrekuðum tilraunum til að fá menn til að bera virðingu fyrir Pazusu og trúarbrögðum Persa , forn Afghana og forn - Íraka.

No comments:

Post a Comment