Popular Posts

Saturday, March 5, 2011

CIA gengur í Ashtar Command

Alda Ármanna Sveinsdóttir fordæmir inngöngu CIA inn í Ashtar Command. Alda trúir sjálf að sjálfsögðu ekki á tilvist Ashtar Command , og er að öllum líkindum ekki nýaldarsinni.

Bandaríska Leyniþjónustan , CIA hefur tilkynnt á vefsíðu sinni að hún hyggist ganga í Ashtar Command , sem er n.k. geimverubræðra - og systralag rekið í samvinnu við Hvíta Bræðralagið að sögn nýaldarsinna og nýaldaráhugafólks um geimverur , en til er áhugafólk um geimverur sem hefur enga trú á því að fyrirbæri eins og Ashtar Command sjeu yfir höfuð til.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess að sannfæra mann og annan þess efnis að Ashtar Command fyrirfinnist líklegast í geðheimum eingöngu , hefur sitjandi framkvæmdastjóri CIA lýst yfir að CIA hafi mikillra hagsmuna að gæta af því að fylgjast með starfsemi vefsíðunnar Ashtar Command og öllu sem við henni kemur.
Orðrómar höfðu lengi verið á kreiki þess efnis að CIA hyggðust ganga í Ashtar Command eftir að í ljós kom að það þótti ekki smekklegt fyrir þá að ganga í Vísindakirkjuna þó að margir útsendarar séu þegar meðlimir kirkjunnar og hafi reynt að fá yfirmenn CIA til að ganga í kirkjuna með sér.
Málið hefur vakið hörð viðbrögð aðdáenda Ashtar Command sem segja að CIA hafi ekkert þangað að gera.
Meðal þeirra sem hafa fordæmt þessa ákvörðun CIA , eru myndlistarkonurnar Alda Ármanna Sveinsdóttir og Ríkey.
Ekki spurning , CIA eiga ekkert að vera að skipta sjer af málum sem þeim kemur einfaldlega ekkert við og vera með nefið í öllu því að ef þú ert með nefið í öllu hættirðu að finna lykt ef þú eyðir tímanum þínum stanslaust í að vera með nefið alls staðar annars staðar nema þar sem lykt berst.

No comments:

Post a Comment