![]() |
| Eytt með eða - tengingu - Adolf Hitler. |
Rússnesk stjórnvöld hafa staðfest að Adolfi Hitler hafi verið eytt með eða - tengingu.
Rétt hafi þótt að mati rússneskra stjórnvalda að halda yfirhylmingunni um það nákvæmlega hvernig Adolfi Hitler hafði verið eytt leyndri eins lengi og hægt væri.
En eftir því sem framfari rökfræðinga á sviði rannsókna á eða - tengingu og eðli hennar , kom í ljós að kannski væri sniðugt að upplýsa rússnesku þjóðina um sannleikann í málinu.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti lýsti yfir í ávarpi til rússnesku þjóðarinnar að tilraunin hafi heppnast og að fjölda annara óvina Rússlands hafi verið eytt með eða - tengingu.
Aðspurður hvort hann teldi mögulegt að geta eytt sjálfum sér með eða - tengingu svaraði Pútín í viðtali við rússneska tímaritið Pravda; ´það er væntanlega ómögulegt fyrir mig að svo stöddu að vera eytt með eða - tengingu. En eftir nýlegt mótmælaspjald af mjer þá sýnist mjer að líkurnar á að mjer gæti verið eytt aukist dag frá degi - því er náttúrulega öruggt mál að KGB og fleiri aðilar muni geyma öll ríkisleyndarmál er varða notkunarmöguleika þessa öfluga vopns í baráttunni við óvini rússneska ríkisins´.
Eða - tengingin lýtur að sjálfsögðu svona út; V.
Einnig er til hið svonefnda óskaraða eða eða V með striki undir.


No comments:
Post a Comment